Feykir - 26.07.2012, Qupperneq 2
2 Feykir 29/2012
Útgefandi: Nýprent ehf. Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Box 4, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson – palli@feykir.is & 455 7176, 861 9842
Blaðamenn:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglindth@feykir.is & 694 9199
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Lausapenni: Örn Þórarinsson.
Áskriftarverð: 350 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 390 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
Sveitarfélagið Skagafjörður
Starfssviðum verður
fækkað úr sjö í þrjú
Á öðrum fundi núverandi
sveitarstjórnar Sveitarfélagsins
Skagafjarðar sumarið 2010 var
rædd brýn þörf á að fara í
heildarendurskipulagningu og
markvissa endurskoðun á
rekstri Sveitarfélagsins. Í árs-
byrjun 2011 hófst vinna við
skoðun á rekstri Sveitarfél-
agsins og haustið 2011 var
samið við rekstrarráðgjafann
Harald Líndal Haraldsson um
heildstæða rekstrarúttekt sem
hann hefur nú skilað af sér. Í
framhaldi af þeirri úttekt og
vegna 64.gr sveitarstjórnarlaga
nr. 138/2011 um að samanlögð
heildarútgjöld vegna A og
B-hluta í reikningsskilum
sveitarfélaga megi ekki vera
hærri á hverju þriggja ára
tímabili en sem nemur saman-
lögðum reglulegum tekjum.
Bæði er um almennar að-
gerðir að ræða sem og breyt-
ingar á skipuriti sveitarfél-
agsins. Einn liður í þessum
aðgerðum er að ná niður
launakostnaði og er eitt af
markmiðunum að hann verði
orðinn um 57% af heildar-
tekjum árið 2014 en er í dag
um 65,9% af heildartekjum,
sem er óviðunandi. Helstu
breytingar eru þær að sviðum
verður fækkað úr sjö í þrjú, en
þau verða fjármála- og stjórn-
sýslusvið, veitu- og fram-
Það linnir ekki stórmót-
unum á Vindheimamelunum
því Fákaflug 2012 verður
haldið þar dagana 3.- 5.
ágúst nk.
Keppt verður í A-flokki,
B-flokki, ungmennaflokki,
unglingaflokki, barnaflokki,
100m, 150m og 250m skeiði
(rafrænar tímatökur í öllum
greinum) og tölti. Sérstök
forkeppni, 2-3 inná í einu.
Mótið hefst seinnipart
föstudagsins á forkeppni í tölti
og keppni í skeiði. /PF
Skagafjörður
Fákaflug um versl-
unarmannhelgina
Friðrik og Bjarnhildur gætu þurft að dvelja í Kólumbíu í nokkra mánuði í viðbót áður en úrskurður
hæstaréttar liggur fyrir.
kvæmdasvið og fjölskyldusvið.
Rekstrarformi Skagafjarðar-
veitna ehf. verður breytt og
verður það með sama hætti og
aðrar B-hluta stofnanir sveit-
arfélagsins. Sameining verður
á Skagafjarðarveitum, þjón-
ustumiðstöð (áhaldahúsi) og
eignasjóði. Einnig mun mark-
aðs- og þróunarsvið verða
sameinað fjármála- og stjórn-
sýslusviði. Atvinnu- og ferða-
málanefnd og menningar-og
kynningarnefnd verða sam-
einaðar í eina nefnd.
Nýtt stjórnskipulag mun
taka gildi 1. september nk. og
kallar hluti þessara breytinga á
breytingar á samþykktum
sveitarfélagsins í samræmi við
lög. Stefnt er að kynningafundi
fyrir íbúa sveitarfélagsins í
byrjun september nk. þegar
sem flestir verða komnir úr
sumarleyfum.
Stefán Vagn Stefánsson
formaður byggðarráðs segir að
ekki verði farið í beinar
uppsagnir hjá sveitarfélaginu,
heldur farin sú leið að lækka
fasta- og óreglulega yfirvinnu
og að ráða ekki í þær stöður
sem losna sé það möguleiki. Sú
leið hafi þótt mildust. „Þetta er
það sem lagt var upp með og er
verkefni sem þarf að leysa, að
ná niður launakostnaði Sveit-
arfélagsins. Þegar er farið að
vinna eftir tillögunum t.d. með
sameiningu bekkjadeilda í
skólum héraðsins sem og að
unnið er að því að leikskólar á
Hofsósi og Varmahlíð munu
deila sama húsnæði og grunn-
skólar staðanna,“ segir Stefán.
/PF
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar hefur ákveðið í
umboði sveitarstjórnar, að fara í hagræðingaraðgerðir og
stjórnskipulagsbreytingar sem kynntar voru á fundi ráðsins
í síðustu viku. Tillögurnar hafa verið kynntar öðrum
sveitarstjórnarfulltrúum sem allir hafi lýst sig fylgjandi
breytingunum.
Séð yfir Sauðárkrók og inn Skagafjörð.
RÚV greindi frá því í síðustu
viku að vera kunni að gerð
hollenskrar heimildar-
myndar um ættleiðingar frá
Kólumbíu hafi valdið því að
ættleiðingarmáli þeirra
Bjarnhildar Hrannar
Níelsdóttur og Friðriks
Kristinssonar var vísað til
hæstaréttar þar í landi.
Eins og Feykir hefur greint
frá hafa þau Friðrik og
Bjarnhildur beðið í hálft ár
eftir úrskurði dómara vegna
ættleiðingar þeirra Birnu
Salóme og Helgu Karólínu.
Kristinn Ingvason fram-
kvæmdastjóri Íslenskrar ætt-
leiðingar sagði í viðtali við
Morgunútvarpið á Rás 2 að í
kjölfar sýningar þessarar
myndar hafi öll ættleiðingarmál
verið tekin til endurskoðunar
og fyrir vikið hafi öll mál tafist.
Kristinn sagði að þegar
þessi meinta heimildarmynd
væri skoðuð þá stendur ekki
steinn yfir steini og hún
hreinlega fölsuð sem hefur
slæm áhrif á þann viðkvæma
málaflokk sem ættleiðingar
eru. /PF
Föst í Kólumbíu
Hollensk heimildarmynd
truflar ættleiðingu
Grettishátíðin 2012 verður
haldin dagana 27.-29. júlí
nk. í Grettisbóli á Laugar-
bakka og að hluta til á
Hvammstanga í tengslum
við unglistarhátíðina Eldur í
Húnaþingi.
Bogar og bogfimi verða
verða aðalsmerki föstudagsins
þar sem meðferð boga verður
kennd og hugað að bogasmíði.
Dagskrá Grettishátíðar-
innar í ár er sem fyrr spenn-
andi fyrir alla fjölskyldumeð-
limi en hana er hægt að nálgast
á Norðanátt.is. /PF
Grettishátíðin á Laugarbakka
Hefst á föstudaginn
Selatalningin mikla var
haldin á vegum Selasetur
Íslands þann 22. júlí sl.
Talningin hefur farið fram
árlega síðan árið 2007 og
var þetta því sjötta
talningin.
Markmið talningarinnar er
að fylgjast með fjölda og
staðsetningu landsela í
kringum Vatnsnes og Hegg-
staðanes, ásamt því að gefa
almenningi tækifæri á að
kynnast og taka þátt í rann-
sóknarstarfsemi Selaseturs
Íslands.
Selir voru taldir á allri
strandlengjunni á Vatnsnesi og
Heggstaðanesi í Húnaþingi
vestra, en það eru samtals um
100km. Fjörtíu manns tóku
þátt í talningunni og fóru
talningarmenn gangandi, ríð-
andi eða á báti. Talningin
byggir algjörlega á þátttöku
sjálfboðaliða, en með þessu
móti gefst færi á að kanna stórt
svæði á mjög stuttum tíma.
Í ár sáust samtals 614 selir á
svæðinu. Það eru mun færri
selir en hafa sést undanfarin ár
en segir ekki til um ástand
landsselsstofns í heild. Stofn-
stærðarmat á landsel hefur
farið fram reglulega síðan árið
1980 og þá hefur verið talið um
land allt úr flugvél. Niðurstöður
þeirra talninga benda til þess
að landselstofninn hafi staðið í
stað síðan árið 2003 og sé
tæplega 12 þúsund dýr. /PF
Niðurstöður frá Selatalningunni miklu 2012
Mun færri selir en í
síðustu talningum
Stækkun í Stekkjarvík
Tvö tilboð
Í vikunni voru opnuð tilboð
í stækkun urðunarhólfs í
Stekkjarvík en tvö tilboð
bárust í verkið. Húni.is
segir frá því að Ingileifur
Jónsson hafi boðið rúmar
36,6 milljónir króna í
verkið og Skagfirskir
verktakar ehf. 36,8
milljónir króna.
Kostnaðaráætlun var upp
á rúmar 25,8 milljónir króna
en bæði tilboðin fóru vel yfir
þau mörk eða um 42%.
Samkvæmt Húna.is er verkið
fólgið í stækkun urðunarhólfs
í Stekkjarvík til að gera
mögulegt að taka við slátur-
úrgangi og öðrum lífrænum
úrgangi til urðunar. Um er
að ræða gröft og tilfærslu
35.000 rúmmetra jarðefna
og mótun á sérstöku urð-
unarhólfi ásamt frágangi
siturlagna. /PF