Þórr


Þórr - 01.12.1910, Qupperneq 6

Þórr - 01.12.1910, Qupperneq 6
6 hún fann það, að hún gat aldrei elskað mig sem Filip — sagði hún mér það. Eg gleymi aldrei því augnabliki. Það var á fæðingardegi hennar, og hafði eg keypt lítinn gullki'oss til að gefa henni. Þegar eg hafði borðað kvöldverð kallaði eg á liana, tók hina litlu öskju er krossinn lá í og sjmdi lienni. Hún leit á hann, og svo í'endi hún sínum stóru, alvarlegu augum á mig, féll i grát ogsagði: »Fyrirgefðu mér, Jean, eg get eigi tekið á móti lionum; eg get aldrei átt þig, því eg elska annan — eg elska Filip«. Þetta var hörð raun fyrir íuig, þó fanst mér eðlilegt, við nákvæmari yfirvegun, að liún tæki vin minn fram yjir mig, og eg elskaði bæði. Þegar sá tími kom, að þau giftu sig, lánaði eg þeim talsvert af peningum, svo þau strax gætu bjTjað búskap. Að ári liðnu eignaðist Anetta son. Eg lxélt barninu undir skírn, og drengurinn var látinn heita Camillo eftir móður minni. En strax eftir fæðingu barnsins bx-eyttist Filip algjörlega. Hann var vondur eigin- maður, og liafði ætíð elskað að ganga á veitinga- staði. Hið fyrsta lijónabandsár sitt kom hann þar sjaldan, en alt í einu vaknaði lians gamla löngun til knæpulífsins aftur. Þér feður, sem búið meðal hinna fátæku, þér vitið hvernig erviðismaðurinn, sem venur sig á að fá sér eitt staup áður en hann fer heim á kvöldin, oft hangir tímum saman við veitinga- borðið; að lokum kernur hann heim með afturbirtu, sefur eða eyðir deginum á einn eður annan hátt og enda með því að berja konu og börn. Að tveim árum liðn- um var Filip í sporum þessara rnanna. Eg bað og grátbændi hann, vegna konu lians og barns, að snúa við meðan tími væri til. Hann lofaði því, og efndi það fáar vikur, en svo tók hann til aftur. Að lok-

x

Þórr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þórr
https://timarit.is/publication/1280

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.