Feykir


Feykir - 24.04.2012, Page 7

Feykir - 24.04.2012, Page 7
16/2012 Feykir 7 að segja að það sé logn en það komu nokkrir viðbótar fjármunir frá ríkinu í loka- umræðum fjárlaganna. Nú er ákveðin vinna í gangi í vel- ferðarráðuneytinu sem eykur okkur bjartsýni. Við teljum að sú vinna sem sveitarfélagið ásamt forsvarsmönnum atvinnulífs, hollvinasamtaka, allra skóla í héraðinu, að ógleymdum íbúum héraðsins, fórum í með Capacent - sýni að ekki var reiknað rétt þegar niður- skurður var ákveðinn fyrir HS. Við heyrum einnig að menn ætli að skoða þessi mál betur og vonumst til að sú vinna leiði í ljós að við fáum ekki frekari skerðingar heldur þvert á móti jafnvel aukningu í framtíðinni. Ásta segir að heimamenn telji að ekki hafi verið jafnt gefið í þessum útreikningum og HS hafi verið beitt óréttlæti. -Ég tel að þessi mikla skerðing á fjárframlögum til Heilbrigðisstofnunarinnar Sauðárkróki sé sennilega mesta aðför sem hefur verið gerð á þetta samfélag okkar af hálfu ríkisvaldsins. Þetta segi ég vegna þess að heilbrigðisþjónustan skiptir svo miklu máli fyrir samfélagið eins og samstaða allra íbúa um stofnunina hefur sýnt. Þessi stofnun er jafnframt mjög hagkvæm eining og það er viðurkennt. Við gerðum okkur alltaf grein fyrir því að stofnunin yrði að hagræða hjá sér eins og aðrar heilbrigðis- stofnanir í landinu en að stofnunin á Sauðárkróki þyrfti að hagræða nærri tvöfalt meira en aðrar var ekki hægt að una við. Vegið að landsbyggðinni Mikið hefur verið rætt og ritað um sjávarútvegsfrumvörp ríkisstjórnarinnar og er ljóst að þau munu hafa mikil áhrif á Skagafjörð ef þau verða óbreytt að lögum. Byggðarráð sveitarfélagsins samþykkti á fundi sínum fyrir helgi álykt- un þar sem Alþingi er varað sterklega við því að samþykkja fyrirliggjandi frumvörp ríkis- stjórnarinnar til laga um stjórn fiskveiða og veiðigjöld, enda ólíkleg til að ná þeim markmiðum sem stefnt er að og skorti mikið til að tryggja þann langtímastöðugleika sem getur skapað grundvöll fyrir uppbyggingu atvinnulífs í sjávarbyggðum. -Við erum alveg klár á því að þetta mun hafa mjög slæm áhrif á Sveitarfélagið Skagafjörð. Það hefur komið fram að veiðigjaldið fyrir Fisk Seafood fari úr 160 milljónum króna í yfir 900 milljónir miðað við óbreytt fyrirtæki og þá spyr maður: Nær fyrirtækið að standa af sér svo mikla skattlagningu? Höfuðborgarsvæðið mun fara best út úr þessu þar sem gert er ráð fyrir því að gríðarlegir fjármunir flytjist þangað af landsbyggðinni og þykir mörgum þó nóg um nú þegar. Sem dæmi má nefna að fyrirhuguð hækkun veiðileyfagjalds á ári hjá Fisk Seafood er sama upphæð og fer í allan rekstur Heilbrigðisstofnunarinnar Sauðárkróki. Samkvæmt skýrslu KPMG sem gerð var um áhrif af framkomnum tillögum um lagaumhverfi í sjávarútvegi á Sveitarfélagið Skagafjörð, svarar fyrirhuguð aukning veiðigjalda um 152 þúsund krónum á hvern íbúa í Sveitarfélaginu Skagafirði, varlega reiknað. Ásta telur bæði frumvörpin vond. -Yfir 375 þorskígildistonn myndu skerðast strax í haust hér í Skagafirði. Fiskveiðar og vinnsla eru gríðarlega stór þáttur í tekjum sveitarfélagsins og segist Ásta vera áhyggjufull vegna minnkandi tekna með tilkomu þessara frumvarpa. Viðræður enn í gangi Í þeirri varnarbaráttu sem sveitarfélagið hefur þurft að há undanfarið hefur mikil vinna farið í að koma áætlunarflugi aftur á til Sauðárkróks, en það lagðist af um áramót. Fulltrúar sveitarfélagsins hafa farið á ótal fundi hjá sam- göngunefnd Alþingis og innanríkisráðherra og lýst þar áhyggjum sínum varðandi aflagningu áætlunarflugsins og reynt að tryggja að það geti komist á að nýju. Fyrir liggur að ríkið er tilbúið til að leggja fram ákveðna fjárhæð til verkefnisins. -Verið er að ræða við aðra flugrekstraraðila um flugið en vissulega hefur það tekið lengri tíma en til stóð. Maður vonar að þessi vinna skili sér og flugið komist aftur á til Sauðárkróks, bæði til hagræðis fyrir fólkið í samfélaginu og atvinnulífið. Mikilvægt að halda hjólum atvinnulífsins gangandi Það hefur ekki blásið byrlega hjá verktökum landsins þar sem lítið hefur verið til skiptanna í verkefnum. Ásta er ekki of bjartsýn á ástandið. -Ég held að það sé ekki of gott ástand. Við vitum svo sem ekki fullkomlega um stöðuna hjá þeim verktökum sem eru að berjast hér heima, þ.e. bygginga- og jarðvinnuverktaka og aðra. Það er bara mjög lítið um að vera í þjóðfélaginu almennt. Við höfum þó borið þá gæfu að hér í Skagafirði hafa byggingaverktakar haft það, að segja má, þokkalegt en ég veit ekki til þess að það sé mikið framundan í sumar. Það hjálpar okkur vissulega að hafa þetta stóra fyrirtæki sem Kaupfélag Skagfirðinga er, það hefur verið duglegt að vera í framkvæmdum sjálft og viðhaldið þannig vinnu fyrir iðnaðarmenn á svæðinu. Öll ný atvinnutækifæri mikilvæg Sveitarstjórnin hefur ákveð- ið að fara í nýbyggingu á skólahúsnæði á Sauðárkróki í sumar og ef farið verður í sama verklag og var með leikskólann Ársali þá ganga verktakar á staðnum fyrir í þeirri vinnu. Þá er fyrirhugað að fara í byggingu á smábátahöfn á Sauðárkróki í sumar og verður sveitarfélagið með kynningu á því verki á atvinnulífssýningunni um helgina. Sem hluta af því verki hefur verið ákveðið að festa kaup á betri flotbryggju fyrir höfnina á Hofsósi og verður flotbryggjan sem þar er flutt á Krókinn. Þrátt fyrir lengingu á sand- fangaranum sem er nýlokið í Sauðárkrókshöfn berst eitt- hvað inn af sandi í höfnina og segir Ásta að viðræður séu við Siglingamálastofnun um að framkvæma rannsóknar- mælingar annað hvert ár. Stefnt er að því að stærri skip geti komið inn í höfnina hvort sem það er flóð eða fjara. Sveitarfélög landsins eru sífellt að leita atvinnutækifæra eða hjálpa til í þeim efnum og er Sveitarfélagið Skagafjörður þar engin undantekning á. -Við erum alltaf að reyna. Við erum með verkefnisstjóra í atvinnumálum, Sigfús Inga Sigfússon, einnig höfum við aðgang að Katrínu Maríu Andrésdóttur sem er atvinnuráðgjafi hjá SSNV. Það var tekin sú ákvörðun að ráða atvinnuráðgjafa á sínum tíma, sérstaklega til þess að fylgjast með og vera á tánum hvað varðar ný atvinnutækifæri. Það hafa komið upp allskonar mál sem hafa verið skoðuð þó stærri verkefni hafi enn ekki borið árangur. Við erum aðilar að félaginu UB koltrefjum og höfum verið að fylgjast með þeim geira og er alveg ljóst að núna þetta mörgum árum eftir efnahagshrunið eru markaðir að nokkru leyti að lifna við, þannig að tækifærin eru enn til staðar. Í því skyni m.a. erum við einnig að vinna að framgangi náms í plast- og trefjasmíði við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Við höfum einnig verið í samstarfi við fjárfestingarsvið Íslandsstofu með nokkur mál og má þar nefna minkaverkefni sem þegar hefur skilað fjárfestingu á svæðinu. Sveitarfélagið ákvað að lengja frestinn á því verkefni að gatnagerðargjöld á lóðum, við þegar tilbúnar götur, verði felld niður, eða til 1. júlí 2013. En því miður hefur það ekki enn orðið til þess ný íbúðarhús hafi risið. -Byggingakostnaður er bara orðinn of hár. En við viljum meina að húsnæðisskortur standi okkur fyrir þrifum þar sem við höfum misst fólk héðan af svæðinu út af húsnæðisskorti. Þó verð ég ekki eins mikið vör við þetta núna eins og fyrir ári síðan. En það kemur kannski til af því að mikil fólksfækkun varð hér á Sauðárkróki og í Skagafirði á síðasta ári. Við erum ekki með neina sjáanlega lausn á því en auðvitað erum við að fjalla um þetta mál og höfum af þessu ákveðnar áhyggjur. Það voru að vísu teknar í notkun átta íbúðir í Laugatúni á Sauðárkróki fyrir skömmu og það auðvitað léttir á. Lífsins gæði og gleði Sýningin Skagafjörður, lífsins gæði og gleði, verður haldin um næstu helgi eins og glögglega má sjá í blaðinu í dag og verður íþróttahúsið á Sauðárkróki fullt af áhugaverðum sýnendum. Ásta er mjög ánægð með hve vel fólk hefur brugðist við sýningunni og vill koma á framfæri þökkum til allra sem lagt hafa hönd á plóginn við undirbúning hennar. -Ég held að hún verði glæsileg eins og síðast. Ég verð að viðurkenna að þegar ég fór á þá sýningu kom hún mér verulega á óvart og fyllti mig gleði og bjartsýni. Ég held að það sé einmitt það sem við Skagfirðingar þurfum á að halda nú, að horfa upp og vera bjartsýn því við höfum svo margt að bjóða og fram að færa sagði Ásta en hún segist alltaf geta montað sig þegar gestir koma frá öðrum héruðum og löndum. Gestir hafa jafnan orð á því að það komi þeim verulega á óvart hversu fjölbreytt atvinnu- og mannlíf sé hér að finna. Einnig hafa gestir okkar talað um að það komi á óvart hversu mikil uppbygging sé í gangi miðað við aðra staði á landsbyggðinni. -Við höfum það í rauninni býsna gott og ég lít á það sem forréttindi að geta búið í Skagafirði, ekki síst fyrir börnin mín. Hér er gott að búa í þessu góða mannlífi og einstöku umhverfi. Það er hvergi betra að vera.

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.