Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.05.2018, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 22.05.2018, Qupperneq 2
Veður Vaxandi suðaustanátt í dag með rigningu, 15-23 m/s sunnan- og vestanlands upp úr hádegi og talsverð rigning og má búast við hvössum vindhviðum við fjöll á þeim slóðum sem getur verið var- hugavert farartækjum sem taka á sig mikinn vind. sjá síðu 16 Garðsláttuvélar sem slá á þínum gönguhraða Gerir sláttinn auðveldari ÞÓR FH Akureyri: Baldursnes 8 603 Akureyri Sími 568-1555 Opnunartími: Opið alla virka daga Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Vefsíða og netverslun: www.thor.is Skin á milli skúra í borginni Þau voru fjölbreytt farartækin sem sem voru samankomin á Ingólfstorgi þegar gestir torgsins, sem voru á öllum aldri, nutu langþráðrar veðurblíðu síðdegis í gær. Segja má að um skin á milli skúra sé að ræða en von er á talsverðri rigningu á Suður- og Vesturlandi síðdegis í dag. Fréttablaðið/Ernir KOsNINGAR Auglýsingar Samfylk- ingarinnar í gluggum húss á horni Miklubrautar og Lönguhlíðar voru fjarlægðar eftir að kvörtun vegna þeirra barst frá íbúa í húsinu. Ósam- þykktar stúdíóíbúðir eru í rýminu þar sem auglýsingarnar voru á gluggum. Í húsnæðinu var áður blómabúð en sú hvarf þaðan fyrir nokkrum árum. Auglýsing frá Samfylkingunni var sett á gluggana fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar og var það gert að nýju fyrir kosningarnar nú. Andlit borgarstjórans Dags B. Egg- ertssonar prýddi auglýsingarnar auk slagorðsins að Miklabraut yrði sett í stokk. Auglýsingarnar voru teknar niður um helgina. „Fyrir fjórum árum bauð ég Sam- fylkingunni að setja þarna upp aug- lýsingar og voru þær þarna í tvær vikur og síðan teknar niður. Eftir það hékk þarna auglýsing frá Trygg- ingamiðstöðinni þar til kvörtun barst frá eiganda í húsinu sem vildi ekki hafa hana. Þá var hún tekin niður,“ segir Jón Magngeirsson, eigandi húsnæðisins. Jón segir að auglýsingin hafi fengið að hanga óáreitt fyrir síð- ustu kosningar og því hafi hann gert ráð fyrir að svo yrði aftur nú. Athugasemd hafi hins vegar borist frá nágranna og var auglýsingin því tekin niður til að forðast læti. „Þarna á bakvið eru stúdíóíbúðir. Þær fást auðvitað ekki samþykktar og ég borga því af þessu eins og um fyrirtæki sé að ræða,“ segir Jón. Aðspurður hvort leigjendur íbúð- anna hafi verið samþykkir auglýs- ingunni segir Jón að þeim hafi verið alveg sama um það. Íbúar voru ekki heimavið þegar Fréttablaðið bar að garði til að leita viðbragða hjá þeim. Fréttablaðið reyndi að ná tali af Degi B. Eggertssyni vegna málsins en ekki náðist í hann. Pétur Ólafs- son, aðstoðarmaður borgarstjóra, vildi ekki láta hafa neitt eftir sér um málið og vísaði á Rögnu Sigurðar- dóttur, kosningastjóra Samfylk- ingarinnar. „Eigandi hússins bauð okkur þetta auglýsingapláss án endur- gjalds. Hann var fyrsti fótbolta- þjálfari Dags og gamall stuðnings- maður úr Árbænum. Plássið fékkst án endurgjalds fyrir fjórum árum og aftur nú. Þetta er hans leið til að styrkja framboðið,“ segir Ragna. Að sögn Rögnu voru auglýsing- arnar teknar niður eftir að fram- boðið fékk fregnir af því að deilur stæðu um auglýsingarnar innan húsfélagsins. „Það er ekki okkar hlutverk að kynda undir deilum í húsfélaginu,“ segir Ragna. Aðspurð um hvort Samfylkingin hafi kannað hug íbúa stúdíóíbúðanna áður en auglýsing- unum var komið fyrir segir hún að þau hafi verið í góðri trú og ekki vitað að þar byggi fólk. joli@frettabladid.is Húsfélagið lét fjarlægja mynd af borgarstjóra Andlit Dags B. Eggertssonar prýddi auglýsingar á húsi á horni Miklubrautar og Lönguhlíðar. Íbúar í ósamþykktum stúdíóíbúðum í húsinu kvörtuðu. Kosn- ingastjóri Samfylkingarinnar segir að þau hafi ekki vitað að fólk byggi í húsinu. Gamall þjálfari Dags er eigandi hússins við Miklubraut. Fréttablaðið/Ernir Það er ekki okkar hlutverk að kynda undir deilum í húsfélaginu. Ragna Sigurðardóttir, kosningastjóri Samfylkingarinnar ReyKjANesbæR Á síðasta fundi Íþrótta- og tómstundaráðs Reykja- nesbæjar var samþykkt að leggja það til við bæjarráð Reykjanes- bæjar að veita tvo styrki, samtals að upphæð sex milljónir króna, til Ungmennafélags Njarðvíkur og Keflavíkur ungmennafélags. Fáist styrkirnir samþykktir verður þeim úthlutað til meistaraflokka körfu- knattleiks- og knattspyrnudeilda félaganna. Þetta kemur fram í fund- argerð ráðsins. Í fundargerðinni er sagt að for- menn körfuknattleiks- og knatt- spyrnudeildar beggja félaga hafi borið upp erindi á fundinum. Þar segir að í máli þeirra hafi komið fram að mikilvægt sé að ráða starfs- mann til að hjálpa til við rekstur félaganna og að rekstrarvandi þeirra sé nokkur. – gþs Milljóna styrkir til íþróttafélaga fyrir bæjarráð bANdARíKIN Gina Haspel tók í gær við embætti forstjóra bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, fyrst kvenna. Á vef CNN segir að Donald Trump hafi lofað Haspel í hástert við tilefnið, en þetta er í fyrsta sinn sem Trump heimsækir höfuðstöðv- ar CIA síðan í janúar í fyrra. Trump sagði Haspel njóta virð- ingar og að samstarfsfélagar hennar hjá leyniþjónustunni treystu henni en hún hóf störf hjá CIA árið 1985. Ferill hennar er ekki flekklaus en hún hefur verið gagnrýnd fyrir yfir- heyrsluaðferðir sem notaðar voru í fangelsi sem hún stjórnaði. Þar hafi grunaðir hryðjuverkamenn verið pyntaðir. Til að mynda hefur John McCain, öldungadeildarþingmaður Repúblikana, talað gegn ráðningu Haspel. – gþs Haspel orðin forstjóri CIA VíK í MýRdAl Þorkell Ingimarsson, skólastjóri Víkurskóla í Vík í Mýr- dal, lætur af störfum um mánaða- mótin eftir að sveitarstjórn Mýr- dalshrepps lét gera sálfélagslega úttekt á líðan starfsfólks í skólanum. Í tilkynningu á vef Mýrdalshrepp kemur fram að ólga hafi verið við skólann það sem af er ári. „Niður- staða sveitarstjórnar eftir yfirferð þeirrar úttektar var sú að ekki yrði hjá því komist að breyta um yfir- stjórn í skólanum,“ segir í tilkynn- ingunni. Ásgeir Magnússon, sveitarstjóri Mýrdalshrepp, staðfesti að óánægja hefði verið með ákveðna þætti hjá yfirstjórn skólans. Ráðist hefði verið í úttekt á líðan starfsfólks eftir ábendingar og niðurstaðan verið sú að Þorkell léti af störfum. – dfb Sagt upp eftir úttekt á líðan starfsfólks 2 2 . M A í 2 0 1 8 Þ R I ð j u d A G u R2 f R é t t I R ∙ f R é t t A b l A ð I ð 2 2 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :5 7 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F D A -A 2 1 C 1 F D A -A 0 E 0 1 F D A -9 F A 4 1 F D A -9 E 6 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 2 1 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.