Feykir


Feykir - 19.12.2013, Page 27

Feykir - 19.12.2013, Page 27
48/2013 Feykir 27 FE Y K IL EG A F LO TT A A FÞ R EY IN G A R H O R N IÐ Já , r ey nd u þi g vi ð þe tt a! Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautirnar má stelast í laufabrauðið. Tilvitnun vikunnar Loftkastalar eru ekki skjólgóð híbýli. - Guðmundur frá Lundi Sudoku Giljagámur Stekkjaskefill hefur verið greindur með áfallastreituröskun á háu stigi en óheyrilegt vinnuálag og endalaust áreiti barna í sykursjokki á jólaböllum hefur lagt þennan prúða svein að velli og mætir hann ekki til byggða þetta árið en verður í tvöfaldri lyfjameðferð langt fram eftir næsta ári. HINRIK MÁR JÓNSSON Örlaga örsögur ÞÓRARINN GUÐNI SVERRISSON -Mjög gott, svipað og önnur ár. Vonandi sjáum við fram á betri tíð. Feykir spyr... [SPURT Á KRÓKNUM] Hvernig heldur þú að nýja árið verði? BJARKI ELMAR TRYGGVASON -Frábært. ARNA BJÖRNSDÓTTIR -Hef fulla trú á að þetta verði frábært ár. HRAFNHILDUR GUÐJÓNSDÓTTIR -Bara best. ÓTRÚLEGT EN KANNSKI SATT Rafmagnsstóllinn Tannpína er eitthvað það versta sem getur hrjáð fólk og er þá gott að leita til tannlækna sem oftast ná að slá á verkina. Ótrúlegt en kannski satt þá var það tannlæknir frá Buffalo, dr Alfred P. Southwick (1826 - 1898), sem fann upp rafmagnsstólinn sem notaður hefur verið við aftökur í Bandaríkjunum. FEYKIR fyrir 10 árum ,,Það sem sólin sér” Fyrir 10 árum birti Feykir grein um Snorra Evertsson mjólkursamlagsstjóra í MKS þegar hann sendi frá sér 14 laga disk með eigin efni. ,,Ég hef haft áhuga á tónlist frá því ég var í barnaskólanum og horfði á Eyþór spila á orgelið. Ég var alltaf heillaður af því hljóð- færi, sérstaklega í kirkjunni þar sem ég reyndi að troða mér sem næst orgelinu. Þegar svo Hanna systir eignaðist gítar, þá hafði hún engan frið með hann fyrir mér. Síðan keypti ég mér rafmagnsgítar og var að leika mér með hann heima og spila með hinum og þessum, Bjarna Degi og fleirum. Svo má ekki gleyma því að ég var í lúðrasveitinni, spilaði þar á básúnu”, sagði Snorri Evertsson mjólkursamlagsstjóri, en Snorri kom óvænt upp á yfirborðið sem dægurlagahöfundur í Dægurlagakeppni Kven- félags Sauðárkróks árið 1997. FEYKIR fyrir 20 árum Jólasveinarnir hafa tekið tæknina í þjónustu sína Fyrir 20 árum mætti ljós- myndari Feykis þeim Hurða- skelli og Skyrgámi á leið sinni til Hóla í Hjaltadal. Þeir voru nýkomnir frá því að vitja barnanna á Hólastað og ætluðu Flett í gömlum Feykisblöðum Stærð dýrsins jafnaðist á við tvo hesta GAMALL FEYKIR UMSJÓN gudrun@feykir.is reyndar að líta inn í gamla bæinn líka ef ske kynni að börn væri að finna þar. Eins og sjá má hafa þeir jólasveinarnir, Hurðaskellir og Skyr- gámur, tekið tæknina í þjónustu sína, en það voru einmitt sveinarnir þeir sem vitjuðu barn- anna á Hólum um þessi jól. Að heimsókninni lokinni tóku þeir svo til beina stefnu á Hóla- byrðuna, fjallið ofan staðarins. FEYKIR fyrir 30 árum Sjóskrímsli sést á Skaga Fyrir 30 árum var rifjuð upp saga Sigurðar Sigfússonar, vinnumanns á Höfnum á Skaga, þegar hann komst í kast við sjóskrímsli er hann var á refaveiðum á þessum slóðum. Sigurður taldi að stærð dýrsins jafnaðist á við tvo hesta, að framan var það hátt og breitt og þar framan á tveir ranar. Hala hafði dýrið, sem það lagði fram á bakið. Engin augu var að sjá á skepnunni, en allmargar holur, sem Sigurður taldi að gætu verið augu. Sem vonlegt er varð Sigurður mjög hræddur við dýrið og skaut á það úr byssu sinni og tók þá skrímslið strikið á haf út. Atburð- urinn átti sér stað þann 3. apríl 1854 þegar Sig- urður var á refaveiðum.

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.