Feykir - 11.07.2013, Page 12
Fröken Fabjúlöss forvitnast í fataskápa:
Elín Gróa Karlsdóttir
Klæðilega kápan
á að Byggðastofnunarmærin Elín Gróa
Karlsdóttir hefði nú örugglega eitthvað fram
að færa sem væri „fashionably forward.“
Elín er fædd og uppalin Hólmavíkurskvísa, en bjó í
höfuðborginni í um 20 ár áður en hún fluttist
norður yfir heiðar og hreiðraði um sig á Króknum
góða, en Sauðárkrókur er einmitt heimabær
eiginmanns Elínar.
En hvað er það svo í amstri tískudagsins sem þú
getur alls ekki verið án Elín?
-Ég á mikið af förðunarvörum, en ég lærði einmitt
förðun fyrir 20 árum. Þær snyrtivörur sem ég get alls
ekki verið án eru MAC augnskuggarnir mínir,
Lancome meik, Lancome Hypnose Star maskari,
OPI naglalökk og TIGI hárvörurnar.
En þegar þú ætlar að vera fram úr hófi lekker, hvað
er það þá sem þú dregur út úr fataskápnum – svona
algjörlega uppáhalds?
-Uppáhaldsflíkin er rauða kápan mín sem er nú farin
að passa á mig aftur eftir nokkurt hlé, en ég nota hana
algjörlega spari-spari! Kápan fallega er keypt í Karen
Millen, en við hjónin vorum á Þorláksmessurölti um
Kringluna eitt árið og kíktum við í Karen Millen. Þar
fann ég þessa dásemd, mátaði og hún smellpassaði!
Ég varð þó að kveðja um sinn með söknuð í hjarta,
en svo fyrir eitthvert jólakraftaverk rataði hún í
jólapakka sem var merktur mér!
En hver er það svo sem Elín Gróa vill að opni
fataskápana fyrir Fröken Fabjúlöss í næsta dálki?
-Ég útnefni Sigríði Elínu Þórðardóttur, samstarfs-
konu mína hjá Byggðastofnun, sem
næstu tískudrottningu.
UMSJÓN
Hrafnhildur Viðarsdóttir
[ frokenfab@feykir.is ]
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
27
TBL
11. júlí 2013 33. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
ÚTSALAN hefST
í dAg fimmTudAg
30%-70% AfSLáTTur
Móttaka
Hesteyri 2 550 Sauðárkróki
Vélaverkstæði KS
veitir alhliða
pípulagnaþjónustu
Sími hjá pípulagnadeild
er 825-4565
Jón Geirmundsson pípulagningameistari
Tískuspekúlant
seinasta dálks, tann-
læknaklinkan Hanna
Steins, benti okkur