Feykir - 18.10.2012, Side 2
2 Feykir 39/2012
Útgefandi: Nýprent ehf. Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Box 4, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson – palli@feykir.is & 455 7176, 861 9842
Blaðamenn:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglindth@feykir.is & 694 9199
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Lausapenni: Örn Þórarinsson.
Áskriftarverð: 350 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 390 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
Fundur um Blöndulínu 3
Fólk hvatt til að mæta
Upplýsinga- og
umræðufundur um stöðu
mála varðandi forsendur,
skipulag,
umhverfismat og
leyfisveitingar vegna
Blöndulínu 3 (220kV) verður
haldinn meðal íbúa,
landeigenda,
sveitarstjórnarmanna í
Hörgársveit laugardaginn 20.
október 2012 kl. 10:00-
14:00 í veitingahúsinu
Engimýri í Öxnadal.
Í tilkynningu um málið segir
að allir sem vilji kynna sér málin
séu velkomnir meðan húsrúm
leyfir og eru Skagfirðingar og
Húnvetningar sem eitthvað um
málið hafi að segja hvattir til að
mæta enda um sameiginlegt
hagsmunamál að ræða. /PF
Lengjubikarinn í körfu
Góður sigur
á Fjölni
Fjölnir heimsótti Tindastól í
Síkið sl. sunnudagskvöld
og var viðureignin hluti af
Lengju-bikarnum, sem líkt
og í fyrra hefst með
riðlakeppni. Auk Tindastóls
og Fjölnis eru lið
Stjörnunnar og Breiðabliks
í riðlinum. Fjölnir höfðu
byrjað vel í Dominos-
deildinni en þeir urðu að
sætta sig við tap gegn
spræku Tindastólsliði.
Leikurinn var jafn fram í
miðjan fyrsta leikhluta en þá
náðu Stólarnir að skella í lás í
vörninni og héldu forystu allt
til leiksloka. Lokatölur 79-66.
Fremstur í flokki hjá
heimamönnum var
fyrirliðinn Helgi Rafn sem
gerði 20 stig og hirti aum (!)
17 fráköst. Stólarnir
fráköstuðu eins og vitlausir
menn í kvöld, hirtu 55 i
heildina, þar á meðal 23
sóknarfráköst, á meðan
gestirnir tóku 36 alls. búsett á
Sauðárkróki. /ÓAB
Refa- og minkaveiðar voru
til umræðu á fundi
Landbúnaðarnefndar Svf.
Skagafjarðar sl. föstudag
og var farið yfir veiðitölur
fyrir árið 2012, en alls
hafa 339 refir veiðst á
árinu og 133 minkar.
Þar kom fram að nefndar-
menn voru sammála um að
refur sé að fjölga sér og ný
greni eru að finnast nær
byggð en áður. Þykir mjög
nauðsynlegt að fá aukið
fjármagn í málaflokkinn og
áskorun beint til ríkisins að
auka aftur fjármagn en
undanfarin ár hefur verið
stöðugt minna fjármagn frá
ríkinu í þessa veiði og alls
ekkert til refaveiðinnar. /BÞ
Fjölgun refa
Greni finnast
nær byggð
Smá í Feyki ::
Síminn er 455 7171
Hálmur til sölu
Búnaðarfélag Svínavatnshrepps
hefur til sölu vel verkaðan hálm.
Stærð rúlla 135cm. Hálmurinn
er á kornökrum félagsins á
Torfalæk. Verð á rúllu er
kr. 3000-, án vsk og er miðað
við að hann sé tekinn sem fyrst.
Uppl. gefur Sigurbjörg í síma
452 7128 eða 618 3263 og Jón í
síma 452 7133 eða 868 3750.
Húnaþing vestra
Högnasafnið komið upp
Í síðastliðnum ágúst voru
Högnasafnið og
Eylandssafnið sótt í
Reykjaskóla í Hrútafirði, þar
sem þau hafa verið í geymslu,
og flutt í Bóka- og skjalasafn
Húnaþings vestra á
Hvammstanga.
Unnið hefur verið við að
skrá og flokka safnið og er sagt
frá því á Norðanáttinni að það
sé nú komið upp í gamlan skáp
sem safninu var gefinn og
tekur sig sérlega vel út. Þar
segir Sigríður Tryggvadóttir
bóka- og skjalavarðar að vinna
við Eylandssafnið sé langt
komin og vonast hún til þess
að það verði komið í stand fyrir
jólabókaflóðið. /PF
Búfjárskaði og eignatjón
Um 4000 – 5000 fjár saknað
Búfjárskaði og eignatjón af
sökum hausthretsins sem
skall á þann 10.-11.
september sl. var til umræðu
á fundi Landbúnaðarnefndar
Svf. Skagafjarðar sl. föstudag.
Þar kom fram að ekki liggja
endanlegar tölur fyrir en allt
bendir til þess að á milli
4000 – 5000 fjár sé saknað
eða fundist hefur dautt.
Á fundinum fór Eiríkur
Loftsson frá Leiðbeiningar-
miðstöðinni yfir þær tölur sem
nú liggja fyrir varðandi tjón á
búpeningi en tölur þurfa að
liggja fyrir sem fyrst svo hægt
sé að gera grein fyrir tjóninu
fyrir Bjargráðasjóði. Þá er
umtalsvert tjón á girðingum,
sem erfitt er að kanna fyrr en
snjóa leysir. Vernharð Guðna-
son formaður Almannavarnar-
nefndar Skagafjarðar fór yfir
aðkomu nefndarinnar að
málinu. Gerði hann grein fyrir
sameiginlegu leitarátaki bænda
og björgunarsveita sem fram
fór þann 29. sept. og ræddi um
vinnuhóp skipaðan af
Almannavarnarnefnd sem
vinnur að aðgerðaráætlun sem
unnið verður eftir ef slíkt
ástand kemur upp aftur.
Engin beiðni barst lög-
reglunni í Húnavatnssýslum
Vegna frétta um búfjárskaða
sökum fyrrgreinds hausthrets
sendi Sýslumaðurinn á
Blönduósi fréttatilkynningu
um gang mála í Húna-
vatnssýslum. Í henni kom fram
að engin beiðni um aðstoð, eða
önnur tilkynning, barst
lögreglunni á Blönduósi um
alvarlegt ástand búfjár eða
önnur atvik þegar hretið gekk
yfir, né heldur næstu daga á
eftir. Í tilkynningunni kemur
fram að lögreglustjórar á
Norðurlandi hafi verið boðaðir
á fund þann 25. sept. hjá
Almannavarnardeild ríkislög-
reglustjóra og til umræðu voru
fyrirhugaðar leitir helgina 28.-
30. sept. Þann 27. sept. barst
tilkynning um að leitirnar
myndu fara fram í Skagafirði
og Þingeyjarsýslum en ekki var
minnst á Húnavatnssýslur.
Sýslumaðurinn á Blönduósi
hafði þá samband við
Almannavarnardeildina og
fékk þau svör að það væri
niðurstaða „heimamanna“ að
aðstoðar væri ekki þörf og því
hefðu Húnavatnssýslur verið
felldar út. „Með vísan til þess
sem að framan greinir þótti
ekki ástæða til þess að lýsa yfir
almannavarnaástandi í Húna-
vatnssýslum en hins vegar hafa
björgunarsveitarmenn aðstoð-
að bændur dyggilega við leit að
búfé í umdæminu,“ segir í
tilkynningu. Sýslumaðurinn
hefur ákveðið að kalla fljótlega
saman Almannavarnanefnd
Húnavatnssýslna og helstu
aðila sem að þessu ástandi
komu. /BÞ
SSNV frestar þingi um mánuð
Ekki sátt um kynja-
kvóta í stjórn
Þingi Samtaka sveitarfélaga
á Norðurlandi vestra, SSNV
sem haldið var á Skagaströnd
um síðustu helgi var frestað
um mánuð þar sem ekki tókst
að mynda stjórn eftir að
breytingatillaga kom fram um
kynjaskiptingu. Stjórnin er
eingöngu skipuð
karlmönnum, tveimur
fulltrúum úr Skagafirði,
tveimur úr Austur-
Húnavatnssýslu og einum úr
Húnaþingi vestra. Sigurjón
Þórðarson hvetur Bjarna
Jónsson til að sýna gott
fordæmi og ganga úr stjórn.
-Þing SSNV sl. helgi var
mjög gott. Það var mikil eining
um ályktun um helstu
hagsmunamál íbúa á Norður-
landi vestra, m.a. á sviði
samgangna og heilbrigðismála
og um að auka frelsi til
handfæraveiða, segir Sigurjón
Þórðarson varaformaður sam-
takanna en hann segir að
þinginu hafi verið frestað vegna
breytingatillögu á samþykktum
SSNV um kynjakvóta í stjórn
sem ekki náðist samstaða um.
Segir hann að tillögurnar hefðu
vel að merkja ekki fengið neina
kynningu fyrir þingið.
-Breytingin á samþykktum
hefði falið í sér að Skagfirðingar
og A-Húnvetningar þyrftu að
hafa jafna kynjaskiptingu á
sínum tveimur fulltrúum sem
héruðin eiga í stjórn. V-Hún-
vetningar sem voru mjög áfram
um samþykkt tillögunnar voru
hins vegar algerlega óbundnir af
henni, segir Sigurjón.
Ef breytingatillögurnar hefðu
náð fram að ganga, segir
Sigurjón að þá hefði það þýtt að
annar þeirra karlkyns fulltrúa
sem sveitarstjórn Skagafjarðar
hafði nú þegar kjörið til
stjórnarsetu í SSNV, til fjögurra
ára, væri ekki lengur
gjaldgengur. Að hans mati lá
það í loftinu á tímabili að
kjörnefnd legði til að fjarstaddur
varamaður í sveitarstjórn
Skagafjarðar yrði skipaður, að
henni forspurðri, til stjórnarsetu
í landshlutasamtökunum, þvert
á kjör sveitarstjórnar Skaga-
fjarðar!
-Stjórnarseta í SSNV er meðal
sæta í nefndum og ráðum sem
framboðin í Skagafirði skipta
með sér í upphafi kjörtímabils í
samræmi við kjörfylgi. Þá skipar
hvert framboð sinn fulltrúa í
viðkomandi nefnd óháð vali
annarra framboða sem aug-
ljóslega leiðir af sér að
kynjaskipting í nefndir getur
orðið mjög tilviljunarkennd,
segir Sigurjón og bendir á að ef
samkomulag verður um að setja
umrædda kynjakvóta í stjórn
SSNV liggur beinast við að það
gildi frá og með næsta
kjörtímabili sveitarstjórna þann-
ig að ljóst verði í upphafi hvaða
leikreglum þarf að fara eftir og
þeim ekki breytt á miðju
kjörtímabili.
-Ef ætlunin er að breytingarnar
taki gildi nú þegar liggur beinast
við að fulltrúi VG, Bjarni
Jónsson, gangi úr stjórninni
enda hefur flokkurinn lengi
gengið til kosninga undir
gunnfána femínisma og ætti að
sýna gott fordæmi.
Umrædd stjórnarskipan mun
örugglega leysast farsællega en
vafasamt er að fortakslaus
lagaskylda hvíli á frjálsum
félagasamtökum sem sveitar-
félög standa að, s.s. SSNV, til að
uppfylla kynjakvótareglu um að
40% stjórnarmanna verði að
vera af öðru hvoru kyninu enda
eru víða dæmi um annað.
/PF