Feykir - 24.04.2012, Side 17
16/2012 Feykir 17
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
Hvernig hefurðu það? Ég er ævinlega margblessuð.
Hvernig nemandi varstu? Með fullkomnunaráráttu í
náminu, en hugann til fjalla og úti í sveit.
Hvað er eftirminnilegast frá fermingardeginum? Að
Jesús kallinn er ósköp viðkunnanlegur og orð hans gott
leiðarljós í lífinu.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór?
Dýrasálfræðingur af vísindalegra taginu.
Hvað hræðistu mest? Sprautur. Ég þoli ekki einu sinni
að sjá sprautur í sjónvarpi.
Hver er besta platan sem þú hefur keypt? Murder
ballads með Nick Cave er í algeru uppáhaldi, líka
allt íslenskt þungarokk, þjóðlög og ættjarðarlög.
Semsagt, ég er mjög hrifin af krafti, bassatrommum og
strigabassaröddum.
Hvaða lag er líklegast að þú takir í Kareókí? Fjöllin
hafa vakað í þúsund ár... eða Wild thing, you make my
heart sing...
Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu (fyrir
utan fréttir)? Náttúrulífsþáttum og fræðsluþáttum af
víðáttufjölbreyttu tagi.
Besta bíómyndin? The Princess Bride - ógleymanlegt
snilldarverk, bráðfyndin hrásteypa.
Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu heimili? Laga
tölvur sem eru þversum.
Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu? Ég er alveg
þjökunarlaus af snilligáfu í eldhúsinu.
Hvað fer helst í innkaupakörfuna sem ekki er skrifað
á tossamiðann? Ávextir af öllu tagi.
Hvað er í morgunmatinn? Fyrst kaffi. Svo klukkutíma
seinna meira kaffi, og gróffóður af einhverju tagi.
Uppáhalds málsháttur? Öll él styttir upp um síðir.
Hvaða teiknimyndapersóna höfðar mest til þín?
Andrés önd og allt hans hyski, helst á dönsku.
Hver er uppáhalds bókin þín? Þær eru svo ótal
margar. Án Íslenskrar orðabókar eða Sýnisbókar
íslenskra bókmennta til 1750 hans Sigurðar Nordal
gæti ég þó vart á heilli mér tekið. Það er svo gaman að
smjatta á bragðmiklum orðum.
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún
færi, þá færirðu... til Ástralíu. Ástralskar bíómyndir sýna
heillandi veruleika, miklar víðáttur og frelsi, háskaleg
veður, sérkennilega náttúru, stórskrítið fólk með
ruddalegan húmor, sæluhrollvekjandi fagran framburð,
skeggbrodda og svitalykt, og hesta. Hmmm... eitthvað
svipað og dró mig til Skagafjarðar býst ég við.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu? Hvað
ég sökkvi mér ofan í verkefni líðandi stundar - og
steingleymi mér. Til allrar hamingju er ég umkringd
góðu fólki sem hlær bara með mér þegar ég er hvað
vitlausust.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Þegar
fólk er sífellt að finna að háttalagi fólks í kringum sig,
neikvætt fólk getur verið miklar vitsugur.
Enski boltinn - hvaða lið og af hverju? Jæja, er ekki
gott veður hjá þér?
Hvaða íþróttamanni hefurðu mestar mætur á? Bjarni
Jónasson, Mette Manseth og Þórarinn Eymundsson,
hestaíþróttamenn sem fá það besta út úr hestunum
með litla putta.
Heim í Búðardal eða Diskó Friskó? Ef það er íslenskt,
og hægt að þenja sig við að dansa eða syngja við lagið,
þá hugnast mér hnoðið. Semsagt, gott báðum megin.
Hver var mikilvægasta persóna 20. aldarinnar að
þínu mati? Vigdís Finnbogadóttir. Hún sýndi okkur
stelpunum að við gátum gert hvað sem við ætluðum
okkur að gera - og það með myndugleik og virðuleika.
Ef þú ættir að dvelja alein á eyðieyju, hvaða þrjá hluti
tækirðu með þér? Rafbókalesara með nettengingu
og handdrifnu hleðslutæki svo ég hefði nóg að lesa.
Tjald. Gervihnattasíma, svo ég gæti hringt eftir hálfs árs
notalegheit með sjálfri mér og látið sækja mig.
Hver væri titillinn á ævisögu þinni? Mér hefur aldrei
leiðst.
Nafn: Arnþrúður Heimisdóttir (Lukka).
Árgangur: 1971.
Fjölskylduhagir: Hér eru í heimili bóndi minn Þorlákur Sigurbjörnsson, og synir okkar Orri
Sigurbjörn og Heimir Sindri.
Búseta: Langhúsum, Fljótum.
Hverra manna ertu: Faðir minn heitinn er Heimir Steinsson, skólastjóri í Skálholti og prestur
á Þingvöllum. Móðir mín er Dóra Þórhallsdóttir, hún var bústýra og þúsundþjalasmiður í
Skálholti og Þingvöllum og vinnur nú við móttöku á RÚV.
Starf / nám: Ég tók FT-prófið við Hólaskóla á sínum tíma, búvísundinn á Hvanneyri og
kennararéttindin við KÍ. Þá tók lífið við og nú er ég bóndi og tamningamaður á Langhúsum og
grunnskólakennari við Sólgarðaskóla.
Bifreið: Nissan Navara.
Hestöfl: Hahva... Nóg til að draga nokkur lifandi hestöfl á kerru, eða puðast gegnum ekta
norðlenskan snjó. Jú svo eru líka fjölmörg lifandi hestöfl sem bolloka hér og þar í hesthúsi og
beitarlandi Langhúsa.
Hvað er í deiglunni: Að temja góða hesta, fræða ungu kynslóðina og njóta hverrar stundar hér
á þessu jarðríki.
Arnþrúður
Alþýðulist – félag handverksfólks í Skagafirði
Efla veg handverks
og listiðnaðar í
héraðinu
Alþýðulist - félag
handverksfólks í Skagafirði
verður með bás á Atvinnu-
lífssýningunni Lífsins
gæði og gleði og ætla að
kynna þar starfsemi sína
og jafnframt verða þau
með varning félagsmanna
sinna þar til sölu. Feykir
hafði samband við Helgu
Þórðardóttur, gjaldkera
félagsins, og spurði hana út í
starfsemina.
„Alþýðulist var stofnuð árið
1995 af nokkrum Skagfirð-
ingum sem voru áhugsamir
um handverk af öllu tagi,“
segir Helga. Markmið félagsins
segir hún hafa verið að efla
veg handverks og listiðnaðar
í héraðinu, eins og stendur í
lögum félagsins. Alþýðulist er
með aðsetur í Gallerí Alþýðulist
í Varmahlíð. „Það var mark-
mið félagsins frá upphafi að
koma á fót handverkssölu í
Varmahlíð. Sú sala var rekin
í nokkur ár í samvinnu við
Upplýsingamiðstöð ferðamála
en vorið 2011 tók félagið
alfarið við rekstri sölunnar,“
útskýrir Helga en félagið
leigir húsið sem kallað var
Upplýsingamiðstöðin en
gengur nú undir nafninu
Gallerí Alþýðulist, sem fyrr
segir.
Félagar Alþýðulistar eru
72 talsins og eru þeir flestir
að framleiða einhvers konar
handverk. „Þeirra vörur eru
uppistaðan í vörunum í Galleríi
Alþýðulist en einnig eru teknar
vörur í umboðssölu af öðrum,“
segir Helga. Félagið hefur tekið
þátt í ýmsum viðburðum s.s.
landbúnaðarsýningunni á
Sauðárkróki og lummudögum.
Þá hefur félagið verið með
sölubíl við Laufskálarétt og
verið með sölubás á Landsmóti
hestamanna. „Og nú verðum
við með bás í fyrsta sinn á
Atvinnulífssýningunni. Svo
stefnum við á að vera með á
Landsmótinu í Reykjavík í
sumar,“ segir Helga.
Gallerí Alþýðulist verður
opnað í maí og verður það
opið eitthvað fram í september,
að sögn Helgu. Aðspurð um
hvernig hefur gengið hjá
félaginu svarar hún: „Síðast-
liðið ár gekk reksturinn ágæ-
tlega og verður vonandi það
vonandi einnig í sumar.“ /BÞ
Frá opnun Alþýðulistar í Varmahlíð síðastliðið sumar.