Feykir - 11.07.2013, Page 6
6 Feykir 27/2013
til landsins sem „gæt“ hjá
Ævintýraferðum en Magnús
Sigmundsson var einn af
upphafsmönnum að rafting
á Íslandi, segir Björg og sér
fyrir sér að hægt væri að gera
heimildamynd um Magnús
og hans frumkvöðlastarf í
ferðamennsku í Skagafirði.
-Ævintýraferðir seldu
raftingreksturinn til Arctic og
strákarnir keyptu sig inn í þetta
og eiga stærsta hlutann þannig
að það má segja að þetta sé nýtt
fyrirtæki á gömlum grunni,
segir Björg.
-Chris kemur frá Kanada
frá einni bestu rafting-á þess
lands og er mjög fær rafting
gæt og kajaker og Anup
er það einnig, vinnur allar
keppnir í Nepal, segir Björg
brosandi en sjálf kom hún
af tilviljun í Skagafjörð fyrir
allmörgum árum, leit við hjá
Ævintýraferðum og var farin
að vinna þar áður en langt um
leið.
-Það er þessi á, Austari-
Jökulsá, sem dregur þessa gæta
hingað. Hún er mjög fræg um
allan heim og dæmi eru um að
þeir komi hingað þó lægri laun
séu í boði en annars staðar,
segir Björg en launin segir
hún að séu lægri vegna þess
hversu erfiður bissness þetta er
á Íslandi.
Hún segir að miðað við
hvað áin sé sterk og góð ætti að
vera tíu sinnum meira að gera,
bæði hér og á Bakkaflöt.
-Þetta er erfið staðsetning,
Hvítáin er að taka mikið. Það
myndi hjálpa mikið til ef við
værum með millilandaflug
til Akureyrar en það myndi
gera mikið fyrir Skagafjörð,
segir Björg og bendir á fleiri
afþreyingarmöguleika sem
væri hægt að markaðssetja
betur með bættu aðgengi að
Norðurlandi.
-Það sem Skagafjörður
hefur fram yfir önnur svæði
er það hve mikil afþreying
er í boði. Náttúran er týpísk
íslensk náttúra en það er
óvenju mikið af afþreyingu
hér miðað við aðra staði, þá
erum við að tala um hágæða
afþreyingu. Til dæmis mjög
góðar og miklar hestaferðir,
runnar af gömlum grunni og
svo rafting, hágæða rafting.
Svo má nefna Drangeyjarferðir
og gönguferðir inn í dalinn.
Það væri hægt að bjóða uppá
hágæðaferðir og Skagafjörð-
urinn gæti haft miklu meira að
gera miðað við allt.
Samvinnan er lykillinn
Til að auka enn á ferða-
mannastrauminn til Skaga-
fjarðar segir Björg lykilinn að
því vera samvinnu.
-Hún er númer eitt, tvö og
þrjú. Það vita það allir sem
búa hér að það eru smákóngar
víða og fólk að berjast. Við
þurfum öll að byrja á því að
tala vel um náungann, tala vel
um hvert annað þó við séum
í samkeppni. Ég hef unnið
mikið sem gæt fyrir sunnan
og við vorum miklir vinir þó
við værum samkeppnisaðilar.
Hérna fyrir norðan væri
óskandi að við gætum byggt
upp alvöru rafting-samfélag,
gætum jafnvel opnað skóla
og ýtt undir og aukið veg
straumkajakara.
Björg segir straumkajak
mjög lítið stundað sport vegna
þess að aðstaðan eða baklandið
sé ekki nógu sterkt.
-Það er enginn skóli eða
miðstöð, samt er Ísland mekka
og paradís fyrir straum-
kajakera um allan heim sem
koma hingað til þess að fara
á straumkajak. En það vantar
grunninn hér og að fara á
straumkajak væri gott fyrir
krakka, þau myndu læra
svo mikið. Að vinna með
ánni og bara að takast á við
náttúruöflin, læra að lifa með
flæðinu. Það breytir hugarfari
fólks að þurfa að takast á
við sterk náttúruöflin. Það
krefst mikils aga að læra á
straumkajak. Þetta er mjög
erfitt og krefjandi sport og það
þarf mikla vinnu til að verða
góður kajaker. En ofboðslega
skemmtilegt.
Jökulsárnar sem siglt er á
eru tvær, Austari- og Vestari -
Jökulsá og báðar skemmtilegar
að sögn Bjargar en munurinn
er geysimikill á þeim.
-Já, það er himinn og haf.
Vesturáin er róleg á sem hentar
öllum, ungum sem gömlum,
kannski ekki þeim sem vilja
mikið fjör en hún er rosalega
falleg, gljúfrin einstök. Þar
er heitur hver sem hægt er
að stoppa hjá og fá sér heitt
kakó. Þannig að þetta er fyrst
Þeir Anup Gurung og
Christopher Doyle-Kelly eiga
helming fyrirtækisins og sjá um
reksturinn ásamt viðmælanda
okkar, Björg Fríði Elíasdóttir
en Arctic rafting á enn hluta í
fyrirtækinu og segir Björg að
þeir séu góðir samstarfsaðilar
með sterkt tengslanet erlendis.
Þau Björg, Anup og Chris
hafa öðlast mikla reynslu af
fljótabátaútgerðinni og þekkja
jökulsárnar eins og lófana á sér.
-Þetta er þrettánda sumarið
hans Anups og það sjöunda hjá
Chris. Anup kemur upphaflega
Viking Rafting í Skagafirði
Mekka og paradís fljótasiglinga
VIÐTAL
Páll Friðriksson
Leiðsögumenn og rekstraraðilar Viking Rafting. Björg heldur utan um Anup og Chris er lengst til hægri á myndinni.
Nýlega var haldin lítil hátíð hjá ferðaþjónustufyrirtækinu Viking Rafting í Skagafirði sem bar
heitið Midnight Sun River Festival 2013 upp á engilsaxneskuna. Þangað mættu margir áhugasamir
kajakræðarar og spreyttu sig á flúðum jökulsánna en einnig var boðið upp á miðnætursiglingu á
raftingbátum á sumarsólstöðum. Fyrirtækið er til húsa á Hafgrímsstöðum í Lýtingsstaðahreppi hinum
forna og Feykir kíkti í heimsókn og forvitnaðist um fyrirtækið og fólkið sem að baki því stendur.
Austari-Jökulsá er að sögn kunnugra ein besta rafting-á Evrópu. Frá tónleikum á Midnight Sun River Festival.