Feykir - 19.12.2013, Qupperneq 24
24 Feykir 48/2013
Betlehem piparköku-
húsið þótti best
Piparkökuhúsakeppni í Varmahlíð
Hin árlega piparkökukeppni
heimilisvalsins í Varma-
hlíðarskóla var haldin
föstudaginn 13. des. sl. en
hún hófst með sýningu á
húsunum um morguninn en
síðan var besta verkið valið í
leynilegri kosningu.
Það voru sextán verk sem
kepptu um titilinn þetta árið,
þemað var frjálst og var það
samdóma álit kjósenda að
piparkökuverkin hafi verið afar
fjölbreytt og almennt mjög
vönduð.
Kvenpeningurinn var sigur-
sæll að þessu sinni en það voru
þær Hrafnhildur Gunnarsdóttir
og Amalía Sigurrós Stefánsdóttir
sem hrepptu fyrsta sætið, Anna
Baldvina Vagnsdóttir, Ásdís Ósk
Elvarsdóttir og Þórdís Pálsdóttir
lentu í öðru og Kolbrún B.J.
Þrastardóttir og Inga Einars-
dóttir enduðu í þriðja sæti. /PF
Sigurvegarar Piparhúsakeppninnar frá vinstri: Anna Baldvina Vagnsdóttir, Þórdís
Pálsdóttir, Ásdís Ósk Elvarsdóttir, Kolbrún B.J. Þrastardóttir, Inga Einarsdóttir og
Hrafnhildur Gunnarsdóttir sem stóð uppi sem sigurvegari ásamt Amalíu Sigurrós
Stefánsdóttur en hana vantar á myndina.
í Menningarhúsinu Miðgarði,
laugardaginn 4. janúar 2014, kl. 20:30
Nú kemur til liðs við okkur hinn kunni tenórsöngvari Garðar Thor Cortes.
Fjölbreytt og skemmtileg efnisskrá, óperuaríur og sígild kórverk, íslensk og erlend.
Ræðumaður kvöldsins verður Bjarni Maronsson
Að venju verður dansleikur eftir tónleikana, þar sem Grétar Örvarsson leikur fyrir dansi
Forsala aðgöngumiða í Blóma- og gjafabúðinni á Sauðárkróki og í KS Varmahlíð.
Karlakórinn Heimir
óskar Skagfirðingum og öðrum velunnurum
gleðilegra jóla, árs og friðar og þakkar
stuðninginn á liðnum árum
N
Ý
PR
EN
T
eh
f.
Þrettándahátíð
Garðar Thor Cor
tes
Stefán R. GíslasonAri Jóhann Sigu
rðsson
Thomas Higgerso
n
www.heimir.is
Miðar fást í gjafaumbúðum,
tilvalið í jólapakkann!
Miðaverð: Tónleikar kr. 4.000 Dansleikur kr. 2.000
Tónleikar og ball kr. 5.000