Feykir - 07.11.2013, Qupperneq 10
10 Feykir 42/2013
Eitt af prinsessuteppunum.
Brynhildur Gísladóttir í Víðidalstungu í Húnaþingi vestra
Ætlaði bara að prjóna
þegar hún yrði amma
HVAÐ ERTU MEÐ
Á PRJÓNUNUM?
UMSJÓN kristin@feykir.is
Brynhildur Gísladóttir í
Víðidalstungu í Húnaþingi
vestra tók áskorun frá
Hallfríði dóttur sinni. Í
spjallinu við Hallfríði kom fram að hún væri alin upp við
síprjónandi og saumandi mömmu sér við hlið og sama máli
gegnir um Brynhildi, eða Hildu eins og hún er oftast kölluð.
Hilda er Borgfirðingur að
uppruna en hefur búið í
Víðidalstungu hátt í 40 ár, ásamt
Ólafi Óskarssyni og dætrunum
Hallfríði og Sigríði. Ragnheiður
dóttir hennar býr nú í Reykjavík
og á fjögur börn sem njóta góðs
af hannyrðum ömmunnar í
sveitinni.
„Ég byrjaði að prjóna sem
krakki, hef líklega verið svona 5
til 6 ára en fannst það ekkert
gaman og það er haft eftir mér
að ég hafi bara sagst ætla að
prjóna þegar ég yrði amma,“
segir Hilda, sem stóð þó ekki
við það því hún var ekki nema 8
eða 9 ára þegar prjónaskapurinn
hélt áfram af fullum krafti. „Það
var svo mikið prjónað í kringum
mig, mamma og móðursystur
mínar voru alltaf að prjóna. Ég
hef líka mjög gaman af útsaumi,
og finnst mjög skemmtilegt að
telja út, sérstaklega eru jóla-
myndir í uppáhaldi“
En hvað ertu með á prjón-
unum um þessar mundir? „Ég
var að skila ömmustelpunum
úr pössun og er nú búin að taka
prjónana fram aftur. Núna er ég
að prjóna pils á tvær þeirra, er
byrjuð á stærra pilsinu og þau
eiga helst að vera tilbúin fyrir
jólin. Þetta tekur sinn tíma því
þau eru úr fínlegu garni og
prjónuð á prjóna númer tvö og
hálft og ég er með 432 lykkjur á
stærra pilsinu. Uppskriftina átti
ég og hafði prjónað eitt svona
áður. Hún er úr gömlu Ýr blaði
sem móðirin sá hjá mér og
langaði að fá svona á dæturnar.
Ég er líka með jólasokka sem
verkefni núna, þessa með
palíettunum og perlunum
(Bucilla). Ég er búin að sauma
handa tveimur barnabörnum,
er með einn í vinnslu og á eftir
handa því yngsta. Svo er ég búin
að gera útsaumuð jóladagatöl
handa tveimur barnabörnum
Útprjónuðu fingravettlingarnir eru vinsælir.
og á eftir að sauma tvö. Annað
slagið geri ég líka sokka og
fingravettlinga, sem ég hef selt
hjá Handprjónasam-bandinu.
Það er alltaf nóg af verkefnum í
handavinnunni en vantar oft
meiri tíma.
En hvaða handverk skyldi
Brynhildur vera ánægðust
með? „Ég mjög ánægð með
peysuna sem ég prjónaði á sjálfa
mig, fjólublá munstruð peysa
sem er mikið notuð. Svo hef ég
gert þrjú prinsessuteppi, það er
mjög gaman að vinna þau og
það er líklega mest krefjandi
prjónaskapurinn sem ég hef
gert.“
- - - - -
Ég skora á vinkonu mína Svövu
Árnadóttur í Breiðuvík í Vesturhópi í
næsta prjónaþátt.
Ungbarnasett sem Brynhildur prjónaði.
Jól í skókassa
Það var handagangur í
öskjunni í orðsins fyllstu
merkingu þegar blaðamaður
Feykis leit við í Safnaðar-
heimili Sauðárkrókskirkju í
síðustu viku. Þar voru
krakkarnir í TTT starfinu að
pakka inn jólagjöfum í
skókassa sem átti að senda
um langan veg. Blaðamaður
fylgdist með hópnum og
ræddi við einn af krökkunum
sem taka þátt í verkefninu.
„Jól í skókassa“ er alþjóðlegt
verkefni sem KFUM&KFUK
tók upp hér á landi árið 2004.
Undirtektir hafa verið frábærar,
en fyrsta árið söfnuðust um
500 kassar og á um tíu árum
hefur talan tífaldast, því nú
berast árlega um 5000 kassar.
Að sögn sr. Sigríðar Gunn-
arsdóttur sóknarprests eru
börnin afar áhugasöm um
verkefnið. „Mér finnst þetta
frábært tækifæri fyrir krakkana
að láta gott af sér leiða og ekki
síður átta sig á að hversdagslegir
hlutir eins og tannbursti og
sápa er munaðarvara hjá
TTT starfið í Sauðárkrókskirkju
sumum jafnöldrum þeirra.
Þetta er virkilega lærdóms-
ríkt. Skókassaverkefnið kenn-
ir bæði að gefa með gleði og
kennir þakklæti fyrir að fá að
alast upp án þess að líða
skort.“ segir hún. /KSE
Hópur 10-12 ára krakka í Safnaðarheimili Sauðárkrókskirkju sl. fimmtudag.
Hvað eruð þið helst að gera í
kirkjustarfinu? -Við erum oftast
í leikjum en núna erum við að
gera „Jól í skókassa.“
Hvert eiga gjafirnar að fara?
-Þær fara til Úkraínu. Það eru
annað hvort fátæk börn eða
munaðarlaus börn sem fá þær.
Hvernig vitið þið hver fær hvaða
pakka? -Þeir eru merktir. Ég er
með pakka sem er til stráks sem
er á aldrinum 3-6 ára.
Hvað settirðu í pakkann?-Ég
setti fullt af dóti: Þrjá sleikjóa,
vettlinga, tannkrem, tyggjó, fiska-
spil, þvottapoka, liti, tannbursta,
pezpakka og blýant.
Heldurðu að sá sem fær pakk-
ann verði ekki glaður?-Jú, ég er handviss um það!
Er langt síðan þú byrjaðir í kirkjustarfinu? -Ég byrjaði í fyrra.
Og er ekki gaman? -Jú mjög gaman.
Spjallað við Þorgrím Svavar Runólfsson
Gjafirnar fara til fátækra
eða munaðarlausra barna