Fréttablaðið - 22.05.2018, Page 1

Fréttablaðið - 22.05.2018, Page 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —1 1 8 . t ö l u b l a ð 1 8 . á r g a n g u r Þ r i ð J u d a g u r 2 2 . M a Í 2 0 1 8 Það sem þjálfunin færir þér: • Aukið sjálfstraust, sterkari sjálfsmynd og aukin vellíðan • Trú á eigin getu, skýrari markmið og meiri árangur • Kynnist nýju fólki, bætir samskiptahæfni og styrkir sambönd • Jákvæðara viðhorf og minni kvíði Sumarnámskeið hefjast: 20 til 25 ára 28. maí og 7. ágúst 16 til 19 ára 29. maí og 8. ágúst 13 til 15 ára 5. júní og 8. ágúst 10 til 12 ára 11. júní og 8. ágúst Ókeypis kynningartími 22. maí – Skráning á dale.is/ungtfolk Nánari upplýsingar og skráning á dale.is eða í síma 555 7080 Upplifðu, njóttu og skapaðu tækifæri Copyright © 2018 Dale Carnegie & Associates, Inc. All rights reserved. Gen next_050918_iceland Fréttablaðið í dag skoðun Borgarstjóri skrifar um húsnæðismarkaðinn. 8 sport Meiðsli Hannesar Þórs reyndust ekki alvarleg. 11 lÍfið Glæsilegir gest- ir og mikill íburður í hinu konunglega brúðkaupi. 20 dóMsMál Lögmannafélag Íslands fór langt út fyrir lagaskyldu sína og þá rannsóknarskyldu sem hvílir á félaginu við mat sitt á hvort Atli Helgason fengi lögmannsréttindi sín að nýju. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjaness sem í síð- ustu viku ákvað að Atli mætti starfa sem lögmaður, líkt og Fréttablaðið greindi frá. Atli missti réttindi sín þegar hann réð Einari Erni Birgis- syni bana árið 2000, og hlaut fyrir það sextán ára fangelsisdóm. Ríkis- saksóknari hefur áfrýjað úrskurði héraðsdóms til Landsréttar. Atli lagði fram beiðni um að fá lögmannsréttindi sín endurheimt árið 2016. Hann dró beiðnina til baka í kjölfar fjölmiðlaumfjöll- unar og lýsti því yfir að hún hefði endurvakið þjáningar aðstand- enda Einars Arnar. Fréttablaðinu er ekki kunnugt um hvers vegna hann ákvað að sækja um réttindin að nýju. Atli fékk uppreist æru árið 2015 en óflekkað mannorð er meðal skilyrða þess að hafa mál- flutningsréttindi. Annað skilyrði er að lögmenn hafi ekki farið í gjald- þrot, en þeir geta óskað eftir undan- þágu frá því skilyrði eftir að hafa haft forræði á búi sínu í þrjú ár sam- fleytt. Atli fór í gjaldþrot árið 2001 en hefur haft forræði á fjármunum sínum síðastliðin fjórtán ár. Lögmannafélagið hóf frum- kvæðisrannsókn á persónulegum högum Atla eftir að hann óskaði eftir undanþágu frá skilyrði um gjaldþrot. Rannsóknin sneri fyrst og fremst að brotum Atla árið 2000, kaupum hans á tveimur fasteignum árið 2016, setu hans í stjórn einka- hlutafélagsins Versus og hvort Atla hefði „tekist að setja afbrot sitt í rétt samhengi og læra af því“. Félagið skoðaði fjármál Atla allt að átján ár aftur í tímann, meðal annars með því að kalla eftir öllum skattframtölum hans og gögnum frá skiptastjóra og Þjóðskjalasafni, áður en það synjaði beiðni hans um meðmæli. Atli kærði ákvörðunina til héraðsdóms og sagði að stuðst hefði verið við ólögmæt sjónarmið, meðal annars með því að skoða fjárhagsstöðu hans svo langt aftur í tímann. Í dag væri hann í góðri stöðu fjárhagslega og hefði hvorki smakkað fíkniefni né áfengi í hátt í 20 ár. Dómurinn tók undir að synj- unin hefði verið byggð á ómálefna- legum sjónarmiðum, auk þess sem engin lagastoð heimilaði félaginu að rannsaka persónulega hagi fólks. Þannig hafi stjórn Lögmannafélags- ins farið langt út fyrir valdsvið sitt. Dómari talar nokkuð tæpitungu- laust um rannsókn lögmanna- félagsins, en tekur fram að brot Atla hafi verið svívirðilegt. Hins vegar verði að líta til þess að 17 ár séu frá því að Atli hlaut dóminn, hann hafi afplánað sína refsingu og ekki orðið uppvís að refsiverðri háttsemi síðan. Því sé rétt að verða við kröfu hans um endurheimt lög- mannsréttinda. – sks Gengu of langt gagnvart Atla Héraðsdómur telur Lögmannafélagið hafa farið langt út fyrir valdsvið sitt í rannsókn á persónulegum högum Atla Helgasonar, dæmds morðingja, þegar hann sótti um endurheimt lögmannsréttinda sinna. árneshreppur Tómas Guðbjarts- son læknir segir dapurlegt að fylgj- ast með umræðu um Hvalár- virkjun, í grein í blaðinu í dag. „Þrír af fimm fulltrúum sveit- arstjórnar Árneshrepps, með sveitarstjórann í broddi fylk- ingar, leggja allt í sölurnar til að þröngva í gegn umdeildri og óafturkræfri fram- kvæmd,“ segir Tómas og vísar í fyrirhuguð virkjanaáform. Árneshreppur hefur verið í kastljósi fjölmiðla undan- farið en Fréttablaðið sagði frá því að hópur fólks hefði skráð sig til heimilis í sveitarfélaginu til að freista þess að hafa áhrif á niður- stöður sveitarstjórnarkosninga þar sem stærsta málið er virkjun Hvalár. Meirihluti sveitar- stjórnarinnar er fylgjandi virkjunaráformunum. – ósk / sjá síðu 9 Tómas segir sveitarstjórann þröngva Hvalárvirkjun í gegn slYs Tveir erlendir ferðamenn létust í slysi við veiðar við Villingavatnsós við Þingvallavatn. Kona féll í vatnið og eiginmaður hennar kastaði sér á eftir henni. Björgunin reyndist árangurs- laus og örmagnaðist maðurinn. Slysið átti sér stað um hádegisbil á hvítasunnudag en þyrla Landhelgis- gæslunnar var ekki ræst út þar sem áhöfn á vakt uppfyllti ekki skilyrði um lágmarks hvíldartíma. Fólkið var úrskurðað látið í fyrrakvöld. Þyrlan hafði fyrr um daginn verið við leit í Ölfusá eftir að lögreglu barst tilkynning um að maður hefði farið fram af Ölfusbrú og endað í ánni. Mannsins var leitað í gær og í fyrra- dag en leit hætt í bili gærkvöld eftir að hún hafði reynst árangurslaus. Leitað verður á ný á morgun. Mikið álag hefur verið á viðbragðs- aðilum á Suðurlandi liðna viku. Á miðvikudag varð banaslys þegar fólksbíll og jepplingur skullu saman vestan við Markarfljót. Sama dag var leitað að tveimur ferðamönnum sem lentu í snjóflóði við Grímsfjall. Þeir fundust heilir á húfi . – jóe Banaslysin öll á Suðurlandi Atli Helgason Hin árlega mótorhjólamessa fór fram í Digraneskirkju í gærkvöldi. Gestir messunnar voru tæplega 400 en vél- fákarnir voru um helmingi færri. Kraftaklerkurinn séra Gunnar Sigurjónsson þjónaði til altaris. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR plús 2 sérblöð l fólk l  fasteignir *Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 2 2 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :5 7 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F D A -9 D 2 C 1 F D A -9 B F 0 1 F D A -9 A B 4 1 F D A -9 9 7 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 2 1 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.