Feykir - 24.04.2012, Page 9
16/2012 Feykir 9
Erla Björk Örnólfsdóttir
var ráðin rektor Hólaskóla
– Háskólans á Hólum, í
febrúar sl. og mun taka til
starfa þann 1. júní. Erla Björk
er líffræðingur að mennt
og hefur lokið doktorsprófi
í sjárvarlíffræði frá Texas
A&M University árið 2002.
Hún hefur starfað sem
forstöðumaður Varar –
Sjávarrannsóknaseturs við
Breiðafjörð frá stofnun þess
2006.
„Erla Björk hefur unnið frábært
brautryðjendastarf og staðið
fyrir mörgum áhugaverðum
verkefnum. Þá hefur hún miðlað
vísindastarfi Varar inn í skóla
og aukið þannig áhuga ungs
fólks fyrir lífríkinu umhverfis
landið. Loks hefur hún hlotið
mikla athygli fyrir starf sitt á
Snæfellsnesi sem og víðar,“ segir
um Erlu Björk í frétt á vefmiðli
Skessuhornsins frá því þegar
hún var kjörin Vestlendingur
ársins 2008.
Feykir sló á þráðinn til
væntanlegs rektors og fékk að
kynnast henni nánar. „Ég er fædd
og uppalin á Sigmundarstöðum
í Þverárhlíð en hef verið
búsett víða um landið, eftir
því hvert nám og vinna hefur
borið mig,“ segir Erla Björk.
Þar á meðal segist hún hafa
búið í Borgarfirði, Djúpavogi,
Reykjavík, Mývatnssveit, Banda-
ríkjunum og Snæfellsbæ, þar
sem hún býr nú en næst sest hún
að á Hólum, þegar hún tekur við
rekstorstöðunni.
Erla Björk á langa skólagöngu
að baki, en eftir grunnskóla fór
hún í Samvinnuskólann á Bifröst.
Síðar lauk hún stúdentsprófi
af náttúrufræðibraut frá
Menntaskólanum í Hamrahlíð
og þaðan lá leiðin í líffræðinám
við Háskóla Íslands, þar sem
hún lauk B.S. prófi í líffræði
og síðar M.S. prófi í sama
fagi. „Rannsóknarverkefni
mitt vann ég í Mývatnssveit á
árunum 1990-1992 og fjallaði
það um botnlægar vatnaflær í
Mývatni. Ég fór í doktorsnám
í sjávarlíffræði til Texas árið
1996 og frá þeim tíma hef ég að
mestu leiti verið í vinnu tengdri
rannsóknum í sjávarlíffræði.“
Hvernig kom það til að þú sóttir
um rektorsstöðuna? „Líklega er
rót þess sú löngun að vilja styðja
við og bæta Háskólamenntun í
landinu en ég tel að framundan
séu mjög góðir og gróskumiklir
tímar. Háskólinn á Hólum er
ungur háskóli og ég vænti þess
að hann vaxi úr grasi sem sterk
menntastofnun,“ svarar Erla
Björk. Hún segir Háskólann á
Hólum vera einstakan sökum
þess að þar fer fram kennsla
á fræðasviðum sem tengjast
nánasta umhverfi skólans. „Það
finnst mér vera mjög heillandi.
Þessa sérstöðu má auglýsa betur
til þess að laða að námsmenn
sem vilja njóta þeirra forréttinda
að stunda nám í umhverfi þar
sem þeir nýta umgjörðina fyrir
innblástur verka sinna,“ segir
Erla Björk. /BÞ
Nýr rektor Háskólans á Hólum
Nemendur nýti umgjörðina
fyrir innblástur verka sinna