Feykir - 16.05.2012, Page 11
19/2012 Feykir 11
Feykir spyr...
Hvað er
skemmtilegast
í frímínútunum?
[ spurt Sólgarðaskóla
í Fljótum ]
MIKAEL JENS
HALLDÓRSSON
-Að leika við alla vini mína
og vera í rólunni.
AXEL GARÐARSSON
-Vera í fótbolta finnst mér
skemmtilegast.
REYNIR GUNNLAUGSSON
-Vera úti í fótbolta.
ORRI SIGURBJÖRN
ÞORLÁKSSON
-Vera úti í rólu og leika
mér í sandkassanum.
Fe
yk
ile
g
a
f
lo
tt
a
af
þr
e
yi
ng
ar
ho
rn
ið
Já
, r
ey
nd
u
þi
g
vi
ð
þe
tt
a!
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautina
er bestur!
Spakmæli vikunnar
Sá er ekki ríkur, sem mikið á, heldur hinn sem
lætur sér nægja. – Jón Vídalín
Þóranna Jómaría efast um að henni verði bjargað frá
pipri. Neyðarkallar björgunarsveitanna hafa þó verið
henni nokkur huggun.
Hinrik Már Jónsson
Örlaga örsögur
Ótrúlegt
(en kannski satt)
Merkilegt nokk að meðal manneskja er um
fjórðungur af tommu hærri á nóttunni eða rúmir
6 millimetrar en hún er yfir daginn. Þá er ekki
síður merkilegt að vita til þess að úði hnerra fer á
yfir 600 mílna hraða á klukkustund út úr munni
þínum en það samsvarar 966 km/klst.
Sudoku
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR ) b rglindth@feykir.is
Margrét og Jón Aðalsteinn kokka
Kryddvöndurinn
er aðalatriðið
Matgæðingar vikunnar að þessu sinni eru biskups-
hjónin á Hólum, sr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson og
Margrét Sigtryggsdóttir. Þau skora á Sigurbjörgu B.
Ólafsdóttur og Gunnar Óskarsson, starfsmenn
Hólaskóla, að koma með næstu uppskrift.
„Þessi réttur er úr mikið notaðri matreiðslubók frá 1978,
keyptri í Skotlandi á námsárinu þar, og heitir The Slimming
Cook Book. Hún gerir ráð fyrir að magnið nægi fyrir fjóra
enda er þetta megrunarréttur! Hinsvegar er eftirmaturinn
engin megrunarfæða en kosturinn er að engum sykri er bætt
í.“
AÐALRÉTTUR
Kjúklingapottréttur
með kryddjurtum
1.5 kg kjúklingur, tekinn í
4 parta (eða kjúklingabitar
með beini)
15 g smjör
100 g beikon, skorið í bita
100 g sveppir, skornir í 2-4 bita
eftir stærð
12 litlir skarlottulaukar
300 ml kjúklingasoð
safi úr hálfri sítrónu
kryddvöndur (bouquet garni)
AÐFERÐ Brúnið kjúklinga-
bitana vel í smjörinu á
pönnu og setjið í eldfast mót.
Afhýðið laukinn (best er að
láta hann liggja í sjóðheitu
vatni smástund fyrst). Steikið
sveppi, lauk og beikon 4-5
mín. og setjið í mótið.
Hellið kjúklingasoði og
sítrónusafa á pönnuna og
látið sjóða smástund til að ná
öllu bragðinu með og bætið í
mótið, ásamt kryddvendi og
lokið. Látið malla í 160°C
heitum ofni í 1 klst.
Kryddvöndur:
1 lárviðarlauf
3 greinar steinselja
3 greinar timian
2 greinar rósmarín
AÐFERÐ Kryddvöndurinn
er aðalatriðið. Bindið
saman eða setjið í grisju
sem auðvelt er að fjarlægja
áður en rétturinn er borinn
á borð. Sumar verslanir
selja þurrkaðan Bouquet
garni í grisjum (yfirleitt í
litlum pökkum undir því
nafni). Mæli með 2 stk í eina
uppskrift.
Berið fram með hrís-
grjónum og / eða brauði.
EFTIRRÉTTUR
Auðveld
súkkulaðimús
150 gr 70% suðusúkkulaði
¼ l rjóma, linþeyttur
AÐFERÐ Bætið bráðnuðu
suðusúkkulaði saman við
linþeytta rjómann og látið
stífna í litlum glösum eða
skálum. Skreytt að vild.
Verði ykkur að góðu!