Feykir


Feykir - 11.07.2013, Blaðsíða 10

Feykir - 11.07.2013, Blaðsíða 10
10 Feykir 27/2013 Hvetja fólk til að vera úti og leika sér saman Útilífsdagur barnanna á Reykjum Útilífsdagur barnanna var haldinn sunnudaginn 7. júlí sl. Mikill fjöldi var mættur til að taka þátt og leika sér úti, en um 150 manns voru mættir á svæðið. ,,Ég fékk innblástur af þessum degi frá Kom deg ut dagen í Noregi og okkur Sigríði Ingu langaði að prófa slíkt hið sama hér og Reykjaströndin var kjörinn staður fyrir svona dag,” sagði Pálína Ósk Hraundal, einn af skipuleggjendum Útilífs- dagsins. Krakkarnir fengu að elda á báli, nota norrænar útilífsaðferðir, fara í leiki, heyra sögur og margt fleira. „Við vorum í skýjunum með bæði þátttöku og hvað allir voru virkir og áhugasamir að taka þátt og vera með. Við höfum ekki tekið neina ákvörðun um hvort dagurinn verði aftur að ári. En hvetjum auðvitað fólk til þess að vera öflugt að vera úti og leika sér saman,” bætir Pálína við. /GSG

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.