Feykir


Feykir - 24.04.2012, Page 17

Feykir - 24.04.2012, Page 17
16/2012 Feykir 17 ( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is Hvernig hefurðu það? Ég er ævinlega margblessuð. Hvernig nemandi varstu? Með fullkomnunaráráttu í náminu, en hugann til fjalla og úti í sveit. Hvað er eftirminnilegast frá fermingardeginum? Að Jesús kallinn er ósköp viðkunnanlegur og orð hans gott leiðarljós í lífinu. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Dýrasálfræðingur af vísindalegra taginu. Hvað hræðistu mest? Sprautur. Ég þoli ekki einu sinni að sjá sprautur í sjónvarpi. Hver er besta platan sem þú hefur keypt? Murder ballads með Nick Cave er í algeru uppáhaldi, líka allt íslenskt þungarokk, þjóðlög og ættjarðarlög. Semsagt, ég er mjög hrifin af krafti, bassatrommum og strigabassaröddum. Hvaða lag er líklegast að þú takir í Kareókí? Fjöllin hafa vakað í þúsund ár... eða Wild thing, you make my heart sing... Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu (fyrir utan fréttir)? Náttúrulífsþáttum og fræðsluþáttum af víðáttufjölbreyttu tagi. Besta bíómyndin? The Princess Bride - ógleymanlegt snilldarverk, bráðfyndin hrásteypa. Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu heimili? Laga tölvur sem eru þversum. Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu? Ég er alveg þjökunarlaus af snilligáfu í eldhúsinu. Hvað fer helst í innkaupakörfuna sem ekki er skrifað á tossamiðann? Ávextir af öllu tagi. Hvað er í morgunmatinn? Fyrst kaffi. Svo klukkutíma seinna meira kaffi, og gróffóður af einhverju tagi. Uppáhalds málsháttur? Öll él styttir upp um síðir. Hvaða teiknimyndapersóna höfðar mest til þín? Andrés önd og allt hans hyski, helst á dönsku. Hver er uppáhalds bókin þín? Þær eru svo ótal margar. Án Íslenskrar orðabókar eða Sýnisbókar íslenskra bókmennta til 1750 hans Sigurðar Nordal gæti ég þó vart á heilli mér tekið. Það er svo gaman að smjatta á bragðmiklum orðum. Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu... til Ástralíu. Ástralskar bíómyndir sýna heillandi veruleika, miklar víðáttur og frelsi, háskaleg veður, sérkennilega náttúru, stórskrítið fólk með ruddalegan húmor, sæluhrollvekjandi fagran framburð, skeggbrodda og svitalykt, og hesta. Hmmm... eitthvað svipað og dró mig til Skagafjarðar býst ég við. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu? Hvað ég sökkvi mér ofan í verkefni líðandi stundar - og steingleymi mér. Til allrar hamingju er ég umkringd góðu fólki sem hlær bara með mér þegar ég er hvað vitlausust. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Þegar fólk er sífellt að finna að háttalagi fólks í kringum sig, neikvætt fólk getur verið miklar vitsugur. Enski boltinn - hvaða lið og af hverju? Jæja, er ekki gott veður hjá þér? Hvaða íþróttamanni hefurðu mestar mætur á? Bjarni Jónasson, Mette Manseth og Þórarinn Eymundsson, hestaíþróttamenn sem fá það besta út úr hestunum með litla putta. Heim í Búðardal eða Diskó Friskó? Ef það er íslenskt, og hægt að þenja sig við að dansa eða syngja við lagið, þá hugnast mér hnoðið. Semsagt, gott báðum megin. Hver var mikilvægasta persóna 20. aldarinnar að þínu mati? Vigdís Finnbogadóttir. Hún sýndi okkur stelpunum að við gátum gert hvað sem við ætluðum okkur að gera - og það með myndugleik og virðuleika. Ef þú ættir að dvelja alein á eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu með þér? Rafbókalesara með nettengingu og handdrifnu hleðslutæki svo ég hefði nóg að lesa. Tjald. Gervihnattasíma, svo ég gæti hringt eftir hálfs árs notalegheit með sjálfri mér og látið sækja mig. Hver væri titillinn á ævisögu þinni? Mér hefur aldrei leiðst. Nafn: Arnþrúður Heimisdóttir (Lukka). Árgangur: 1971. Fjölskylduhagir: Hér eru í heimili bóndi minn Þorlákur Sigurbjörnsson, og synir okkar Orri Sigurbjörn og Heimir Sindri. Búseta: Langhúsum, Fljótum. Hverra manna ertu: Faðir minn heitinn er Heimir Steinsson, skólastjóri í Skálholti og prestur á Þingvöllum. Móðir mín er Dóra Þórhallsdóttir, hún var bústýra og þúsundþjalasmiður í Skálholti og Þingvöllum og vinnur nú við móttöku á RÚV. Starf / nám: Ég tók FT-prófið við Hólaskóla á sínum tíma, búvísundinn á Hvanneyri og kennararéttindin við KÍ. Þá tók lífið við og nú er ég bóndi og tamningamaður á Langhúsum og grunnskólakennari við Sólgarðaskóla. Bifreið: Nissan Navara. Hestöfl: Hahva... Nóg til að draga nokkur lifandi hestöfl á kerru, eða puðast gegnum ekta norðlenskan snjó. Jú svo eru líka fjölmörg lifandi hestöfl sem bolloka hér og þar í hesthúsi og beitarlandi Langhúsa. Hvað er í deiglunni: Að temja góða hesta, fræða ungu kynslóðina og njóta hverrar stundar hér á þessu jarðríki. Arnþrúður Alþýðulist – félag handverksfólks í Skagafirði Efla veg handverks og listiðnaðar í héraðinu Alþýðulist - félag handverksfólks í Skagafirði verður með bás á Atvinnu- lífssýningunni Lífsins gæði og gleði og ætla að kynna þar starfsemi sína og jafnframt verða þau með varning félagsmanna sinna þar til sölu. Feykir hafði samband við Helgu Þórðardóttur, gjaldkera félagsins, og spurði hana út í starfsemina. „Alþýðulist var stofnuð árið 1995 af nokkrum Skagfirð- ingum sem voru áhugsamir um handverk af öllu tagi,“ segir Helga. Markmið félagsins segir hún hafa verið að efla veg handverks og listiðnaðar í héraðinu, eins og stendur í lögum félagsins. Alþýðulist er með aðsetur í Gallerí Alþýðulist í Varmahlíð. „Það var mark- mið félagsins frá upphafi að koma á fót handverkssölu í Varmahlíð. Sú sala var rekin í nokkur ár í samvinnu við Upplýsingamiðstöð ferðamála en vorið 2011 tók félagið alfarið við rekstri sölunnar,“ útskýrir Helga en félagið leigir húsið sem kallað var Upplýsingamiðstöðin en gengur nú undir nafninu Gallerí Alþýðulist, sem fyrr segir. Félagar Alþýðulistar eru 72 talsins og eru þeir flestir að framleiða einhvers konar handverk. „Þeirra vörur eru uppistaðan í vörunum í Galleríi Alþýðulist en einnig eru teknar vörur í umboðssölu af öðrum,“ segir Helga. Félagið hefur tekið þátt í ýmsum viðburðum s.s. landbúnaðarsýningunni á Sauðárkróki og lummudögum. Þá hefur félagið verið með sölubíl við Laufskálarétt og verið með sölubás á Landsmóti hestamanna. „Og nú verðum við með bás í fyrsta sinn á Atvinnulífssýningunni. Svo stefnum við á að vera með á Landsmótinu í Reykjavík í sumar,“ segir Helga. Gallerí Alþýðulist verður opnað í maí og verður það opið eitthvað fram í september, að sögn Helgu. Aðspurð um hvernig hefur gengið hjá félaginu svarar hún: „Síðast- liðið ár gekk reksturinn ágæ- tlega og verður vonandi það vonandi einnig í sumar.“ /BÞ Frá opnun Alþýðulistar í Varmahlíð síðastliðið sumar.

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.