Feykir


Feykir - 19.12.2013, Síða 7

Feykir - 19.12.2013, Síða 7
48/2013 Feykir 7 ( ÍÞRÓTTAGARPUR ) palli@feykir.is Jóna María Eiríksdóttir Valin í U17 í fótbolta og U16 í körfubolta Jóna María Eiríksdóttir heimasæta í Beingarði í Hegranesi var á dögunum valin í úrtakshóp U17 í fótbolta en einnig hefur hún verið kölluð til á úrtaksæfingu U16 í körfubolta. Jóna María er fædd árið 1998, dóttir Eiríks Loftssonar og Stefaníu Birnu Jónsdóttur og er hún Íþróttagarpur Feykis þessa vikuna. Íþróttagreinar? -Fótbolti og körfubolti. Íþróttafélag/félög: -Tindastóll. Helstu íþróttaafrek: -Komast í úrtakshóp U17 í fótbolta og U16 í körfubolta. Skemmtilegasta augnablikið: -Ekkert sem stendur þannig upp úr, alltaf gaman þegar gengur vel. Neyðarlegasta atvikið: -Ég var einu sinni að keppa á unglingalandsmóti og í einum leiknum var eina karfan sem var skoruð fyrir okkar lið, sjálfs- karfa hjá hinu liðinu. Þessu mun ég aldrei gleyma – frekar niðurlægjandi. Einhver sérviska eða hjátrú? -Nei, ekki svo að ég muni. Uppáhalds íþróttamaður? -Carlos Puyol, varnarmaður Barcelona Ef þú mættir velja þér andstæð- ing, hver myndi það vera og í hvaða grein mynduð þið spreyta ykkur? -Það yrði klárlega Dúfa þjálfari, við myndum fara í 1 á 1 í körfubolta. Hvernig myndir þú lýsa þeirri rimmu? -Þetta yrði harður slagur. Helsta afrek fyrir utan íþrótt- irnar? -Ég vann, ásamt vinkonum mínum Brynju og Matthildi kokkakeppni í skólanum, annars er ég ekki mikið í að gera einhver svakaleg afrek. Lífsmottó: -Aldrei að gefast upp! Helsta fyrirmynd í lífinu? -Loftur bróðir, hef alltaf litið upp til hans. Hvað er verið að gera þessa dagana? -Æfa og kaupa jóla- gjafir. Hvað er framundan? -Það eru æfingar hjá mér rétt fyrir jól og svo verður maður bara að halda sér í formi yfir jólin til að koma sterk inn eftir jólafrí. Allir ganga sárir frá vígvellinum Hinrik Már Jónsson rýnir í sálarlíf hestamanna Hugvekja sóknarnefndar- formanns Miklabæjar- sóknar til skagfirskra hestamanna sem flutt var á uppskeruhátíð hestamanna fyrir skömmu vakti mikla athygli og kátínu viðstaddra enda um mikið alvörumál að ræða. Feykir fékk leyfi til að birta efnið með von um að venjulegt fólk nái að skilja hugarheim hins almenna hestamanns. - - - - Það er mér langþráð fagnaðar- efni að fá hér tækifæri til að greina frá helstu niðurstöðum rannsókna minna á þessum einkennilega þjóðflokki sem kallast hestamenn og hrossa- ræktendur. Haldi einhver að hér eigi að fara með einhver gamanmál þá er það mis- skilningur, þetta er dauðans alvara. Að ytra útliti er ekki mikill munur á hestamönnum og öðru fólki en ef sálarlífið er skoðað kemur í ljós að ekki er nokkrar hliðstæður að finna á gjörvöllu ættartré homo sapiens. Á daginn kemur að þetta eru brothættar, ofur- viðkvæmar tilfinningaverur sem umgangast verður af mikilli nærfærni svo þær bíði ekki varanlegan skaða af. Gagnrýni er nokkuð sem hestamaðurinn þolir nánast ekki og verður því að ætla að það sé af einhverskonar sjálfspíningarhvöt að hann þrátt fyrir allt mætir með sjálfan sig og hross sín undir dóm annarra. Hestamenn hafa búið sér til einskonar vígvöll sem þeir íklæða nöfnum eins og: Gæðingakeppni, íþrótta- keppni og kynbótasýningar. Þar er svo dubbaður upp vitlausasti hluti hestamanna sem á að leggja mælistiku á hross og knapa og eru þessir fáráðar kallaðir dómarar. Sem vonlegt er verður enginn ánægður með það sem frá þessu aumingja fólki kemur og allir ganga sárir frá vígvellin- um. Samt mætast hestamenn aftur og aftur á svokölluðum hestamannamótum og alltaf er endirinn eins. Allt háð og spé er banvænt eitur í eyrum hestamanna. Hestafólk þolir það mun betur að gert sé grín af mökum þeirra heldur en hrossum. Já, hesta- menn eru mjög hörundsárir fyrir hönd hesta sinna. Gunnar Bjarnason segir frá því í höfuðriti sínu: Ættbók og sögu, að hann hafi eitt sinn verið á ferð um Langholtið og mætt Dúdda á Skörðugili ríðandi á stóðhesti og var Dúddi hágrát- andi og var ástæðan sú að Dúddi var að koma af kyn- bótasýningu með hest sinn og auðvitað höfðu dómaraskepn- urnar dæmt klárinn niður í skítinn. Á kynbótasýningum kristallast þessi ofurvið- kvæmni og dagfarsprúðustu bændur ganga úr öllum mannlegum ham þegar hross þeirra fá ekki þá dóma sem þeir væntu, sem er alltaf. Sá ljúfi drengur Kristinn Hugason varð að læsa sig inni í dóms- skúrnum á Hellu hér um árið þegar ósáttur hrossaræktandi ætlaði að húðstrýkja hann með písk og þið getið rétt ímyndað ykkur fárið sem greip um sig á sýningu í Eyjafirði fyrir mörgum árum þegar ráðu- nauturinn missti út úr sér að hann fengi vatn í munninn þegar hann sæi ákveðinn hest fara eftir brautinni. Og nú síðast í vor fór allt kerfið á hliðina á kynbótasýningu á Selfossi þegar minn góði lærimeistari Magnús Lárusson gleymdi að slökkva á míkró- fóninum þegar hann var að uppfræða meðdómendur sína um ónýti sumra hrossaætta og varð Maggi að skila skírteininu. Það er eins og fólk viti ekki að dómarar, þó vitlausir séu, eru líka fólk og eiga sínar hæðir og lægðir. Örskáldi nokkru sem ég þekki hefur þessi viðkvæmni hestamanna orðið innblástur að örsögu og hljóðar hún svo: „Grimmmunda Kolfríður hrossabóndi og oddviti í Stóra Vallahreppi hefur ekki verið mönnum sinnandi eftir að helsta flaggskip ræktunarbús- ins, stóðhesturinn Eistna Brúnn, var rakkaður niður á merasýningu á Súðavík af kyn- hverfum meykellingadóm- urum sem ekkert vit hafa á hrossum. Hefur Stóri Valla- hreppur slitið stjórnmálasam- bandi við Súðavík en Grimm- munda Kolfríður, höfðað einkamál gegn meykellingun- um á grundvelli laga númer: 6, grein, 69, sem meinar opin- berum starfsmönnum að leggja almenna borgara í einelti.'' (örlaga örsögur) Kynbótadómarar eru opin- berir starfsmenn og njóta því réttinda sem slíkir. Hví er ég að nefna þetta? Jú, það gerðist nefnilega 1980 og eitthvað þegar stóðhestastöð ríkisins var og hét að ríkistarfsmenn voru í verkfalli og komið var að þeirri stóru stund að dæma skyldi kynbótagripina. Voru nú góð ráð dýr. Eigendur hestanna þyrsti í að vera niðurlægðir eina ferðina enn og við því varð að bregðast. Datt þá stjórn stöðvarinnar, sem skipuð var þremur valinkunnum hrossabændum, það snjallræði í hug að þeir myndu bara dæma graðhestana sjálfir. Var gerður góður rómur að þessari niðurstöðu, ekki síst vegna þeirrar ánægjulegu til- viljunar að þessir þrír góð- bændur áttu megnið af þeim hestum sem til dóms áttu að koma og þeir því væntanlega þekkt manna best gæði gripanna. Ekki þarf að orðlengja það að þetta varð hin mesta dá- semdarsýning, langflestir hest- arnir fengu fínar tölur og andi friðar og sátta sveif yfir vötn- um. Einhvern veginn hefði mátt ætla að þarna væru hestamenn loksins dottnir niður á fyrirkomulag sem komið væri til að vera því að það er augljóslega langbest að hver og einn hestamaður dæmi sín hross sjálfur. Sú varð ekki raunin. Verkfallið leystist og aftur komu kynbótadómar- arnir, nú á svimandi launum, og sáu til þess að hrossa- ræktendur fengu aftur sín kvíðaköst fyrir sýningar og grát og ofsaköst eftir sýningar . Allt var fallið í sama gamla farið. Af þessu verður að draga þá ályktun að eins sé farið með hestamenn og menn af ákveðinni ætt í Þingeyjarsýslu að þeim líður ekki vel nema þeim líði illa. En þarf þetta að vera svona? Er keppnisandinn búinn að yfirbuga hestafólk? Er ekki kominn tími til að upphefja hin mýkri gildi hestamennskunnar? Er ekki lag að hestamenn mætist á fögrum sumardegi og knúsist? Hesturinn er í eðli sínu krúttlegt dýr, ætti ekki hestamaðurinn að vera það líka? Bjarni á Þóroddsstöðum er í rauninni mjög krúttlegur maður þó hann láti stundum eins og tarfur í flagi. Ég legg til að skagfirskir hestamenn skipi sér í fylkingarbrjóst og mæti á landsmót á Hellu næsta sumar og knúsi öll krúttin sem þar verða.

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.