Feykir - 24.04.2012, Side 19
16/2012 Feykir 19
Mikligarður – Rússland
Vilja sjá
Norðurljósin
Gistiheimilið Mikligarður
stendur við Kirkjutorgið
á Sauðárkróki, byggt
árið 1931 af Sigurgeiri
Daníelssyni.
Húsið hefur alltaf verið kallað
Rússland og segir í Króksbók
Rótarýklúbbs Sauðárkróks
að einn af smiðum hússins
hafi verið Pétur Laxdal, faðir
Sigurjóns heitins, fyrrum
borgarfulltrúa í Reykjavík (faðir
Skjaldar í Herrafataverzlun
Kormáks & Skjaldar:). Pétur
sat í hreppsnefnd Sauðár-
krókshrepps, fyrsti sósíalistinn
á Íslandi til að ná kjöri í
hreppsnefnd. Nafn hússins
vísar trúlega til stærðar þess,
sem þótti mikil þegar það var
reist, og til stjórnmálaskoðana
Péturs. Selma Hjörvarsdóttir er
í forsvari fyrir Gistiheimilið og
Hótel Miklagarð.
-Rekstur gistiheimilisins
þessi fimm ár sem við höfum
rekið það hefur gengið mjög
vel og höfum við skapað
okkur gott orðspor. Á veturna
eigum við okkar fastakúnna
og stöðugur reytingur allan
veturinn þó minnst í desember
og janúar. Það svo sem hentar
ágætlega að hafa stundum
smá andrými þá því ekki tekur
maður frí á sumrin, segir
Selma.
-Við höfum orðið vör við
gífurlega mikla aukningu á
ferðamönnum í vetur sem eru
að sækjast í að sjá norðurljósin.
Til að sú ferðamennska geti
aukist eitthvað að ráði þarf að
hafa mjög góðar áætlanir um
mokstur og allt sem viðvíkur
færð. Það er kannski ekki mjög
gæfuríkt að ætla sér að hlaða
inn útlendingum á veturna
sem ekkert kunna að aka í
snjó, bílarnir misjafnlega vel
útbúnir og allra veðra von. Ég
held að við verðum að fara
mjög varlega í að auglýsa okkur
upp sem vetrarferðaland ef við
getum ekki örugglega staðið
við að fært sé á milli staða. Ég
vil samt ekki vera með neina
neikvæðni gagnvart þessu
heldur stíga létt til jarðar.
Mikligarður er ásamt
fleirum í Skagafirði í Air 66
klasanum sem vinnur að beinu
millilandaflugi til Akureyrar
allt árið með sérstaka áherslu á
ferðamenn utan háannatíma.
-Við höfum leigt heimavist
Fjölbrautaskólans nú í þrjú
ár og erum að byrja okkar
fjórða sumar. Við tókum við
Hótel Tindastóll hyggur á mikla stækkun
Ný herbergi
vígð í Sæluviku
Hótel Tindastóll á
merkilega sögu, ekki bara
á Sauðárkróki heldur
víðar í Skagafirði. Það
er upphaflega norskt
einingarhús, talið reist
um 1820 á Hofsósi. Seinna
var það tekið niður og
flutt í Grafarós árið 1833.
Árið 1884 var húsið enn
tekið niður og þá fleytt
yfir fjörðinn og byggt
þar sem það stendur nú á
Sauðárkróki. Það eru hjónin
Guðbjörg Ragnarsdóttir
og Ágúst Andrésson sem
standa að rekstri Hótels
Tindastóls.
Húsið hefur alltaf verið kallað
Rússland og segir í Króksbók
Rótarýklúbbs Sauðárkróks
að einn af smiðum hússins
hafi verið Pétur Laxdal, faðir
Sigurjóns heitins, fyrrum
borgarfulltrúa í Reykjavík (faðir
Skjaldar í Herrafataverzlun
Kormáks & Skjaldar:). Pétur
sat í hreppsnefnd Sauðár-
krókshrepps, fyrsti sósíalistinn
á Íslandi til að ná kjöri í
hreppsnefnd. Nafn hússins
vísar trúlega til stærðar þess,
sem þótti mikil þegar það var
reist, og til stjórnmálaskoðana
Péturs. Selma Hjörvarsdóttir er
í forsvari fyrir Gistiheimilið og
Hótel Miklagarð.
-Rekstur gistiheimilisins
þessi fimm ár sem við höfum
rekið það hefur gengið mjög
vel og höfum við skapað
okkur gott orðspor. Á veturna
eigum við okkar fastakúnna
og stöðugur reytingur allan
veturinn þó minnst í desember
og janúar. Það svo sem hentar
ágætlega að hafa stundum
smá andrými þá því ekki tekur
maður frí á sumrin, segir
Selma.
-Við höfum orðið vör við
gífurlega mikla aukningu á
ferðamönnum í vetur sem eru
að sækjast í að sjá norðurljósin.
Til að sú ferðamennska geti
aukist eitthvað að ráði þarf að
hafa mjög góðar áætlanir um
mokstur og allt sem viðvíkur
færð. Það er kannski ekki mjög
gæfuríkt að ætla sér að hlaða
inn útlendingum á veturna
sem ekkert kunna að aka í snjó,
bílarnir misjafnlega vel útbúnir
og allra veðra von. Ég held
að við verðum að fara mjög
varlega í að auglýsa okkur upp
sem vetrarferðaland ef við
getum ekki örugglega staðið
við að fært sé á milli staða. Ég
vil samt ekki vera með neina
neikvæðni gagnvart þessu
heldur stíga létt til jarðar.
Mikligarður er ásamt
fleirum í Skagafirði í Air 66
klasanum sem vinnur að beinu
millilandaflugi til Akureyrar
allt árið með sérstaka áherslu á
ferðamenn utan háannatíma.
-Við höfum leigt heimavist
Fjölbrautaskólans nú í þrjú
ár og erum að byrja okkar
fjórða sumar. Við tókum við
kyndlinum þegar Fosshótel
Áning hætti og eru starfsmenn
okkar hátt í 20 á sumrin.
Það skipti gífurlega miklu
máli að halda gistingu áfram
hér í heimavistinni því þetta
skilar bæjarfélaginu gífurlega
miklum tekjum og styrkir það.
Við höfum gert áframhaldandi
samning við skólann og
munum halda áfram að byggja
þetta upp í góðri samvinnu við
hann. Samstarfið við skólann
hefur alltaf gengið mjög vel
og höfum við fundið mikinn
velvilja frá öllum í okkar garð.
Í skólanum höfum við
gistirými fyrir 150 manns og
eru fáir staðir í nágrenninu
sem geta tekið jafn marga í
gistingu. Við höfum verið
að auka nýtinguna á hverju
ári en höfum samt borð fyrir
báru ennþá vegna okkar mikla
framboðs. /PF
Hótel Tindastóll í Lindargötu á Sauðárkróki, til vinstri er húsið Sólarborg.
kyndlinum þegar Fosshótel
Áning hætti og eru starfsmenn
okkar hátt í 20 á sumrin. Það
skipti gífurlega miklu máli
að halda gistingu áfram hér
í heimavistinni því þetta
skilar bæjarfélaginu gífurlega
miklum tekjum og styrkir það.
Við höfum gert áframhaldandi
samning við skólann og
munum halda áfram að byggja
þetta upp í góðri samvinnu við
hann. Samstarfið við skólann
hefur alltaf gengið mjög vel
og höfum við fundið mikinn
velvilja frá öllum í okkar garð.
Í skólanum höfum við
gistirými fyrir 150 manns og
eru fáir staðir í nágrenninu
sem geta tekið jafn marga í
gistingu. Við höfum verið
að auka nýtinguna á hverju
ári en höfum samt borð fyrir
báru ennþá vegna okkar mikla
framboðs. /PF
Gistiheimilið Mikligarður við Kirkjutorg á Sauðárkróki.