Feykir - 12.12.2013, Síða 5
47/2013 Feykir 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR FEYKIS > www.feykir.is/sport
Úrtaksæfingar yngri landsliða í knattspyrnu
Tindstælingar
boðaðir á æfingar
Úrtaksæfingar yngri landsliða
hafa verið haldnar undanfarið
og boðuðu þeir Ólafur Þór
Guðbjörnsson landsliðs-
þjálfari U19 og Úlfar
Hinriksson landsliðsþjálfari
U17 kvenna þrjár stúlkur úr
Tindastól á æfingarnar um
síðustu helgi.
Þá mun einn piltur hafa
fengið boð um að mæta um
næstu helgi. Stúlkurnar þrjár
heita Jóna María Eiríksdóttir
og Kolbrún Ósk Hjaltadóttir
í árgangi 1998 og Hugrún
Pálsdóttir fædd 1997.
Konráð Freyr Sigurðsson
var boðaður á úrtaksæfingar
vegna U19 liðs karla í annað
skiptið í vetur. /PF
1. deild karla : Vængir Júpiters - Tindastóll 63-115
Vængir Júpiters náðu
ekki að rugga Stólunum
( LIÐIÐ MITT ) palli@feykir.is
Gauti Ásbjörnsson heldur með Man Utd
Deildin er ekki
eitt kapphlaup
Dúfa Dröfn Ásbjörnsdóttir fv.
landsliðsmarkmaður í U17, U19 og
U21 skoraði á frjálsíþróttakappann
og litla bróður sinn, Gauta, að
svara spurningum í Liðinu mínu
þessa vikuna. Gauti, sem nú býr í
Gautaborg í Svíþjóð og leggur stund
á doktorsnám í Vélaverkfræði við
Chalmers Háskólan í Gautaborg,
heldur með Man. Utd.
--Já, það er Man. Utd. eins og Dúfa
sagði en hún segir nú ekki allan
sannleikann. Ástæðan var nú aðallega
til þess að ergja Dúfu en síðan hafa
þeir bara alltaf verið betri en Liverpool
síðustu 25 árin.
Hvernig spáir þú gengi liðsins á
tímabilinu?
-Sigri auðvitað, hvað annað? En það
virðist vera erfitt fyrir þá að komast í
gang eftir að Ferguson hætti. Fimm
töp svona snemma verður erfitt að
vinna til baka.
Ertu sáttur við stöðu liðsins í dag?
-Ég verð nú að viðurkenna það að ég
hef ekki verið að fylgjast mikið með
enska boltanum í ár en að sjá þá
svona langt niðri á töflunni er ekki
gaman. Þeir verða bara að girða sig í
brók og vinna restina.
Hefur þú einhvern tímann lent í
deilum vegna aðdáunar þinnar á
umræddu liði?
-Deilurnar hafa bara verið á léttu
nótunum og þá aðallega við einstaka
Liverpool aðdáendur. Nefni engin
nöfn... þessir einstaklingar (eða
einstaklingur) hafa einstaka hæfileika
að sjá ekki hlutina í réttu ljósi þegar
kemur að fótbolta. Deildin er ekki eitt
kapphlaup, maður verður að hafa
þrekið til þess að klára alla 38 leikina.
Hver er uppáhaldsleikmaðurinn fyrr
og síðar?
-Ryan Giggs hiklaust. Hann hefur
sannað sig sem einn af betri
leikmönnum í heiminum. Gaurinn
er 40 ára og er ennþá einn af
burðarstólpunum í liðinu.
Hefur þú farið á leik með liðinu
þínu?
-Nei, því miður, það hefur ekki orðið
af því. Var að reyna að skipuleggja
ferð frá Svíþjóð með smá vinahóp til
þess að fara á Chelsea – Man. Utd.
í lok deildarinnar ef ég man rétt en
það rann út í sandinn nokkrum vikum
áður. Það getur vel verið að maður
skelli sér á leik einhvern tímann þegar
maður er í London og Man. Utd. spilar
á móti Chelsea eða Arsenal.
Áttu einhvern hlut sem tengist
liðinu?
Ekki í augnablikinu. En gömlu plakötin
hanga ennþá á veggjunum heima hjá
foreldrunum frá ´99 þegar Man. Utd.
tókst að landa þrennunni.
Hvernig gengur að ala aðra
fjölskyldumeðlimi upp í stuðningi
við liðið?
-Já, ég á nú engin börn ennþá til að
heilaþvo en það er alltaf hægt að fá
systkinabörnin til þess að halda með
réttu liði. Var líka í þessum töluðu
orðum að sannfæra kærustuna að
hún ætti nú að halda með Man. Utd.
Hefur þú einhvern tímann skipt um
uppáhalds félag?
-Nei, ég hef ekki haft neina ástæðu
fyrir því að skipta. Þeir hafa alltaf
staðið undir væntingum.
Uppáhalds málsháttur?
- Það er skammgóður vermir að pissa
í skóna sína.
Einhver góð saga úr boltanum?
-Það sem kemur nú fyrst upp í hugann
er keppnisferðin sem við fórum í 4.
flokki til Danmerkur. Þetta voru miklu
fleiri leikir og með styttri hvíld á milli
en við vorum vanir. Fyrir ferðina keypti
ég nýja takkaskó og eftir örfáa leiki
byrjaði ég að fá verki í fæturna sem
urðu bara verri og verri eftir hvern
leik. Í síðasta leiknum (þá búinn að
spila allar mínútur í öllum leikjum)
var það orðið svo slæmt að ég var
byrjaður að haltra og stuttu eftir að
seinni hálfleikurinn byrjaði kallaði
Siggi Donna á mig og spurði hvort ég
vildi skipta og setjast á bekkinn. Ég
svaraði eitthvað í þá átt: „Já endilega“.
10 mín. seinna var ég ennþá inni á
vellinum. Það endaði með því að ég
spilaði allan leikinn. Seinna spurði ég
Sigga af hverju hann setti mig ekki á
bekkinn, þá sagði hann að hann hafi
heyrt mig segja „Nei ekki núna“.
Einhver góður hrekkur sem þú hefur
framkvæmt eða orðið fyrir?
-Já, þeir eru nokkrir. Sá seinasti
sem ég varð fyrir var frá nokkrum
stangastökkvurum hérna í Gautaborg.
Fyrir u.þ.b. tveimur árum þegar ég
átti afmæli þá sendu þeir fullt af
auglýsingum inn á Blocket.se (þar
sem maður getur keypt og selt hluti á
netinu) um það að ég ætlaði að selja
sjónvarpið, sófann og eiginlega alla
búslóðina fyrir slikk. Síminn stoppi
ekki allan daginn, ekki fyrr en mér
tókst að finna auglýsingarnar og loka
fyrir þær.
Spurning frá Dúfu - Hvenær ætlar þú
að flytja heim?
-Hehe, það er erfitt að segja. Reyni að
komast hjá því að hugsa of mikið um
það hvar ég verð eftir tvö ár. Á tvö ár
eftir af náminu og fyrst þá fáum við að
sjá hvar ég lendi. Gæti verið allt frá
Íslandi til Ástralíu?
Hvern myndir þú vilja sjá svara
þessum spurningum?
-Jón Kristinn Skúlason
Hvaða spurningu viltu lauma að
viðkomandi?
Hvernig myndir þú bregðast við
ef Dominic byrjaði að halda með
Liverpool?LUMARÐU Á FRÉTT?
Feykir er frétta- og dægurmálablaðið á Norðurlandi vestra
Hann Feykir okkar kemur út einu sinni í viku allan ársins hring,
löðrandi í málefnum líðandi stundar með ofur áherslu
á Norðurland vestra.
Sendu okkur endilega fréttaskot, pistil, mynd
eða bara ábendingu um ... eitthvað!
Hafðu samband – síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
Við minnum einnig á Feykir.is
– fullt net af fréttum og fíneríi alla daga!
Taktu þátt í að gera Feyki enn skemmtilegri
Áskriftarsíminn er 455 7171
Tindastóll lék við Vængi
Júpiters í Rimaskóla í 1. deild
karla í körfubolta sl.
föstudagskvöld. Ekki reyndust
Vængirnir mikil fyrirstaða en
Tindastóll lék vel allan leikinn
og hafði betur í öllum
leikfjórðungum með 11-15
stiga mun og enduðu á að
sigra 63-115.
Stólarnir komust í 0-5 og
lentu aldrei undir í leiknum.
Þeir voru yfir 17-28 eftir fyrsta
leikhluta og í hálfleik var staðan
30-56. Að loknum þriðja leik-
hluta var munurinn orðin 40
stig og staðan 47-87 og enn og
aftur sigldu Stólarnir öruggum
sigri í höfn.
Antoine Proctor var
stigahæstur í liði Tindastóls
með 33 stig og hann hirti 6
fráköst. Þá gerði Helgi Rafn 27
stig og tók 5 fráköst. Darrel
Flake gerði 19 stig og tók 6
fráköst.
Á sama tíma tapaði Þór á
Akureyri á Akureyri gegn
Hreinsa Birgis og félögum í
Hetti og hafa Stólarnir því loks
náð alvöru forystu í slagnum í
1. deildinni. Á föstudag gefst
möguleiki á að auka muninn en
þá kemur lið Þórs í heimsókn í
Síkið. /ÓAB
Stig Tindastóls: Proctor 33, Helgi Rafn 27,
Flake 19, Pétur 12, Helgi Margeirs 10, Ingi
Rafn 4, Ingimar 4, Páll 4 og Finnbogi 2.
Dregið í Powerade-bikarnum í körfubolta
Tindastóll fer í Grafarvoginn
Dregið hefur verið í átta liða úrslit í
Powerade-bikarkeppni karla í körfunni. Ekki
fékk lið Tindastóls heimaleik en strákarnir
drógust á móti liði Fjölnis sem rétt eins og
Stólarnir leikur í 1. deild. Tindastóll á því
góða möguleika á að skila sér í fjögurra
liða úrslit.
Mörg sterk lið hafa hellst úr lestinni í
bikarkeppninni en sem dæmi má nefna að KR,
Snæfell, Keflavík og bikarmeistarar Stjörnunnar
eru úr leik. Í átta liða úrslitum mætast síðan
úrvalsdeildarlið Grindvíkinga og Njarðvíkinga
og Þór Þorlákshöfn og Haukar og loks mætir ÍR
b-liði Keflavíkur.
Ekki er búið að ákveða leikdaga en þó er klárt
að leikið verður 18.-20. janúar. /ÓAB
Gauti Ásbjörnsson stangastökkvari.
Kolbrún Ósk Hjaltadóttir á fullri ferð.
Proctor setti 33 stig í leiknum.