Víkurfréttir - 03.05.2018, Page 1
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
S U Ð U R N E S J A
MAGASÍN
fimmtudagskvöld kl. 20
á Hringbraut og vf.is
AÐAL S ÍMANÚMER 421 0000 ■ AUGLÝS INGAS ÍM INN 421 0001 ■ FRÉTTAS ÍM INN 421 0002
SAMLOKUR
& SALÖT
MIKIÐ ÚRVAL,
FÍNT Í HÁDEGISMATINN
RJÚKANDI
HEITT KAFFI
NÝMALAÐ
ILMANDI KAFFI
BAKAÐ Á
STAÐNUM
KLEINUHRINGIR,
RÚNSTYKKI OG FLEIRA
HRINGBRAUT
REYKJANESBÆ
VIRKA DAGA
HELGAR
ALLTAF OPIÐ
ALLTAF OPIÐ
AFGREIÐSLUTÍMAR:
Krossmóa 4 | Reykjanesbæ
Opnunartími
mán.–fös. frá 9–20
lau.–sun. frá 11–18
Grindvíkingar eru komnir áfram í 16-liða úrslit Mjólkur-
bikars karla eftir 4:2 sigur á Víði í Garði. Keflvíkingar
eru úr leik eftir 2:0 tap fyrir Valsmönnum. Þá tapaði
Njarðvík fyrir Þrótti Reykjavík með tveimur mörkum
gegn fjórum og Reynir Sandgerði tapaði 0:2 fyrir Víkingi
Reykjavík. Myndin er úr viðureign Víðis og Grinda-
víkur á Nesfisksvellinum í Garði. Nánar er fjallað um
Mjólkurbikarinn á vef Víkurfrétta, vf.is.
Grindvíkingar áfram í 16-liða
úrslit Mjólkurbikars karla
Grillað fyrir
hátíðargesti
„Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir“
Listasmiðjur og
alls kyns uppá-
k o m u r v o r u
hluti af mikilli
barnaskemmtun
sem haldin var í
R e y k j a n e s b æ
um síðustu helgi
í tilefni af Lista-
hátíð barna, sem
nú er haldin í þrettánda sinn í Reykjanesbæ.
Skessan í hellinum bauð upp á lummur í
harðri samkeppni við skátana sem grilluðu
bæði pulsur og pylsur, allt eftir því hvar fólk
býr.
Listahátíð barna heldur áfram og stendur til
13. maí nk. Þannig eru Duus Safnahús undir-
lögð af listaverkum tengd hátíðinni og ástæða
til að hvetja fólk til að kíkja á sýningarnar sem
þar eru.
Fjölmennur baráttu-
fundur 1. maí í Stapa
Verkafólk fjölmennti á baráttufund og hátíðardagskrá 1. maí í Stapa í Reykja-
nesbæ. Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, var ræðumaður dagsins. Annars
var það menningin sem réð ríkjum í Stapanum. Flest öll dýrin úr barna-
leikritinu Dýrin í Hálsaskógi hjá Leikfélagi Keflavíkur mættu og skemmtu
fólki. Einnig kom Kvennakór Suðurnesja og þau Valdimar Guðmundsson og
Sigríður Thorlacius sungu fyrir gesti. Fleiri myndir frá hátíðardagskránni
eru á vef Víkurfrétta, vf.is.
Dýrin í Hálsaskógi fjölmenntu á 1. maí í Reykjanesbæ og boðuðu frið. VF-myndir: hbb
Rauði liturinn er einkennandi fyrir 1. maí og það veit þingkonan Oddný G. Harðardóttir.
fimmtudagur 3. maí 2018 // 18. tbl. // 39. árg.