Fréttablaðið - 22.05.2018, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 22.05.2018, Blaðsíða 41
BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is GE bílar Reykjanesbæ www.gebilar.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 * V ið m ið un ar tö lu r f ra m le ið an da u m e ld sn ey tis no tk un í bl ön du ðu m a ks tri . Bú na ðu r b íls á m yn d er fr áb ru gð in n au gl ýs tu v er ði E N N E M M / S ÍA / N M 8 7 1 1 1 N is s a n J u k e 5 x 2 0 a lm e n n m a rs TÖFFARINN Í FJÖLSKYLDUNNI NISSAN JUKE ACENTA SJÁLFSKIPTUR / 117 HESTÖFL / EYÐSLA 6,0 L/100 KM* 3.350.000 KR. Þjónustumiðstöð tónlistarfólks Hvað? Hvenær? Hvar? Þriðjudagur hvar@frettabladid.is 22. maí 2018 Tónlist Hvað? Kex- Jazz // DÓH- Tríó Hvenær? 20.30 Hvar? Kex hostel, Skúla- götu Á jazzkvöldi Kex Hostels í kvöld leikur DÓH- Tríó. Tríóið skipa þeir Helgi R. Heiðarsson á saxófón Daníel Helgason á gítar og Óskar Kjartansson á trommur. DÓH-tríó var stofnað á vormánuðum 2013. Meðlimirnir höfðu áður leikið saman í ýmsum verkefnum. Fyrstu tónleikar þeirra voru á Jazzhátíð 2013 og síðan þá hefur hljóm- sveitin getið sér gott orð. Tríóið leggur nú drög að fyrstu breið- skífu sinni sem verður tekin upp í vor og gefin út í haust. Tónlistin er margskipt og mætti flokkast á ýmsa vegu. Í grunninn er sveitin þó að vinna með þær jazzhefðir sem meðlimir tileinkuðu sér í Tón- listarskóla FÍH en áhrif úr popp- og rokkmúsík lauma sér inn. Viðburðir Hvað? Fjármál HM 2018 Hvenær? 17.00 Hvar? Íslandsbanki, Hagasmára Skemmtilegur fræðslufundur um fjármálahlið heimsmeistara- mótsins í Rússlandi. Björn Berg Gunnarsson, fræðslustjóri Íslands- banka, flytur erindi og ræðir málin við Hermann Hreiðarsson, fyrr- verandi atvinnumann og landsliðsfyrirliða. Frítt á fundinn sem er opinn öllum á meðan hús- rúm leyfir. Boðið verður upp á léttar veitingar. Hvað? Fræðslukvöld um samninga- gerð í tónlistageiranum Hvenær? 17.00 Hvar? Petesen svítunni, Ingólfsstræti ÚTÓN og STEF bjóða ykkur vel- komin á ókeypis fræðslukvöld um samningagerð í Petersen Svítunni. Á fræðslukvöldinu munum við fara yfir allt sem snýr að samn- ingagerð í tónlistargeiranum. Fyrri fyrirlesarinn er Guðrún Björk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri STEFs og hæstaréttarlögmaður. Hún hefur í gegnum starf sitt aðstoðað fjölmarga tónlistar- menn við gerð samninga og þá sérstaklega við útgefendur, tón- listarforleggjara og kvikmynda- framleiðendur. Einnig mun Sindri Ástmarsson umboðsmaður halda erindi, en hann átti stóran þátt í því að koma hljómsveitinni Kaleo á radar hjá sumum stærstu tón- listarfyrirtækjum heims og hefur sinnt umboðsmennsku og samn- ingagerð síðan þá. Hvað? World Class Competition Iceland 2018 Hvenær? 19.30 Hvar? Perlunni Úrslitakvöld World Class Com- petition þar sem sem fjórir bestu barþjónar landsins sýna listir sínar. Léttar veitingar og drykkir í boði. DJ Þura Stína verður á svæð- inu og heldur uppi stemningunni. Þegar keppni lýkur og sigurvegari hefur verið krýndur heldur gleðin áfram á „Út í bláinn“ á efstu hæð Perlunnar til miðnættis. Hvað? Snorri Sturluson og Reykholt, málþing Hvenær? 16.00 Hvar? Veröld – húsi Vigdísar Til umræðu er Reykholtsverkefnið í tilefni af útkomu bókanna Snorri Sturluson and Reykholt og The Buildings of Medieval Reykholt. Sýningar Hvað? Olaf Otto Becker – Ís og land Hvenær? 10.00 Hvar? Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Tryggvagötu Ís og land – Ljósmyndir frá Íslandi og Grænlandi 1999-2017 er yfir- skrift sýningar í Ljósmyndasafni Reykjavíkur með myndum eftir hinn þekkta þýska ljósmyndara Olaf Otto Becker. Áhrifamiklar og ægifagrar landslagsljósmyndir Olafs Ottos Beckers fjalla um breytingaferli í náttúrunni sem orsakast af loftslagsbreytingum og öðrum manngerðum áhrifum. Í verkum hans sameinast persónu- leg og listræn nálgun á heimilda- ljósmyndun sem vekur upp spurn- ingar um félagslega og menningar- lega þætti í samtímanum. Hvað? Reykjavík 1918, sýning í Aðal- stræti 10 Hvenær? 10.00 Hvar? Aðalstræti 10 Ljósmyndasýningin Reykjavík 1918 í Aðalstræti 10 er samstarfs- verkefni Þjóðminjasafns Íslands og Borgarsögusafns Reykjavíkur í tilefni aldarafmælis fullveldis Íslands og er styrkt af afmælis- nefnd viðburðarins. Höfundur texta sýningarinnar er skáldið Sjón og kemst hann svo að orði um viðfangsefni sýningarinnar: „Er maður hugsar til fólksins sem lifði árið 1918 þykir manni ótrú- legt að það hafi haft tíma til þess að lifa svokölluðu venjulegu lífi, það hljóti að hafa verið of önnum kafið að takast á við hina sögulegu viðburði til þess að elska, vinna, dreyma og þjást. En líkt og við sjálf – sem einnig þykjumst lifa viðburðaríka tíma – átti það sér sína daglegu tilveru, í sinni litlu en ört vaxandi Reykjavík, og um það bera ljósmyndirnar á þessari sýningu vitni.“ World Class bar- þjónakeppnin fer fram í Perlunni í kvöld þar sem besti barþjónn Íslands verður krýndur. m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 17Þ R i ð J U D A g U R 2 2 . m A í 2 0 1 8 2 2 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :5 7 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F D A -C 4 A C 1 F D A -C 3 7 0 1 F D A -C 2 3 4 1 F D A -C 0 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 2 1 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.