Feykir - 05.07.2012, Page 8
8 Feykir 26/2012
Ferðasaga Kristrúnar Kristjánsdóttur
frá Melstað í Miðfirði
Með penna
í farteskinu VIII
Kristrún Kristjánsdóttir fór í heimsreisu
ásamt vinkonu sinni Lóu Dís Másdóttur.
Undanfarnar vikur hefur hún deilt
upplifun sinni af ævintýrum þeirra á
leiðinni austur á bóginn. Ferðalagið
hófst þann 15. febrúar með stuttu stoppi
í Kaupmannahöfn, þaðan var haldið til
Dubai, svo til Balí, Kuala Lumpur, Ha noi
höfuðborg Víetnam og nú eru þær komnar
til Sapa, í Norðvestur Víetnam.
- - - -
20. mars vöknuðum við dálítið gegnsæjar.
Morgunmaturinn var þó frábær eins og flest
sem Hví eldaði en við fengum
pönnsur, banana, síróp og
condensed milk og þetta
var alveg dýrindis. Okkur
þótti ótrúlegt hvað þau voru
ótrúlega góð að elda yfir
opnum eldi á svona gamaldags
eldstæðum.
Þá var kominn tími til
að kveðja fjölskylduna og
yndislega ástralska parið. Við
komumst fljótt að því að því
að Hví hafði ekki sagt rétt frá deginum áður
því gangan var sú erfiðasta sem við höfum
upplifað. Við gengum upp endalaust og þegar
ég segi upp þá meina ég í 70° halla, sem var
heldur betur erfitt, þar sem þetta var nokkurs
konar moldarslóði og Hví stoppaði aldrei. Við
vildum auðvitað ekki láta líta út fyrir að við
værum að deyja úr þreytu, sem og við vorum,
þess vegna þóttumst við alltaf öðru hverju
verða að taka myndir af umhverfinu. Loksins,
okkur til ómældrar gleði stoppuðum við til að
fá okkur hádegismat. Við fengum samlokur
sem Hví skar og smurði þrátt fyrir að við
sögðumst geta það sjálfar og þvílíkan tíma
sem það tók, en að lokum komst þetta í okkar
hendur og við borðuðum eins og við hefðum
ekki séð mat í viku.
Áfram hélt svo gangan upp upp upp
þangað til við komum að hliði þar sem þurfti
að sýna leyfi til að komast inn í þjóðgarðinn
en þar er engum Frökkum hleypt í gegn, eða
okkur skildist það á Hví. Okkar elskulegur
Hví gleymdi leyfinu á síðasta náttstað svo við
urðum að bíða þarna í um tvo tíma, ásamt
klikkuðum hundum og hvolpum. Loksins kom
vingjarnlegur, tannlaus maður á mótorhjóli
með leyfið og ferðin hélt áfram. Við komumst
því miður ekki á leiðarenda þennan daginn og
þess vegna stoppuðum við hjá mjög fátæklegu
húsi. Þetta var í rauninni meira eins og kofi
heldur en hús, það höfðu verið reknir niður
fjórir staurar í ferhyrning og
blár plastpoki strengdur á milli
þeirra og yfir sem þak. Þessi
tjaldkofi var varla nema 3x5
metrar, þarna var moldargólf,
rúm fyrir um 5 manneskjur, og
matarborð. Það voru göt út um
allt á þessum kofa og rusl og dót
út um allt gólf. Við trúðum ekki
að nokkur manneskja gæti lifað
svona og þegar Hví spurði okkur
hvort við vildum frekar sofa inni
eða úti í tjaldi vorum við ekki lengi að velja
tjaldið. Við vorum dauðþreyttar eftir göngu
dagsins og langaði ekkert frekar en að baða
okkur, svo bóndinn á bænum fór með okkur
í klukkustundar göngu í gegnum skóginn þar
til við komum loks að á sem var dásamleg og
þarna böðuðum við af okkur mesta skítinn og
létum þreytuna líða úr fótunum í svölu vatninu.
Að loknum kvöldmat fórum við í tjaldið
okkar sem var tjaldað á steinagrasi án dýnu
og þegar við lögðumst niður gátum við ekki
annað en saknað mjúka mosans heima, þetta
var heldur óþægilegt sem sagt en við sofnuðum
þó að lokum útfrá svæfandi rigningunni.
Kristrún Kristjánsdóttir
skrifar
~
„Þetta var í rauninni
meira eins og kofi
heldur en hús, það höfðu
verið reknir niður fjórir
staurar í ferhyrning og
blár plastpoki strengdur
á milli þeirra og yfir
sem þak.“
Í þessari baráttu hefur utan-
ríkis- og innanríkisráðuneyti
Íslands bæði komið að því
að aðstoða þau í málinu en
þau geta lítið beitt sér meðan
málið er ennþá í dómskerfinu
úti. Einnig stendur Íslensk
ættleiðing þétt við bakið á þeim
sem og margir þeir sem hafa
haft samband við þau og boðið
fram aðstoð sína.
Allar fjárhagsáætlanir þeirra
Friðriks og Bjarnhildar eru
skiljanlega komnar úr skorðum
og óljóst hvernig þær munu líta
út á næstu mánuðum. Þau voru
undirbúin fjárhagslega til að fara
í „venjulega“ ættleiðingarferð
sem kostar 2,5 – 3 milljónir og
hefði átt að taka um sex vikur
en þetta hefur farið langt fram
úr því þar sem þau hafa dvalið
í landinu í 28 vikur. Að þeirra
sögn er mjög dýrt að lifa þar
sem þau eru, leiguverð er hátt
og allur annar kostnaður. Sem
dæmi um slíkan kostnað þá
kostaði þau 230 þúsund krónur
að endurnýja vegabréfsáritun
þeirra í landinu og segjast þau
hafa í raun verið heppin að þau
voru ekki send heim til að sækja
um áritunina þaðan. Það er
svipað dýrt að kaupa í matinn
þarna úti eins og á Íslandi og svo
er auðvitað mjög dýrt að reka
tvö heimili í marga mánuði.
„Við erum mjög heppin að
fjölskylda okkar og vinir eru
búin að setja af stað söfnun
fyrir okkur heima til að
aðstoða okkur með fjárhaginn.
Við reynum bara að taka einn
dag í einu og vonum að þetta
reddist allt einhvern veginn“,
segja þau bjartsýn á framtíðina.
„Við erum óendanlega þakk-
lát öllum heima á Íslandi
fyrir fjárhagsstuðningin, já-
kvæðu straumana og fallegu
kveðjurnar sem við höfum
fengið frá ykkur, þau eru svo
sannarlega ljós í myrkrinu“
segir Bjarnhildur en margir
sem hafa lagt hönd á plóg
enda þörfin ærin. „Aldrei
hefði okkur grunað að það yrði
heill útvarpsþáttur tileinkaður
okkur og viljum við koma því
á framfæri að „Virkir morgnar“
er klárlega besti útvarpsþáttur
landsins og þótt víðar væri
leitað“.
Loforð sem staðið
verður við
Þau segja að það hafi verið mjög
skrítið að sjá fréttir og myndir
af þeim í öllum fjölmiðlum á
Íslandi seinustu vikur en þeir
sem þekkja þau Friðriki og
Bjarnhildi vita að þau eru lítið
fyrir að vera í sviðsljósinu.
„En nú er staðan þannig að
við getum ekki verið annað en
ánægð með þá umfjöllun sem
okkar mál er að fá því staða
okkar sem fjölskylda er í mikilli
hættu, og viljum við leita allra
leiða til að geta verið áfram
saman. Það eina sem skiptir
okkur máli er að geta verið
hérna úti hjá litlu englunum
okkar“, segja þau og greinilegt
að allt er gefið í það að málið fái
farsælan endi.
„Við erum búin að lofa
dætrum okkar á hverjum
degi frá 20. desember að við
munum alltaf vera fjölskylda.
Við segjum við þær á hverju
kvöldi áður en þær fara að
sofa; Pabbi, Mamma, Helga
og Birna eru fjölskylda. Við
verðum alltaf alltaf saman
og Mamma og Pabbi elska
Helgu og Birnu alla leiðina til
tunglsins og tilbaka. Þær tala
um það á hverjum degi að
þær eigi heima á Íslandi, tala
um fjölskylduna sína þar og
dótið sem bíður þeirra heima
á Íslandi. Vonandi þurfum við
ekki að brjóta loforðin sem við
höfum gefið þeim“.
Stofnuð hefur verið styrktarsíða á
Fésbókinni (Föst í Kólumbíu - Friðrik,
Bjarnhildur, Helga Karólína og Birna
Salóme) til að veita fjölskyldunni stuðning
og reikningur stofnaður til styrktar þeim:
0160-15–380170, Kt: 161278-4599.
Helga og Birna fylgdust vel með hjólreiðatúr þeirra Andra Freys og Gunnu Dísar á Rás2.
Sapa buffalóar.