Feykir - 07.11.2013, Blaðsíða 4
4 Feykir 42/2013
Aflahornið 26. október – 2. nóvember 2013
Um 500 tonnum
landað í vikunni
Í vikunni sem leið var landað um 24 tonnum
á Hofsósi, 364 tonnum á Skagaströnd, rúmum
112 tonnum á Sauðárkróki og tæpum 3
tonnum á Hvammstanga. Alls gera þetta
rúmlega 500 tonn á Norðurlandi vestra, sem
er um 200 tonnum minna en í síðustu viku.
/KSE
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Harpa HU-4 Dragnót 2.879
Alls á Hvammstanga 2.879
Fjölnir SU-57 Lína 70.212
Flugalda OF-15 Handfæri 2.077
Hamar SH-224 Landb.lína 25.468
Kristinn SH-812 Landb.lína 15.780
Páll Jónsson GK-7 Lína 78.286
Rifsnes SH-44 Lína 31.926
Sighvatur GK-57 Lína 53.272
Tjaldur SH-270 Lína 60.831
Valdimar GK-195 Lína 26.250
Alls á Skagaströnd: 364.102
Ásmundur SK-123 Landb.lína 8.511
Oddverji ÓF-76 Landb.lína 12.575
Þorgrímur SK-27 Landb.lína 2.933
Alls á Hofsósi 24.019
Hafborg SK-54 Þorskfisknet 1.928
Klakkur SK-5 Botnvarpa 109.651
Óskar SK-13 Handfæri 686
Alls á Sauðárkróki 112.265
Comeniusverkefni sem
Húnavallaskóli tekur þátt í
um þessar mundir og ber
yfirskriftina „From past, hand
in hand for future,“ er sam-
starf á milli skóla í Evrópu.
Löndin sem Húnavallaskóli
verður í samstarfi við næstu tvö
árin eru Pólland, Þýskaland,
Noregur, Ítalía, Bretland,
Spánn, Grikkland og Tyrkland.
Þetta verkefni er styrkt af
Evrópusambandinu og voru 68
skólar á Íslandi sem sóttu um
styrk en aðeins 33 skólar fengu
styrk og var Húnavallaskóli
einn þeirra. Áhersla er lögð á
samskipti, samvinnu, menntun,
vinnu í öðrum löndum, að efla
Evrópuvitund og halda tungu-
málakennslu á lofti. Frekar er
ýtt undir nemendaskipti og
kynningu á menningu annarra
landa.
Í okkar verkefni er mikil
áhersla lögð á fortíð og hvernig
hún hefur haft áhrif á vinnu-
brögð nútímans. Í Húnavalla-
skóla erum við alls 29 nem-
endur úr 7., 8., 9. og 10. bekk í
þessu verkefni. Yfirumsjón með
verkefninu hefur Sonja Suska
og er Berglind Baldursdóttir
henni til aðstoðar. Síðan verður
farið í ferðir erlendis. Fyrst fara
kennarar til Tyrklands á
undirbúningsfund. Svo verður
farið til Spánar, Ítalíu og
Frá fortíð, hönd í hönd,
fyrir framtíðina
KRISTÍN UNA RAGNARSDÓTTIR SKRIFARFRÁ LESENDUM
Þýskalands eða til Noregs 2014
og lokaferð til Grikklands árið
2015. Einnig verður tekið á
móti nemendum frá öðrum
löndum í september 2014.
Núna erum við að vinna
við allskonar verkefni, þ.á.m.
erum við að búa til vídeó og
myndasögur þar sem við
kynnum skólann og sýnum
hvað við gerum í tímum og
ýmislegt fleira. Einnig vorum
við að gera lógó fyrir verkefnið
og var kosið um besta lógóið.
Svo gerðum við okkar eigin
Comeniusar horn, þar sem við
teiknuðum löndin í Evrópu, og
hengdum upp allt sem tengist
Comeniusarverkefninu, jóla-
kort síðan í fyrra og margt
fleira.
Kristín Una Ragnarsdóttir,
nemandi í 10. bekk
Húnavallaskóla
Leikur er barna yndi
Fyrr á þessu ári lauk tveggja
ára þróunaraverkefni undir
yfirskriftinni “Leikur er barna
yndi” sem unnið var í
leikskólanum Ásgarði í
Húnaþingi vestra. Verkefnið
var unnið af Elsu Rut
Róbertsdóttir, Guðrúnu Láru
Magnúsdóttir og Sigurbjörgu
Friðriksdóttir.
Markmiðin með verkefninu
voru að auka gæði frjálsa
leiksins sem í daglegu tali innan
skólans er nefndur „flæði“, nýta
betur húsnæði og leikefnivið
skólans og dýpka þekkingu og
færni starfsfólks til að vinna í
anda hugmyndafræði Mihaly
Csikszentmihalyi. Samkvæmt
kenningum hans er flæði þær
stundir sem við gerum hlutina
án áreynslu, hæfileikar eru
fullnýttir og við upplifum bestu
stundirnar í lífi okkar.
Með því að nýta betur
húsnæði, leikefnivið og gefa
flæði aukið vægi í dagskipu-
laginu kom í ljós að nemendur
upplifðu meiri leikgleði, sýndu
aukið frumkvæði, virkni, ein-
beitingu og öðluðust frekari
færni í samskiptum, samvinnu
og hjálpsemi. Með því að auka
þekkingu starfsfólksins á fræð-
unum upplifði starfsfólkið
meiri starfsánægju, og fannst
það betur í stakk búið að gefa af
sér í leik og starfi.
Þegar nemandi kemur til
skóla að morgni er lögð áhersla
á að foreldrar fylgi honum inn á
leiksvæði og aðstoði hann við
að finna sér viðfangsefni. Þegar
foreldri sýnir umhverfi barns-
ins áhuga verður barnið
öruggara í aðstæðum og því
gott upphaf á skóladegi.
Morgunmatur er borinn fram
milli kl. 08:15 til 09:00 og getur
nemandi fengið sér nær-ingu
þegar honum hentar og haldið
svo áfram með fyrri viðfangsefni
eða fundið sér ný. Leikurinn er
ríkjandi bæði úti og inni til
kl.11:00 en þá hefjast mál-
örvunarstundir og er unnið í
litlum hópum. Eftir hádegis-
mat er hvíldarstund og að henni
lokinni er áframhaldandi leikur.
Kaffitími er með sama hætti og
morgunmatur en eftir hann er
útivera og er þá leikurinn alfarið
utandyra. Dagurinn gengur vel
fyrir sig börnin eru glöð þeim
líður vel eru örugg í aðstæðum
og lítið er um árekstra. Þau
ákveða sjálf hvað þau taka sér
fyrir hendur og fá næði til að
þróa leikinn sinn áfram þau eru
upptekin af því sem þau fást við
og gleyma bæði stað og stund.
Starfsfólk skólans tekur
kaffitíma í upphafi eða lok dags
og mætir ýmist seinna eða fer
fyrr. Starfsfólk er alltaf til staðar
á leiksvæðum og tekur þátt í leik
nemenda á þeirra forsendum.
Þessi breyting var nauðsynleg til
að ná fram samfellu í dag-
skipulagið. Til að viðhalda þeim
góða starfsanda sem ríkir í
skólanum er sameginlegur
kaffitími á föstudögum og
skiptir starfsfólkið sér í tvo
hópa, meðan annar er í kaffi er
hinn í útiveru með nemendum.
Þær stöllur Elsa Rut, Guðrún
Lára og Sigurbjörg vilja taka
það fram að starfsfólkið í
Ásgarði á heiðurinn af því
hvernig til tókst í breytingar-
ferlinu. Foreldrar hafa verið
áhugasamir og hafa stutt við
verkefnið fá upphafi. Margir
utanaðkomandi hafa sýnt
verkefninu áhuga og fengið að
koma og fylgjast með starfinu
og tala þeir um hvað börnin séu
einbeitt og yfirvegurð og
andrúmsloftið afslappað. Þó
svo að þróunarverkefninu sé
formlega lokið höldum við
áfram að þróa starfið í anda
Mihaly.
Lokaskýrslan er aðgengileg á
heimasíðu skólans fyrir þá sem
hafa áhuga á að kynna sér hana
frekar www.leikskolinn.is/
asgardur
“Flæði er æði” /KSE
Leikskólinn Ásgarður á Hvammstanga
Hópurinn sem tekur þátt í Comeniusarverkefninu í Húnavallaskóla. Á myndina vantar þrjá nemendur.