Feykir - 24.04.2012, Síða 16
16 Feykir 16/2012
Fylgdu okkur á Twitter Finndu okkur á FacebookVið erum á YouTube
við seljum rafmagnwww.orkusalan.is Sími 422 1000
Söngdívan Alexandra
Chernyshova hefur
verið dugleg við að
auka söngmenningu
Skagfirðinga um árabil m.a.
með uppsetningu ópera
í Miðgarði, söngkennslu
og ýmsum öðrum
uppákomum þar sem hún
sjálf hefur sungið ásamt
öðrum. Stúlknakórinn
Draumaraddir Norðursins
hefur verið fyrirferðamikill
hjá Alexöndru en hann er
nýkominn heim eftir vel
heppnaða ferð til Eistlands
og nú stendur fyrir dyrum að
gefa út geisladisk. Alexandra
var tekin tali og spurð frétta.
-Allt fínt að frétta af mér, bara
mikið að gera eins og venjulega.
Ég er í mastersnámi við Lista-
háskóla Íslands, nýsköpun í
tónlist. Mastersverkefni mitt
er að semja óperu í fullri lengd
á íslensku Í Skálholti heitir
hún og er, um líf og örlög
Ragnheiðar Brynjólfsdóttur
biskupsdóttur. Óperan verður
frumsýnd vorið 2013. Síðan hef
ég verið á þönum með stúlkna-
Alexandra Chernyshova hefur nóg að gera í sönglistinni
Semur óperu í fullri lengd
kórinn minn í allan vetur til
útlanda og í upptökum fyrir
geisladiskinn Súkkulaðiland.
Stúlknakórinn Drauma-
raddir Norðursins hefur haft
mikið að gera í vetur að sögn
Alexöndru en hann tekur þátt
í tveimur Nordplus verkefnum
og er í samstarfi við skóla
frá Eistlandi, Lettlandi og
Litháen. -Við heimsækjum
þessa skóla og tökum einnig
á móti nemendum frá þeim.
Við höfum þegar heimsótt
Eistland og Litháen og tekið
á móti Litháunum. Núna í
lok apríl tökum við á móti
Eistlendingnum og Lettunum
og förum síðan út til Lettlands
í lok júlí. Saman höfum við
unnið ýmis verkefni sem
tengjast söng, okkar nánasta
umhverfi, menningu og
unglingum. Þessi verkefni og
ferðir eiga eftir að lifa lengi í
minningu stúlknanna og þarna
hafa orðið til vinasambönd
milli krakkanna sem taka þátt
frá öllum þessum löndum.
Alexandra hefur staðið í
ströngu við að útsetja og taka
upp fimmtán laga geisladisk
með Draumaröddunum núna
í janúar til mars en hann
er tekinn upp í Höfðaborg
og í hljóðveri hennar á
Hofsósi. Hún segir að Hilmir
Jóhannesson á Sauðárkróki
eigi þakkir skyldar fyrir aðstoð
við þýðingar og textagerð en öll
lögin á disknum eru sungin á
íslensku. Diskurinn kemur út í
lok apríl þegar útgáfutónleikar
verða haldnir í Miðgarði.
-Við vorum í Landanum
um daginn að kynna kórinn
og geisladiskinn og það var
frábært þó að veðrið hafa
ekki beinlínis leikið við
okkur á Borgarsandinum,
segir Alexandra en hún
hefur verið dugleg að
koma kórnum á framfæri.
-Draumaraddirnar tóku síðan
þátt í Barnamenningarhátíð
Reykjavíkur um daginn en
þar var ég með söngnámskeið
í Laugardalssundlauginni og
síðan sungu Draumaraddirnar
þar og í Ráðhúsinu – það var
mjög gaman.
Þegar mikið er umleikis
eins og hjá Draumaröddunum
hlýtur kostnaðurinn alltaf að
verða mikill og alltaf er ung-
mennafélagsandinn skammt
undan. -Nordplus verkefnið
er styrkt af sérstökum
styrktarsjóði sem greiðir að
mestu allan ferðakostnað.
Foreldrar og stúlkurnar í
kórnum hafa síðan verið mjög
duglegar að safna auka pening
fyrir ferðunum. Menningarráð
Norðurlands vestra hefur síðan
styrkt útgáfu geisladisksins og
tónleikana. Að öðru leyti er
þetta bara sjálfboðavinna, segir
Alexandra.
Draumaraddirnar verða
með útgáfutónleika 29. apríl
í Miðgarði og verður þar
um barna- og fjölskyldu-
skemmtun að ræða en auk
Draumaraddanna verða gestir
frá Eistlandi og Lettlandi og
samnemendur Alexöndru
úr mastersnámi hennar frá
Rúmeníu og Ítalíu.
-Ég vil hvetja alla Skag-
firðinga og Norðlendinga til
að koma á tónleikana okkar og
njóta frábærrar skemmtunar.
Það verður einnig hægt að
fá geisladiskinn á sérstökum
útgáfutónleika afslætti í Mið-
garði. /PF
Draumaraddir norðursins. Mynd: Jón Hilmarsson