Feykir


Feykir - 19.12.2013, Page 2

Feykir - 19.12.2013, Page 2
2 Feykir 48/2013 Eldað undir bláhimni áfram í alþjóðlegri keppni ,,Best Local Cuisine Book” á Íslandi Skagfirska bókin „Eldað undir bláhimni“ sem tileinkuð er skagfirskri matarmenningu og gefin var út af Nýprenti fyrir síðustu jól hefur vakið mikla athygli bæði innanlands og utan, en hún inniheldur rúmlega fjörutíu uppskriftir og fjölda stórglæsilegra ljósmynda af skagfirskri matargerð, náttúrufegurð og mannlífi. Útgefandi bókarinnar tók þátt í alþjóðlegri keppni matreiðslu- og vínbóka, Gourmand World Cookbook Awards. Á hverju ári veitir Gourmand, þeim bókum sem þykja skara fram úr í heimi matreiðslunnar verðlaun, en alls eru 200 matreiðslubækur og 50 vínbækur sem hófu keppni. Veitt eru verðlaun í mismunandi flokkum þar sem tekið er tillit til innihalds, prentunar, hönnunar o.fl. Í lokin fer ein bók úr hverjum flokki frá hverju landi í úrslit og að lokum er blásið til mikillar bókamessu, Paris Cookbook Fair. Á bóka- messunni fá útgefendur tæki- færi til að hitta áhrifafólk í matreiðsluheiminum, útgef- endur, höfunda, matreiðslu- menn og blaðamenn og koma sinni afurð á framfæri. „Eldað undir bláhimni“ sigraði í flokknum Best Local Cuisine Book á Íslandi og mun í framhaldinu taka þátt í aðalkeppninni um bestu matreiðslu- og vínbækur í heimi. Niðurstöðurnar úr þeirri keppni verða tilkynntar þann 20. – 21. maí nk. í Beijing. /GSG Norðurland vestra Fækkun sjúkra- bíla frestað Sjúkratryggingar Íslands og Rauði kross Íslands hafa gert með sér samning sem tryggir áframhaldandi rekstur flestra þeirra sjúkrabíla á landsbyggðinni sem taka átti úr rekstri í janúar nk. til loka næsta árs. Frestunin nær m.a. til Skagastrandar og Hvammstanga. Samkvæmt samningi um sjúkraflutninga sem gerður var árið 2012 til ársloka 2015 átti að fækka bílum á landsbyggðinni úr 77 í 68. Fækkun bíla átti að vera komin til framkvæmda í næsta mánuði. Áður var búið að fækka bílum um þrjá og stendur sú ákvörðun óbreytt, þar sem fyrir liggur að þjónusta raskast ekki vegna þeirra breytinga. Frestun á fækkun sjúkrabíla tekur til þeirra bíla sem staðsettir eru í Ólafsvík, Búðardal, á Hvammstanga, í Ólafsfirði, á Raufarhöfn og Skagaströnd. Húnahornið greindi frá þessu. /KSE Húnaþings vestra Fjallskila- deildir fá styrk Á fundi sveitarstjórnar Húnaþings vestra í síðustu viku var samþykkt að veita fjallskiladeildum Víðdælinga og Miðfirðinga styrk vegna aukakostnaðar við göngur og leitarstörf sem urðu þegar þeim var flýtt sl. haust vegna slæmrar veðurspár. Á fundi sveitarstjórnar Húnaþings vestra í síðustu viku var samþykkt að veita fjallskiladeildum Víð- dælinga og Miðfirðinga styrk vegna aukakostnaðar við göngur og leitarstörf sem varð þegar þeim var flýtt sl. haust vegna slæmrar veðurspár. /PF Mynd: Heiðdís Lilja Magnúsdóttir, Óli Arnar Brynjarsson og Pétur Ingi Björnsson með bókina Eldað undir bláhimni. Útgefandi: Nýprent ehf. Borgarflöt 1 Sauðárkróki Póstfang Feykis: Box 4, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Páll Friðriksson – palli@feykir.is & 455 7176, 861 9842 Blaðamenn: Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is Guðrún Sif Gísladóttir – gudrun@feykir.is Hrafnhildur Viðarsdóttir – hrafnhv@nyprent.is Forsíðumynd: Arnþrúður Heimisdóttir Katla Hulda Halldórsdóttir, Molastöðum og Hlynur Jónsson, Þrasastöðum, í hlutverkum Maríu og Jósefs á aðventuhátíð Sólgarðaskóla í Barðskirkju í Fljótum.. Áskriftarverð: 450 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 490 kr. með vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum Hugleiðing Gleðileg jól og sól Jólin eru stórhátíð um víða veröld og margir sem nýta sér þau til ýmissa aðgerða og viðburða. Þeirra á meðal eru kaupmenn en í vikunni heyrði ég framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu kvarta yfir lélegri sölu á klæðnaði til landsmanna. Hann var þó ekki alveg vonlaus því opnunartími verslana var að lengjast og hann taldi að þá kæmust Íslendingar almennilega í jólagírinn og færu að versla. Jamm og fussum svei! Flestir tengja jólin við fæðingu Jesúbarnsins sem lítið á skylt við brjálæðislega verslun eða ver- aldlegan mikilfengleik heldur eru það mannkostir og kær- leikur manna á milli sem skiptir mestu máli, gæti ég trúað. En uppruna jólahalds má rekja til sólhvarfahátíða heiðinna manna, sem fögnuðu endur- komu sólarinnar sem lífgjafa, sigri ljóssins yfir myrkrinu. Ég var að vafra á Netinu og skoðaði m.a. Hávamál, kvæðasamsteypu sem lögð er Óðni í munn og er bæði fróðleikur og heilræði til viðvörunar eða lærdóms eins og segir í skýringum. Ég hef ekki kynnt mér heiðinn sið að neinu gagni en datt í hug hvort hægt væri að nota visku Óðins mér til gagns á þessum tímum upp- lýsinga og tækni rétt svona til gamans. Vegna plássleysis verður ritgerðin að bíða um sinn. Vits er þörf þeim er víða ratar. Dælt er heima hvað. Að augabragði verður sá er ekki kann og með snotrum situr. Svona hljómar ein vísan í Hávamálum en þarna eru menn hvattir til að afla sér visku og þekkingar sem hægt er að öðlast í hverskonar ferðum. Þjóðin er vel menntuð og flestir sækja sér þekkingu í skóla- kerfinu. Svo er hægt að ferðast um allan heiminn með hjálp tölvunnar og afla sér þekkingar og visku á hverju því sem hugurinn girnist. Heimskt er heimaalið barn segir ein- hversstaðar og það getur líka átt við þá sem eingöngu nýta sér það lélega efni sem einnig er að finna í tölvuheiminum og bætir síst á viskubrunninn. Þagalt og hugalt skyldi þjóðans barn og vígdjarft vera. Glaður og reifur skyli gumna hver uns sinn bíður bana. Menn ættu ekki að raupa mikið um ómerkilega hluti eins og mörgum er tamt heldur njóta lífsins lystisemda og vera vígdjarfir, a.m.k. andlega. Vera virkir í samfélaginu, taka þátt í félagsmálum og koma góðum hlutum á hreyfingu. Lifðu lífinu lifandi allt til enda. Bú er betra, þótt lítið sé. Halur er heima hver. Þótt tvær geitur eigi og taugreftan sal, það er þó betra en bæn. Betra er lítið bú en ekkert. Fátæklegt heimili getur verið höll hins vitra sé hugur hans rétt stemmdur og er hann þá húsbóndi heima hjá sér. Að eiga tvær geitur, nú eða jafnvel ódýran bíl sem hægt er að reka skynsamlega, er betra en vera sífellt að lengja í tröllauknum lánunum sem setja mann á hausinn á endanum. Ungur var eg forðum, fór eg einn saman: þá varð eg villur vega. Auðigur þóttumst er eg annan fann: Maður er manns gaman. Það þarf nú varla að finna nútímaskýringu á þessa snilld enda allir með góðan lesskilning sem hafa nennt að lesa svona langt í pistlinum. Allar vísurnar er hægt á einhvern hátt að herma upp á nútímann og hvet ég alla til að finna Hávamál og máta sig við vísurnar og jafnvel kynna sér þann heiðna sið sem varðveist hefur í handritum forfeðra okkar. Maður er manns gaman er nokkuð sem ágætt er að enda á og hef ég m.a. kynnst því í starfi mínu hér á Feyki. Nú eru tímamót þar sem ég kveð um áramótin blaðamannsstarfið og ritstjórn þessa blaðs og sný mér að allt öðru. Vil ég þakka öllum fyrir skemmtilegan tíma, þolinmæði og gott samstarf og óska ykkur, lesendur góðir, bjartra tíma með hækkandi sól. Páll Friðriksson, ritstjóri. Gert er ráð fyrir 2,4 m.kr. afgangi af rekstri Húnavatns- hrepps á næsta ári samkvæmt fjárhagsáætlun 2014 sem samþykkt var á hrepps- nefndarfundi í síðustu viku. Áætlað er að tekjur muni hækka um 14,5 m. kr. og að rekstrargjöld muni hækka um 15,2 m.kr. Ekki er gert ráð fyrir að ný lán verði tekin á árinu. Áætlað er að tekjur A og B hluta hækki um 14,5 m.kr. frá fyrra ári og verði alls um 343 m.kr. Gert er ráð fyrir að rekstrargjöld án fjármagnsliða hækki um 15,2 m.kr. og verði rúmar 334 m.kr. Tekjur skiptast þannig að skatttekjur eru áætlaðar 54,8%, aðrar tekjur 16,2% og framlög Jöfnunarsjóðs 29%. Rekstrarafgangur A og B hluta fyrir fjármagnsliði er áætlaður um 8,5 m.kr. og að teknu tilliti til fjármagnsliða er rekstrarafgangur áætlaður um 2,4 m.kr. Í áætlun um sjóðstreymi er gert ráð fyrir að veltufé frá rekstri verði 14,8 m.kr. /KSE Skagafjörður Húnavatnshreppur 77 milljón króna rekstrarafgangur Fjárhagsáætlun 2014 samþykkt Fjárhagsáætlun 2014 fyrir Svf. Skagafjörð og stofnanir þess var samþykkt á fundi sveitarstjórnar í síðustu viku. Í greinargerð sveitarstjóra kemur meðal annars fram að áætlunin sýni aðhald og hagkvæmni í rekstri samhliða því að standa vörð um þá þjónustu sem veitt er. Sveitarfélagið ætlar ekki að hækka gjaldskrár á árinu 2014, er snúa aðallega að börnum, barnafólki og eldri borgurum. Á vef Svf. Skagafjarðar segir að helstu niðurstöður fjárhags- áætlunar 2014 séu í saman- lögðum A og B hluta þær að samstæðan skilar 77 milljón króna rekstrarafgangi. Veltufé frá rekstri er áætlað 398 milljónir króna, fjárfestingar áætlaðar 350 milljónir króna og afborganir langtímalána verða 362 milljónir króna. Ný lántaka langtímalána verður 868 milljónir króna sam- kvæmt áætlun og skulda- hlutfall verði 1,41. Þriggja ára áætlun 2015-2017 var sömuleiðis samþykkt á fundi sveitarstjórnarinnar með sjö atkvæðum. Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir og Sigurjón Þórðarson sátu hjá við atkvæðagreiðsluna líkt og við fjárhagsáætlun fyrir árið 2014. /PF

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.