Feykir


Feykir - 12.12.2013, Blaðsíða 10

Feykir - 12.12.2013, Blaðsíða 10
10 Feykir 47/2013 Um 700 manns á tvennum tónleikum Talið er að alls hafi um sjö hundruð gestir mætt á tvenna jólatónleika Geirmundar Valtýssonar sem haldnir voru í Menningarhúsinu Miðgarði á sunnudag. Ásamt Geirmundi komu fram nokkrir landsþekktir söngvarar, tvær afastelpur Geirmundar og Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps, ásamt hljómsveit undir styrkri stjórn Vilhjálms Guðjónssonar. Kynnir kvöldsins var Þorgeir Ástvaldsson. Tónleikarnir voru haldnir í tilefni af útgáfu á fjórtándu plötu Geirmundar, sem heitir Jólastjörnur Geir- mundar og inniheldur eingöngu jólalög. Lögin eru öll samin af Geirmundi en ýmsir textahöfundar, margir hverjir skagfirskir, koma við sögu. Söngvararnir sem fram komu á tónleikunum voru, auk Geirmundar, Sigga Beinteins, Helga Möller, Ari Jónsson, Páll Rósinkranz, Sigfús Álftagerðisbróð- ir, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir og afastelpurnar Anna Karen Hjartardóttir og Valdís Valbjörnsdóttir. Hljómsveitina skipuðu Jóhann Hjörleifsson, Finn- bogi Kjartansson, Magnús Kjartansson, Vilhjálmur Guðjónsson, Þorleifur Gíslason, Rögnvaldur Val- bergsson, Ásgeir Steingrímsson og Hugrún Sif Hall- grímsdóttir. Jólastjörnur Geirmundar Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps. Stjórnandi Sveinn Árnason. Helga Möller og Sigga Beinteins sungu nokkur lög. Allir flytjendur samankomnir á sviðinu í lok tónleika. Ari Jónsson á ljúfu nótunum. Kór Glaumbæjarprestakalls söng ljúf lög undir stjórn Stefáns Gíslasonar. Sérstakur gestur kvöldsins var Ágúst Ólason. Mikil stemming var á báðum tónleikunum og var Geirmundur að vonum ánægður með hvernig til tókst og góða aðsókn. Eins og fram kom í máli Þorgeirs Ástvaldsson hefur Geirmundur um áratuga skeið sett mikinn svip á menningarlíf Skagfirðinga með tónlist sinni, sem bæði hefur fengið að óma í hans eigin flutningi og hjá kórum og leikfélögum svo eitthvað sé nefnt. /KSE Kórsöngur við kertaljós Þriðjudaginn 3. desember s.l. blés Kór Glaumbæjarprestakalls, ásamt Kór Varmahlíðarskóla, til kórsöngs við kertaljós á Löngumýri. Tilefnið var útgáfa kórsins á nýútkomnum jólageisladiski sem ber heitið Kertaljós. Hann hefur að geyma hugljúfa jóla- og aðventutónlist sem kórnum hefur tekist að koma vel til skila inn á diskinn. Atli Gunnar Arnórsson var kynnir kvöldsins og fórst það vel úr hendi. Tónlistin hófst á því að Kór Varmahlíðarskóla söng undir stjórn Helgu Rósar Sigfúsdóttur við undirleik Stefáns R. Gíslasonar. Þá tók Kór Glaumbæjar- prestakalls nokkur lög undir stjórn Stefáns og lauk tónunum á því að kórarnir tveir sungu saman. Að loknu tónaflóði var komið að upplestri úr bókum. Voru til þess fengnir vel læsir piltar. Þar má fyrstan telja Ólaf Atla Sindrason, kennara og bónda á Grófargili, í framhaldi las Ingimar Ingimarsson, bóndi á Ytra-Skörðugili, og síðastur steig í pontu sérstakur gestur kvöldsins, Ágúst Ólason fyrrum skólastjóri Varmahlíðarskóla. Að dagskrá lokinni buðu kórarnir upp á kakó með rjóma og ljúfmeti með. Fjöldi manns sótti dagskrána og gerði góðan róm að. Meðfylgjandi myndir tók Ágúst Ólason. Þess má að lokum geta að nýi diskurinn, Kertaljós, fæst í Rafsjá, Skagfirðingabúð, KS í Varmahlíð sem og í verslunum Hagkaupa. /aðsent Kór Glaumbæjarprestakalls Kórar Glaumbæjarprestakalls og Varmahlíðarskóla þenja raddböndin á útgáfutónleikum á Löngumýri 3. desember sl.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.