Feykir - 18.10.2012, Page 7
39/2012 Feykir 7
Heilir og sælir lesendur góðir. Ef rétt er
munað hjá mér er sá mikli kappi Þórður
Halldórsson frá Dagverðará höfundur
að fyrstu vísunum að þessu sinni.
Manna reynist misjöfn gerð
í minni og huga festu.
Umgangast þá æðstu verð
eins og sýkla verstu.
Krists eru orðin ennþá skýr
engu ríkir fórna.
Fátæktin er furðu dýr
fyrir þá sem stjórna.
Gaman að fá næst eina með alvörusvip,
en listilega vel gerða eftir Baldvin Jónsson
skálda.
Ég er á vöndum villustig
veikist önd af trega.
Hefur í böndum mæða mig
mikið hönduglega.
Ágúst Guðbrandsson var eins og margir
vita snjall hagyrðingur. Skil vel að honum
hafi þótt atómskáldin óþörf.
Eins og berist út úr klauf
atóm skálda hróður.
Er þar að finna ekkert lauf
engan nýtan gróður.
Önnur vísa, hringhent, kemur hér eftir
Ágúst, ort í orðastað ónefndrar stúlku.
Þú ert Einar valinn ver
vonir í leyni hlýna,
angur seinast yrði mér
arma að reyna þína.
Í upphafi ákveðinnar ferðar yrkir Ágúst svo
meitlaða hringhendu.
Kossa ótalda kysstu hal
klæðis – falda – gerður.
Fram í kaldan fjallasal
ferðinni haldið verður.
Að lokum þessi frá Ágústi.
Löngum eru lífsins strönd
lélegu eftir korti.
Svo er mörgum mislögð hönd
menntun þó ei skorti.
Sigurjón Friðjónsson sem kenndur var við
Sílalæk mun vera höfundur að þessari.
Vakir drós við draum og þrá.
Dagur rósvef tjaldar.
Lygnir ós, og bára blá
blæju ljósri faldar.
Margir vísnavinir kannast trúlega við þessa
kunnu morgunvísu Höllu Eyjólfsdóttur á
Laugarbóli.
Kastið drunga! Kætist þið!
Kafnar þungur hagur.
Fjalla bungum blasir við
bjartur ungur dagur.
Vísnaþáttur 580
Langar á þessu hörmungarhausti að halda
áfram með sólarvísur. Hreiðar Geirdal yrkir
svo við sólarupprás.
Sólin vorsins sæludraum
sveipar logabrúnum,
lætur gullin geislastraum
guða á fjallabrúnum.
Falleg sólarhringhenda kemur hér næst.
Höfundur Helgi Jónsson á Hólum í
Eyjafirði.
Sólin steig á himin há
húmið seig af láði.
Ljóss úr veigum liljan smá
lífsafl teyga náði.
Falleg morgunvísa kemur hér næst eftir
Stein K. Steindórsson frá Írafelli.
Rís í austri röðull skær
rökkurguðinn völdin missir.
Morgundísin muna kær
móðurlega fjöllin kyssir.
Klaufalegt af mér að muna ekki alveg strax
eftir annarri fallegri sólarvísu eftir Helga á
Hólum.
Himins brunnu björt við ský
blessuð sunnu ljósin.
Vafin þunnan úða í
opnaði munninn rósin.
Falleg vísa þar á ferð lesendur góðir, og
gaman væri að geta ort svo vel. Rifjum næst
upp þessa kunnu vísu Sigurðar Breiðfjörð.
Sólin klár á hveli heiða
hvarma gljár við baugunum.
Á sér hár hún er að greiða
upp úr báru laugunum.
Held endilega að Adolf J. Petersen sé
höfundur að þessari.
Allir dagar eiga kvöld
unaðs líða stundir.
Roðageisla rósatöld
rennur sólin undir.
Það er Ingimar Bogason á Sauðárkróki sem
yrkir svo í skammdegismyrkrinu haustið
1980.
Skammdegi á skugga og ljós
skyldur, gleði og sorgir.
Fagrar dyggðir, heiður, hrós,
hrundar skýjaborgir.
Finnst nú aðeins vanta að þið lesendur
góðir hafið meira samband við þáttinn og
leggið honum lið með efni. Bið ykkur að
hugleiða það. Gott að enda þáttinn með vel
gerðri hringhentri haustvísu eftir Ingimar
Boga.
Stormur gnauðar sterkum róm
stækkar nauða vandinn.
Fölnar hauður, falla blóm
fúll og snauður andinn.
Verið þar með sæl að sinni.
/ Guðmundur
Valtýsson
Eiríksstöðum,
541 Blönduósi
Sími 452 7154
( GUÐMUNDUR VALTÝSSON )
FE
Y
K
IL
EG
A
F
LO
TT
A
A
FÞ
R
EY
IN
G
A
R
H
O
R
N
IÐ
Já
, r
ey
nd
u
þi
g
vi
ð
þe
tt
a!
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautina
á rétt á því að kjósa seint á laugardaginn.
Spakmæli vikunnar
Maðurinn kýs að trúa því sem hann kýs að sé
satt - Bacon
Ótrúlegt en
kannski satt
Sudoku
Í starfi sínu hjá ríkisendurskoðanda hefur Sveinbeinn
Geirólfur það verkefni að stinga málum undir stól.
Til vinnuhagræðis hefur hann nú fengið stól með
innbyggðum pappírstætara.
Hinrik Már Jónsson
Örlaga örsögur
Fremdardýr er íslenska heitið á prímötum og eru þau
dýr sem tilheyra samnefndum ættbálki, þ.e.a.s. allir
lemúrar, apakettir, apar og menn. Orðið prímati er
komið af latneska orðinu „primas“ sem þýðir m.a.
„fremd“ og þannig er orðið fremdardýr til komið.
Fremd merkir frami eða vegsauki. En það ótrúlega er
að api var einu sinni fangaður og dæmdur fyrir reykja
sígarettu í South Bend í Indiana.
Krossgáta
Feykir spyr...
Af hverju
klæðist þú
bleiku í dag?
[spurt í Árskóla]
INGA SÓLVEIG
SIGURÐARDÓTTIR
-Út af því að það er bleikur
dagur. Þá er verið að styrkja
krabbameinssjúka.
ANDREA MÆJA
-Til að styðja
krabbameinsrannsóknir.