Feykir - 27.09.2012, Blaðsíða 1
fff
BLS. 6-7
BLS. 11
Kristján Gíslason söngvari
svarar í Tón-lystinni
Raular eitthvað
úr Vesalingunum
BLS. 4
Opnuviðtal Feykis er við
Pál Pálsson veitustjóra hjá
Skagafjarðarveitum
Farsælu
starfi lokið
Sigríður og Stefán eru
matgæðingar vikunnar
Fljótlegur svart-
fugl og agalega
góð desertsósa
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
36
TBL
27. september 2012
32. árgangur : Stofnað 1981
Skruðningar og skriðufall í Móafellshyrnu
Skriða í stærri kantinum
Stór skriða féll úr Móafells-
hyrnu, í Fljótum klukkan
12:30 fimmtudaginn 20.
september. Skriðan átti
upptök sín ofarlega í
fjallinu í minni Móafellsdals
að austanverðu. Að sögn
heimamanna á Þrasastöð-
um urðu þau vör við mikla
skruðninga úr fjallinu um
klukkan 12:30 og sáu
rykmökk stíga upp ofarlega
í fjallinu.
Skruðningar og hrun
héldu síðan áfram í allt að
einn og hálfan tíma eftir að
þau urðu fyrst vör við skrið-
una. Að sögn Dr. Þorsteins
Sæmundssonar forstöðu-
manns Náttúrustofu Norð-
KJARNANUM HESTEYRI 2 SAUÐÁRKRÓKI & 455 9200
G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N
Hér er ný, sneggri
MacBook Air
Jíha!
GoPro er leiðandi merki í heiminum
á sviði myndavéla sem nota má
við alls konar íþróttir eða jaðarsport
og í raun allt sem mönnum
dettur í hug að gera.
Eyrarlandi 1 530 Hvammstanga
Sími: 451 2230 / 894 0969 Fax: 451 2890
Netfang: bilbu@simnet.is
BÍLA- & BÚVÉLASALAN
Skriðan hefur verið allstór en engd hennar er rúmur kílómetri. Myndir: Þorsteinn Sæmundsson
urlands vestra sem fór að
skoða ummerki skriðunnar,
er skriðan í stærri kantinum
og ákaflega áberandi í
snjóhvítum hlíðum fjallsins.
Upptök skriðunnar eru í
klettabelti ofarlega í fjallinu,
en þar hefur hluti kletta-
beltisins fallið niður á lítinn
hjalla og steypst fram af
honum og niður hlíð
fjallsins. Skriðan endaði
niður við Galtará en náði þó
ekki að stífla hana.
Um orsakir fyrir skriðu-
fallinu segir Þorsteinn að
líklega hefur skjálftavirknin
úti fyrir norðurlandi undan-
farna daga og sú mikla
úrkoma sem fallið hefur
verið megin orsakavaldur
hrunsins. Snarpur jarð-
skjálftakippur hafi orðið um
klukkan 9 um morguninn og
fundu ábúendur á Þrasa-
stöðum fyrir honum.
Þorsteinn vill beina þeim
tilmælum til þeirra sem ætla
sér að skoða skriðuna að vera
alls ekki á ferð undir skriðu-
örinu því búast megi við því
að það hrynji meira úr því. /PFNærmynd af Móafellshyrnu.