Feykir - 24.04.2012, Blaðsíða 22
22 Feykir 16/2012
Tveir tvöfaldir í Sæluviku
Fjörugur og fyndinn farsi
Leikfélag Sauðárkróks sýnir í
Sæluviku leikritið Tveir tvöfaldir
eftir Ray Cooney, í þýðingu Árna
Ibsen. Leikstjóri er Ingdrid
Jónsdóttir. Leikritið verður
frumsýnt á opnunardegi
Sæluvikunnar, þann 29. apríl
næstkomandi í félagsheimilinu
Bifröst. Sigurlaug Dóra
Ingimundardóttir er formaður LS.
„Tveir tvöfaldir er fjörugur, hraður,
skemmtilegur og fyndinn farsi eins og
flest allir farsar sem Ray Cooney hefur
skrifað. Um er að ræða farsa sem fjallar
um alþingismanninn Orm Karlsson
sem dvelur á hóteli með eiginkonu
sinni Pálínu meðan þingið er að
klárast. Eins og í öllum försum verður
talsverður misskilningur sem gerir
atburðarrásina töluvert flókna en
þrælskemmtilega því óhætt er að segja
að það fer ekki allt eins og það á að fara
hjá Ormi þann tíma sem hann dvelur á
hótelinu. Hreinn, Ástríður, Sjú-Lí,
Þrúður, Þórður, María og Fjóla
hótelstýra fléttast einnig inn í
atburðarásina þar sem sumir eru
hjálpsamir en aðrir gera allt til að gera
Ormi lífið erfiðara.“
Alls taka níu leikarar þátt í sýning-
unni en auk þeirra segir Sigurlaug að
hópur fólks vinni hörðum höndum á
bak við tjöldin. LS hefur sett upp tvær
sýningar á ári um nokkurt skeið og
segir hún það hafi gengið ótrúlega vel
að fá fólk til að starfa með leikfélaginu.
„LS er ríkt af áhugasömu og duglegu
fólki sem hefur áhuga á leiklist og
skemmtilegum félagskap. Þetta fólk er
líka tilbúið að fórna tíma sínum og á
þolinmóðar fjölskyldur. Auðvitað
kemur það stundum upp að það þarf
aðeins að hafa fyrir hlutunum og leita
að fólki og oft fer leikritaval líka eftir
því hvað margir gefa kost á sér hverju
Málverkasýning í Safnahúsinu í Sæluviku
Húmorinn aldrei
langt undan
Sossa, eða Margrét Soffía
Björnsdóttir, verður með
málverkasýningu í Safnahúsi
Skagfirðinga á sunnudeginum kl. 17
í Sæluviku. Um er að ræða
samsýningu undir yfirskriftinni
„Stefnumót á Krók,“ en þar munu
hún og Tolli leiða saman hesta sína í
fyrsta sinn á Íslandi, en þau hafa
áður sýnt saman í Danmörku. Þegar
blaðamaður Feykis náði tali af Sossu
var hún í óða önn að ganga frá
myndum fyrir sýninguna.
„Ég var að opna sýningu í Kaup-
mannahöfn um helgina, en stoppaði
stutt í þetta skiptið til að geta undirbúið
sýninguna á Sæluvikunni,“ segir Sossa.
„Þá tók ég með mér heim verk sem ég
var búin vinna í Kaupmannahöfn
vegna sýningarinnar.“ Sossa kemur á
Sauðárkrók daginn fyrir sýningu og
segist vera spennt yfir því að snúa aftur
á Krókinn, þar sem hún bjó í tíu mjög
góð ár, eins og hún lýsir því sjálf. „Það
verður gaman að koma og rifja upp
gamla tíma. Ég á sterkar rætur á
Krókinn og marga góða vini, ég á því
von á skemmtilegum endurfundum.“
Sossa flutti á Sauðárkrók frá Dan-
mörku árið 1984 ásamt eiginmanni
sínum, Ólafi Jóni Arnbjörnssyni og
tveimur börnum þeirra. Ólafur gegndi
hlutverki aðstoðarskólameistara við
Fjölbrautaskólann og Sossa starfaði
sjálf sem kennari á nánast öllum skóla-
stigum, nema kannski í leikskólanum,
bætir hún við „Ég kenndi dönsku og
myndmennt í grunnskólanum, svo
kenndi ég líka í Fjölbraut og var oft
með námskeið. Annars var það bara að
vinna að listinni í gömlu Gránu“. Það
er því ekki ólíklegt að nokkrir gamlir
nemendur Sossu verði á meðal
sýningargesta á Sæluvikunni. Sossa
var firðinum ekki ókunnug áður en
hún settist þar að því pabbi hennar sr.
Björn Jónsson var Skagfirðingur og
eyddi Sossa gjarnan sumrum í sveit á
Grænumýri í Blönduhlíð þegar hún
var stelpa.
Bakgrunnurinn að forgrunni
Sossa segir listhneigðina alltaf hafa
blundað í henni en fyrsta sem hún á
eftir sig er frá því hún var 5 ára gömul
og hún hefur verið að mála allar götur
síðan. Sossa segist sækja innblástur úr
öllum áttum. „Ég er mjög upptekin af
fólki, við hinar ýmsu athafnir. Smátt og
smátt hef ég þó verið að færa mig út í
landslag,“ útskýrir Sossa. „Ég málaði
oft fígúrur í landslagi og það má segja
að bakgrunnurinn hafi meira og meira
orðið að forgrunni þegar fram liðu
stundir,“ segir hún og hlær. „Ég er samt
mikið að mála konurnar og vini mína
– sennilega eru þessar konur allar
sjálfsmyndir. Ég vil gjarnan hafa
húmor í myndunum mínum og það
má alveg hlægja að þeim. Það er alveg
nóg af alvarleika í heiminum.“ Eftir
nám við Myndlistaskólann gamla
lærði Sossa grafík í Kaupmannahöfn á
árunum 1979-1984, en eftir að hafa
lokið meistaranámi í málun, í Ameríku
árið 1990, hefur hún helgað sig olíunni
og einkennast myndir hennar af mikilli
litagleði.
Sossa er með vinnustofu bæði á
æskuslóðum sínum í Keflavík og í
Kaupmannahöfn og vinnur jöfnum
höndum hér og í Danmörku. „Ég sýni
orðið svo mikið þar úti að það var
orðið skynsamlegt að koma mér upp
vinnustofu þar. Svo er þetta svo mikið
batterí að flytja myndir á milli landa.
Ég hef verið að sýna hjá sama galleríinu
í Kaupmannahöfn frá 1993 og sýni þar
árlega. Þar fyrir utan er ég með 3-4
sýningar í Danmörku.“ Sossa segist
hafa sýnt lítið hér á landi síðustu árin.
„Þetta er í raun fyrsta sýning mín á
Íslandi í mörg ár. Ég var reyndar með
eina litla sýningu hjá Jónasi Viðar á
Akureyri árið 2009 og svo opna ég
vinnustofu mína í Keflavík einu sinni á
ári, en það er ekki eiginleg sýning.“
Sossa segist hlakka mikið til
sýningarinnar með góðvini sínum
Tolla. „Við eigum mjög vel saman en
erum svo ólík í því sem við erum að
gera. Þetta verður mjög spennandi
samsetning,“ segir hún í lokin. /BÞ
sinni,“ segir Sigurlaug og bætir við að
leikhópurinn bíði spenntur eftir að
ennþá meira líf myndist í Bifröst.
„Við bíðum spennt eftir að salurinn
fyllist af fólki og að við getum deilt
afrakstri sex vikna vinnutímabili með
ykkur áhorfandi góður. Bestu þakkir
færi ég til leikstjóra og leikhópsins
fyrir skemmtilegt leiktímabil. Fjöl-
skyldur leikhópsins fá þakkir fyrir
þolinmæði á meðan á leiktímabilinu
stendur, styrktaraðilar fyrir stuðning-
inn og þú áhorfandi góður fyrir að
vera þátttakandi í að hægt sé að halda
uppi góðu leiklistarlífi í firðinum.
Sjáumst á Tveir tvöfaldir í Bifröst.“ /PF
Sossa. Mynd: Oddgeir Karlsson
Leikhópur Leikfélags Sauðárkróks vorið 2012. Mynd: Siva