Feykir - 24.04.2012, Qupperneq 4
4 Feykir 16/2012
Á sumardaginn fyrsta, var haldinn
hátíðlegur Skeifudagur Grana sem er
hestamannafélag nemenda við
Landbúnaðarháskóla Íslands á
Hvanneyri.
Nemendur í hrossarækt sýndu afrakstur
vetrarstarfsins í reiðmennsku og frum-
tamningum og Morgunblaðsskeifan m.a.
afhent þeim nemenda sem stendur sig best
í reið-mennsku- og frumtamninganámi
vetrarins.
Svala Guðmundsdóttir frá Sauðárkróki
hlaut skeifuna að þessu sinni. Svala er
mikil hestakona sem á ekki langt að sækja
hestaáhugann en hún er dóttir Guðmundar
Sveinssonar og Auðar Steingrímsdóttur
hrossaræktenda. Þá er Sveinn Guð-
mundsson einn af áhrifamestu hrossa-
ræktendum landsins afi hennar. /PF
Hestamennska
Svala hlaut Morgunblaðsskeifuna
( LIÐIÐ MITT ) palli@feykir.is
Heimili: Bý í dag á Hlíðarvegi
18 í Kópavogi, en er uppalinn
á Brautarholti, og mun búa þar í
sumar
Starf.. Er áfyllari í Ölgerðinni.
Hvert er uppáhaldsdliðið þitt í
enska boltanum og af hverju?
Eins erfitt og að segja það, þá
er það Liverpool. Kannski engin
ástæða nema eldri bróðir minn,
Ólafur Bjarni var gallharður
Liverpool maður og plataði mig
snemma til að halda með þeim.
Fyrsta minningin var Liverpool
bolur með Owen aftaná.
Hefur þú einhverntímann lent í
deilum vegna aðdáunar þinnar
á umræddu liði? Já heldur
betur. Flestir vinir mínir halda með
Manchester Utd., svo að sjálfsögðu
er rifist og rökrætt fram og tilbaka.
Hver er uppáhaldsleikmaðurinn
fyrr og síðar? Giovani Dos Santos.
Hefur þú farið á leik með liðinu
þínu? Heyrðu nei, því miður!! En
stefnan er sett á Anfield sem fyrst,
helst á næsta tímabili.
Áttu einhvern hlut sem tengist
liðinu? Já, það er eitthvað. Gerald
Houllier bolla sem mér þykir afar
vænt um. Svo eru það bara þetta
venjulega, nokkrar treyjur, trefill,
jólakúlur og fl.
Hvernig gengur að ala aðra
fjölskyldumeðlimi upp í stuðningi
við liðið? Bara nokkuð vel. Pabbi
og mamma hafa engan áhuga
á að fylgjast með gangi mála í
enska boltanum, svo þau láta
okkur systkinin kljást um það. Inga
Fanney elsta systir er hlutlaus.
Stefán Gísli er Manchester maður,
sem er óskiljanlegt, ekki bara
vegna þess að hann er sá eini í
fjölskyldunni sem heldur með
þeim heldur líka því að
hann gæti ekki talið
upp einn leikmann
liðsins í dag. Óli
Bjarni á sinn þátt í
því að ég er Púllari
og að sjálfsögðu er
hann það líka. Baldur
Ingi litli bróðir hefur alltaf verið
einstakur, og endurspeglast það
með hvaða liði hann heldur en
hann er dyggur Fulham aðdáandi.
Svo er litla överpið Bryndis Rut að
sjálfsögðu púllari.
Hefur þú einhvern tímann skipt
um uppáhalds félag? Nei. Ég hef
oft skipt um kærustur og brækur,
en aldrei fótboltalið, það gerir
maður bara ekki.
Uppáhalds málsháttur? Æfingin
skapar meistarann.
Einhver góð saga úr boltanum? Er
með eina “gamla“ góða. Sumarið
2008, gullsumar 3. flokks karla
Tindastóls/Hvatar er ógleymanlegt
sumar í alla staði. Ekki bara það
að við vorum bestir á landinu, að
þá á maður margar minningar
sem verða seint gleymdar. Ein
góð saga sem gerðist þetta sumar
er fyrir heimaleik á Blöndósi við
Fjölni. Allir komnir í klefann og
gerir Donni þjálfari sig tilbúinn að
hefja ræðu sína fyrir leik. Rétt fyrir
það uppgvötast að það vantaði
einn leikmann, Blönduósskónginn
Kristinn J. Snjólfsson sem ekki
var mættur í klefann. Hilmar Þór
Kárason tekur upp símann og
hringir í hann, en hann svarar
og segist þá vera mættur í
Fjölnisheimilið og vera að leita að
klefanum!
Spurning frá Hallgrími Jóns Halls.
– Hvenær ætlar þú að viðurkenna
að Giovani Dos Santos getur ekki
neitt?
Svar... Aldrei, erfitt að reyna
viðurkenna eitthvað sem er svo
bara ekki satt.
Hvern viltu sjá svara þessum
spurningum? Atli Arnarson
Hvaða spurningu viltu
lauma að viðkomandi?
Hvað hafa mörg rauð
spjöld komið inn
um dyragættina á
Lerkihlíð 1 í gegnum
tíðina?
Óskar Smári Haraldsson
Gallharður
Liverpool-maður
Gleði og gaman á Sönglögum í Sæluviku
Kynslóðabilið brúað
Nokkrir viðburðir hafa
skapað sér fastan sess í
Sæluvikunni undanfarin ár
og eru Sönglög í Sæluviku
svo sannarlega orðið eitt
af þeim. Að venju verða
stórtónleikarnir haldnir í
Menningarhúsinu Miðgarði,
föstudaginn 27. apríl, og
munu þeir bera yfirskriftina
„Kynslóðabilið brúað“.
Stefán Gíslason og Einar
Þorvaldsson hafa staðið fyrir
Sönglögunum síðustu ár og
spjallaði blaðamaður Feykis
við þá félaga.
„Sæluvikan er náttúrulega
svo rótgróin og mikilfengleg
listahátíð, hvernig sem á hana
er litið, og því ekki ónýtt að
fá að vera með,“segir Stefán
en þetta munu vera fjórðu
tónleikarnir á jafn mörgum
árum. „Viðtökurnar hingað til
hafa verið frábærar og langt
umfram væntingar,“ bætir
Stefán við. Í Sönglögunum
hefur tíðkast að taka fyrir
ákveðin þemu sem gerir það
að verkum að tónleikarnir
eru mjög ólíkir frá ári til árs
og sífellt ný viðfangsefni.
„Það má kannski segja að
með Menningarhúsinu hafi
skapast sérstök stemning
fyrir tónleikum í léttari
kantinum, þar sem hljóðkerfi
og hljómburður hússins fær að
njóta sín til fulls,“ segir Stefán.
„Fram að þessu höfum við
tekið fyrir ABBA, söngleiki
og nú síðast soul-tónlist,“
útskýrir hann, en í ár er óhætt
að segja að kynslóðabilið
Einar og Stefán standa fyrir Sönglögum í Sæluviku.
verði brúað, eins og yfirskrift
tónleikanna gefur til kynna, því
þátttakendur á tónleikunum
eru á aldursbilinu 12-70 ára.
„Aðalþema kvöldsins verða
lög sem systkinin Ellý og
Vilhjálmur sungu og gerðu
ódauðleg á sínum tíma,
ásamt fjölmörgum öðrum
skemmtilegum lögum,“ segir
Einar, en á sjötta tug koma að
tónleikunum með einhverjum
hætti, að meðtöldu tækni- og
aðstoðarfólki, og því óhætt að
segja að um stórtónleika sé að
ræða.
„Kynnir kvöldsins verður
sem fyrr Jón Hallur Ingólfsson
og fram koma Óskar Péturs-
son og Álftagerðisbræður,
ásamt þeim Herdísi Rúts-
dóttur og Sigvalda Helga
Gunnarssyni. Sérstakur gestur
í ár verður stórsöngkonan
Guðrún Gunnarsdóttir.
Og ekki má gleyma Línu
[Sigurlínu Einarsdóttur], Kollu
[Kolbrúnu Grétarsdóttur] og
Írisi Olgu [Lúðvíksdóttur],
sem áheyrendur kannast við
frá síðustu tónleikum. Rúsínan
í pylsuendanum verður svo
nýr barna- og unglingakór
Varmahlíðarskóla, undir stjórn
Helgu Rósar Sigfúsdóttur,“
segir Einar.
Hljómsveitina segja þeir
koma úr ýmsum áttum
en uppistaðan í henni eru
kennarar í Tónlistarskóla
Skagafjarðar. „Svo kemur einn
úr Sinfóníuhljómsveit Íslands,
Berglind Stefánsdóttir, og
annar úr hljómsveitinni Funk
that Shit!, Kristján Reynir
Kristjánsson, sem gerði
það gott í Músíktilraunum
á dögunum. Bassaleikarinn
er svo fjármálastjóri sveitar-
félagsins, Margeir Friðriksson.
Eins og þú heyrir þá er þetta
bara nokkuð góður kokteill,“
segir Einar glaðbeittur.
Fyrir þá sem vilja tryggja
sér miða í tæka tíð fer forsala
aðgöngumiða fram í Rafsjá, KS
í Varmahlíð og KS á Hofsósi.
/BÞ
Svala Guðmundsdóttir. Ljósmyndari er Kristín Jónsdóttir en hún er Borgnesingur
sem býr í Skorradal og útskrifaðist úr sérnámi í ljósmyndun vorið 2011. Hægt er
að skoða ljósmyndir frá henni á www.kristinjons.com