Fréttablaðið - 22.05.2018, Qupperneq 4
8.395 3.995
Verð áður: 13.995 Verð áður: 7.990
KENWOOD
ÖRBYLGJUOFN
K20MSS10E
REMINGTON
PS PLUS HERRARAKVÉL
PR1250
AÐEINS
100 STK.
-40% -50%
AÐEINS
40 STK.
Í STÆRÐ
21.995
Verð áður: 33.995
VIVOSPORT
SLATE HEILSUÚR S/M & L
0100178902 0100178900
-35%
87.995 11.995
Verð áður: 109.995 Verð áður: 19.995
ACER
SWIFT 3 SIGNATURE FARTÖLVA
ACNXGNUED008
RADIONETTE
SOLIST ÚTVARP
RNSHDB15E
heia norge!
tilboðsdagar 14 – 27 maí
VIÐ FöGNUM 20 ÁRA SAM-
STARFI VIÐ ELKJøP Í NOREGI
með tveggja vikna norskri
veislu og masse fine priser!
11.995
Verð áður: 19.995
PIONEER
ÞRÁÐLAUS HEYRNARTÓL
SEMS7BTBK SEMS7BTBR SEMS7BTSI
-40%
AÐEINS
100 STK.
-20% -40%
AÐEINS
40 STK. AÐEINS
80 STK.
AÐEINS
100 STK.
byggingariðnaður Nokkuð er um
mútubrot og aðra óeðlilega fyrir-
greiðslu í byggingariðnaði á Íslandi,
sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu,
ekki síst í nágrannasveitarfélögum
höfuðborgarinnar. Mútugreiðslur
og aðrar ólöglegar eða óeðlilegar
fyrirgreiðslur í viðskiptalífinu koma
þó sjaldan inn á borð eftirlitsaðila
í refsivörslukerfinu og dómar sem
fallið hafa á þessu sviði eru mjög fáir.
Þó eru dæmi um slíka háttsemi.
Fyrirgreiðslan sem boðin er eða
óskað er eftir, gegn því að samningur
um sölu lóðar eða stór byggingar-
verkefni gangi í gegn, getur verið með
ýmsum hætti. Í samtölum blaðsins
við fjárfesta í umræddum iðnaði,
verktaka og aðra sem til þekkja, hafa
verið nefnd dæmi allt frá hagstæðu
verði á þakíbúðum bygginga sem
rísa eiga á umræddum byggingarreit
til fyrirheita um margar milljónir í
reiðufé í brúnum bréfpokum.
Þótt algengara sé að boð um sér-
staka fyrirgreiðslu komi frá væntan-
legum fjárfesti eða verktaka nefna
heimildarmenn einnig dæmi um að
óskir um greiðslu í reiðufé komi frá
seljanda eða verkkaupa. Þeir sem
taka við slíku mútufé eru ekki endi-
lega sjálfir eigendur hagsmunanna
sem um er að tefla heldur gjarnan
þriðju aðilar á borð við fasteignasala
eða aðra sem eru í aðstöðu til að liðka
til fyrir viðskiptunum.
„Hvort tveggja er refsivert, hvort
heldur menn eru að þiggja mútur
eða bjóða, og gildir þá einu hvort það
er í einka- eða opinbera geiranum,“
segir Ólafur Þór Hauksson héraðs-
saksóknari.
Hann segir hækkun fasteignaverðs
og mikla eftirspurn eftir lóðum og
fasteignum auka hættu á brotum af
þessu tagi. „Freistnivandinn verður
til þegar verðið á þessum gæðum
verður svona hátt,“ segir Ólafur.
Aðspurður um eftirlit og
rannsóknir á mútugreiðslum
og hvort það sé ekki erfiðleik-
um bundið vegna þess að erf-
itt sé að rekja slíkar greiðslur,
segir Ólafur að viðskipti með
háar fjárhæðir í reiðufé ættu að vekja
athygli í kerfinu.
Vinnuhópur á vegum samtaka Evr-
ópuríkja um aðgerðir gegn peninga-
þvætti og fjármögnun hryðjuverka
lauk nýverið sinni fjórðu úttekt
hér á landi. Í niðurstöðum
kemur meðal annars fram
að íslensk stjórnvöld hafi
takmarkaðan skilning á
hættum sem fylgja pen-
ingaþvætti og þótt laga-
umhverfið sé gott hafi
rannsóknum
og eftirliti
m e ð p e n -
ingaþvætti
ekki verið
n æ g i l e g a
vel sinnt.
Í fréttatilkynningu um niður-
stöður úttektarinnar á vef Stjórnar-
ráðsins er helstu úrbóta stjórnvalda
getið, þar á meðal innleiðingar nýs
upplýsingatæknikerfis hjá peninga-
þvættisskrifstofu héraðssaksóknara,
sem ætlað er að hraða vinnslu og
greiningu tilkynninga og aukið sam-
starf milli þeirra sem koma að mála-
flokknum.
Ólafur segir að eftirlitið verði
markvissara með samstarfi fleiri
aðila eins og Fjármálaeftirlits, banka,
eftirlitsstofnana með fasteignasölum,
bílasölum og öðrum sem höndli með
dýra lausafjármuni. „Þessum aðilum
er ætlað að tilkynna grunsamleg
viðskipti, og viðskipti með háar fjár-
hæðir í reiðufé falla þar undir,“ segir
Ólafur. adalheidur@frettabladid.is
Mútugreiðslur séu freistandi í
byggingariðnaðinum á Íslandi
rEyKJaVÍK Landspítalinn hefur
óskað eftir því við Reykjavíkurborg
að fá tímabundin afnot af landi
við Umferðarmiðstöðina, BSÍ,
undir 237 bráðabirgðabílastæði
vegna framkvæmda við spítalann.
Afgreiðslu erindis þess efnis var
frestað á fundi borgarráðs á fimmtu-
dag.
Í beiðni Nýs Landspítala ohf.
kemur fram að vegna fyrirhugaðra
framkvæmda innan lóðar Land-
spítalans muni stór hluti núverandi
bílastæða spítalans og Háskóla
Íslands lenda innan framkvæmda-
svæðisins. Áætlað er að fram-
kvæmdir hefjist í næsta mánuði og
standi yfir til ársloka 2021.
„Á framkvæmdatíma er nauðsyn-
legt að tryggja aðgengi að spítalan-
um fyrir sjúklinga, gesti spítalans og
starfsfólk, því er þörf á bráðabirgða-
bílastæðum bæði innan og utan
lóðar Landspítalans,“ segir orðrétt
í umsókn spítalans.
Gert er ráð fyrir að malbikuðum
bráðabirgðabílastæðum verði
komið fyrir á grænum reitum norð-
an við BSÍ milli Vatnsmýrarvegar
og Gömlu Hringbrautar. Áætlað er
að 87 bílastæði verði á eystri gras-
reitnum en 150 á þeim vestari.
Gert er ráð fyrir því að bílastæðin
verði gjaldskyld fyrir gesti spítalans
en að starfsfólk og nemendur við
Landspítalann muni hafa sérstök
bílastæðakort. Nýr Landspítali
mun lagfæra reitina á eigin kostnað
að framkvæmdum loknum nema að
um annað semjist. – jóe
Grænir reitir við BSÍ víki fyrir bráðabirgðabílastæðum spítalans
Mútugreiðslur og óeðlilegar fyrirgreiðslur í viðskiptalífinu koma sjaldan inn á borð eftirlitsaðila. Fréttablaðið/PJEtUr
Ólafur Þór
Hauksson,
héraðssak-
sóknari
Dæmi eru um óeðlilegar
fyrirgreiðslur í bygg-
ingariðnaði á Íslandi.
Héraðssaksóknari segir
hækkun fasteignaverðs
skapa freistnivanda.
Gert er ráð fyrir því að
bílastæðin verði gjaldskyld
fyrir gesti spítalans
ÍSraEL Paragvæjar opnuðu í gær
sendiráð sitt í Ísrael en það er stað-
sett í Jerúsalem. Ríkið varð þar með
annað á eftir Bandaríkjunum til að
flytja sendiráð sitt frá höfuðborg-
inni Tel Avív til Jerúsalem.
Horacio Cartes, forseti Paragvæ,
flaug til Ísraels til að vera viðstaddur
opnunarathöfnina. Benjamin Net-
anjahú, forsætisráðherra Ísraels, var
einnig viðstaddur. „Þetta er söguleg-
ur dagur sem styrkir tengslin milli
Paragvæ og Ísraels,“ sagði Cortes í
ræðu af þessu tilefni.
Staða Jerúsalem er ein stærsta
hindrunin í vegi friðarsamkomulags
fyrir botni Miðjarðarhafs. Palestínu-
menn gera tilkall til austurhluta
borgarinnar en Ísraelar hertóku
hann árið 1967. Þeir telja að borgin í
heild eigi að heyra undir Ísrael. Flest
ríki heims viðurkenna ekki tilkall
Ísraela til borgarinnar. – jóe
Nýtt sendiráð
Paragvæ opnað
í Jerúsalem
STJÓrnSÝSLa Vinnueftirlit ríkisins
stöðvaði framkvæmdir við Grensás-
veg 12 þar sem asbest hafði verið
fjarlægt af húsinu án þess að sótt
hefði verið um tilskilin leyfi.
Eftirlitsmaður stofnunarinnar tók
framkvæmdasvæðið út. Í eftirlits-
skýrslu kemur fram að starfsmaður
fyrirtækisins hafi veitt eftirlits-
skýrslu móttöku en neitað að kvitta
undir hana. Við skoðun kom í ljós að
asbestleifar hefðu borist inn í húsið
og væru á verkpöllum sem stóðu við
það. Steinullarmottur sem höfðu
verið fyrir innan asbestplöturnar
höfðu á nokkrum stöðum fokið.
Þá voru gerðar athugasemdir við
frágang á vinnupöllum en á einum
stað vantaði gönguleið milli mis-
hárra palla. Starfsmenn þurftu því
að stökkva á milli. Athugasemd var
einnig gerð við það að starfsmenn
voru ekki með hjálma. – jóe
Stöðvuðu
framkvæmdir
vegna asbests
2 2 . m a Í 2 0 1 8 Þ r i ð J u D a g u r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a b L a ð i ð
2
2
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:5
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
D
A
-B
5
D
C
1
F
D
A
-B
4
A
0
1
F
D
A
-B
3
6
4
1
F
D
A
-B
2
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
2
1
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K