Feykir - 12.12.2013, Blaðsíða 3
47/2013 Feykir 3
FERSKUR Á NETINU
Feykir.is
Hafðu samband!
Hafðu samband í síma 455 7176
eða sendu Feyki póst á
feykir@feykir.is
Val á Jólahúsi stendur yfir
Sú hefð hefur skapast á
vefnum Húnahorninu að velja
Jólahús ársins á Blönduósi.
Um er að ræða samkeppni
um fallega skreytt hús, hvort
sem það er íbúðarhús eða
fyrirtæki. Samkeppnin um
Jólahúsið 2013 verður með
svipuðu sniði og síðust ár.
Til að taka þátt í sam-
keppninni er tilnefning send
inn í gegnum rafrænan
atkvæðaseðil sem staðsettur
er á forsíðu Húnahornsins.
Hverjum og einum er heimilt
að senda inn eina tilnefningu.
Það hús sem fær flestar til-
nefningar verður valið Jólahús
ársins 2013 á Blönduósi.
Samkeppnin stendur til
miðnættis 30. desember og
verða úrslit gerð kunn á
síðasta degi ársins. Þetta er í
tólfta sinn sem Húnahornið
stendur fyrir vali á Jólahúsi
ársins á Blönduósi. /KSE
Jólahús ársins á Blönduósi
ENN MEIRA
SKAGFIRSKT FJÖR
Skagfirskar skemmtisögur 3 - Enn
meira fjör! hefur að geyma 250
gáskafullar gamansögur af Skagfirð-
ingum, eins og Ýtu-Kela, Bjarna Har,
Fljótamönnum, Álftagerðisbræðrum,
Sigga og Ingibjörgu í Vík, Halla í Enni,
Bjarna Marons, Binna Júlla, Gylfa
Geiralds og fleirum.
Björn Jóhann Björnsson tók
saman eins og fyrri tvö bindi.
Skagfirskar skemmtisögur 3 fást í
Skagfirðingabúð, Verslun Bjarna Har, Hlíðarkaupum, KS Varmahlíð,
Kaupfélagi V-Húnvetninga á Hvammstanga og Samkaup á Blönduósi.
Bókaútgáfan Hólar
www.holabok.is / holar@holabok.is
Heilsueflandi grunnskóli
Varmahlíðarskóli í Skagafirði
er þátttakandi í verkefninu
Heilsueflandi grunnskóli. Á
skólaárinu 2013 -2014 verður
unnið sérstaklega með
þáttinn geðrækt. Oft er bent á
að það þurfi að rækta
líkamann til þess að viðhalda
heilbrigði en ekki er síður
mikilvægt að rækta
geðheilsuna.
Dæmi um þætti sem
einkenna góða geðheilsu er
jákvætt viðhorf og vellíðan,
sjálfsvirðing, bjartsýni og til-
finning fyrir því að hafa stjórn á
lífi sínu og sjá hlutina í sam-
hengi, og að hver einstaklingur
fái að njóta sín sem best.
Í nýrri Aðalnámsskrá er
unnið með sex grunnþætti og er
Varmahlíðarskóli
Frá aðventuföndri foreldrafélags Varmahlíðarskóla. Mynd: Heimasíða Varmahlíðarskóla.
Mynd: ihi.is/Elvar Freyr Pálsson
heilbrigði og velferð einn þeirra.
Þar eru meðal annars lagt til
grundvallar jákvæð sjálfsmynd,
andleg vellíðan, góð samskipti,
og skilningur á eigin
tilfinningum og annarra. Marka
á stefnu um geðrækt í skólanum
til að efla alhliða vellíðan,
öryggiskennd og árangur allra.
/KSE
Jónína Margrét Íshokkíkona ársins
Húnvetningar eiga íshokkíkonu ársins 2013
Íshokkísamband Íslands
hefur valið Blönduósinginn
Jónínu Margréti Guðbjarts-
dóttur íshokkíkonu ársins
2013.
Jónína Margrét varð deildar-
og íslandsmeistari með Skauta-
félagi Akureyrar á síðastliðnu
keppnistímabili, sem var tólfti
Íslandsmeistaratitill hennar.
Þá var Jónína í landsliði
Íslands á heimsmeistaramóti
Alþjóða Íshokkísambandsins á
Spáni sl. vor og var valin í
landsliðsúrtak sem undirbýr
sig fyrir næsta heimsmeist-
aramót sem haldið verður í
Reykjavík í mars á næsta ári.
Á Húna.is segir að Jónína
Margrét hafi leikið íshokkí
með Skautafélagi Akureyrar
frá vorinu 2000 og verið bæði
fyrirliði og aðstoðarfyrirliði
liðsins sem og aðstoðarfyrirliði
landsliðsins en hún hefur átt
fast sæti í landsliði Íslands
undanfarin ár.
Auk þess að að leika
íshokkí hefur Jónína verið
virk í starfi íshokkíhreyf-
ingarinnar í gegnum árin,
bæði þjálfað yngri flokka SA
og einnig var hún ritari í stjórn
Íshokkídeildar Skautafélags
Akureyrar.
Jónína er dóttir þeirra
Guðbjarts Guðmundssonar og
Margrétar Ásmundsdóttur á
Húnabrautinni. /PF
Kirkjukór Hvammstanga
70 ár frá
stofnun
Sunnudaginn 8. desember
sl. voru 70 ár síðan
Kirkjukór Hvammstanga
var stofnaður. Af því tilefni
bauð kórinn öllum
núverandi og fyrrverandi
félögum kórsins í
kvöldkaffi í Safnaðar-
heimilinu á Hvammstanga
að kvöldi afmælisdagsins.
Samkvæmt heimildum
Feykis var mæting góð og
áttu gestir skemmtilega
kvöldstund saman. Feykir
óskar afmælisbarninu til
hamingju með áratugina sjö.
/PF
2,5 m.kr. til eflingar
ferðaþjónustunnar
Stjórn Byggðasamlags um
menningu og atvinnumál í
Austur-Húnavatnssýslu hefur
samþykkt 2,5 m.kr. framlag á
árinu 2014 til tímabundins
verkefnis sem ætlað er að efla
ferðaþjónustu í Austur-
Húnavatnssýslu.
Verkefnið er á forræði
Ferðamálafélagsins í A-Hún.
og Þekkingarsetursins. Þetta
kemur fram í fundargerð
stjórnar byggðasamlagsins frá
3. desember sl. Einnig var
samþykkt að skipa Ingiberg
Guðmundsson sem fulltrúa
byggðasamlagsins í stýrihóp
verkefnisins. Þekkingarsetrið
mun skipa Katharinu Schneider
í stýrihópinn auk þess mun
Ferðamálafélag A-Hún. skipa
einn fulltrúa. /Húni.is
Ferðaþjónusta í Austur-Hún.