Víkurfréttir - 03.05.2018, Síða 2
2 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 3. maí 2018 // 18. tbl. // 39. árg.
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a,
4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími
421 0004, pket@vf.is // Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
// Blaðamaður: Rannveig Jónína Guðmundsdóttir, sími 421 0002, rannveig@vf.is //
Auglýsingastjóri: Andrea Sif Þorvaldsdóttir, sími 421 0001, andrea@vf.is // Útlit & um-
brot: Jóhann Páll Kristbjörnsson, johann@vf.is // Afgreiðsla: Aldís Jónsdóttir, sími 421
0000, aldis@vf.is, Dóróthea Jónsdóttir, dora@vf.is // Prentun: Landsprent // Upplag:
9000 eintök // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið andrea@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17:00
á mánudegi fyrir útgáfudag, sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga
er á vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15:00 á mánudögum. Sé fimmtudagur frídagur
þá kemur blaðið út á miðvikudögum. Dreifing blaðsins tekur að jafnaði tvo daga og er
dreift inn á öll heimili á Suðurnesjum.
Efni til Víkurfrétta skal berast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkur-
frétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða greinar birtast í prentaðri útgáfu Víkurfrétta.
Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á
vefsíðum Víkurfrétta.
FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
MANNLÍF Á SUÐURNESJUM
VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM
ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM
UMRÆÐAN Á SUÐURNESJUM
REYKJANESBÆR GRINDAVÍK VOGARGARÐUR
4° 40kg 14° 1250kg 12° 75kg12° 4kg
SPÁÐ ER SENDINGUM
UM ALLT REYKJANESFLUTNINGASPÁ DAGSINS
SANDGERÐI
-20° 150kg
Fyrir 75 árum, hinn 3. maí 1943, fórst bandarísk sprengju-
flugvél af gerðinni B-24D Liberator sem bar heitið „Hot
Stuff“ á Fagradalsfjalli á Reykjanesi. Flugvélin var á leið
heim til Bandaríkjanna í fyrirhugaða sigurför sem fyrsta
sprengjuflugvélin sem hafði náð ósködduð að fljúga 25
árásarferðir frá Bretlandi yfir meginland Evrópu í seinni
heimsstyrjöldinni.
Í fyrstu voru margar slíkar flugvélar skotnar niður af orr-
ustuflugmönnum Þjóðverja og hét Bandríkjaher áhöfnum
sprengjuflugvéla sem lykju 25 árásarferðum að þeir fengju að
snúa heim. Áhöfn „Hot Stuff“ var sú fyrsta til að ná þessum
merka árangri.
Í flugslysinu fórust fjórtán manns, þar á meðal Frank M. And-
rews hershöfðingi og æðsti maður herafla Bandaríkjanna í
Evrópu sem var á leið til Washington til þess að leggja á ráðin
um undirbúning innrásar Bandamanna á meginland Evrópu.
Einn maður lifði slysið af, George A. Eisel stélskytta, og var
það í annað sinn sem hann komst lífs af úr slíku flugslysi.
Við fráfall Andrews tók Dwight D. Eisenhower hershöfðingi
við sem æðsti maður herafla Bandaríkjanna í Evrópu og
alls herafla bandamanna í Evrópu og stjórnaði innrásinni í
Normandí árið eftir. Eisenhower varð síðan forseti Banda-
ríkjanna á árunum 1953 - 1961. Andrews hershöfðingi var
ötull talsmaður þess að bandaríski flugherinn yrði gerður að
sjálfstæðri liðsdeild og er honum jafnan eignaður heiðurinn
að því að sú skipan komst á árið 1947.
Var Andrews herflugvöllurinn í Maryland, aðsetur einkaflug-
vélar Bandaríkjaforseta, Air Force One, nefndur til heiðurs
honum. Bandaríska herstjórnin á Íslandi nefndi nýreist
íþróttahús við Hálogaland í Reykjavík Andrews Memorial
Field House til heiðurs hershöfðingjanum en húsið var helsta
íþróttahús höfuðborgarinnar í tvo áratugi eftir stríðið. Varnar-
liðið nefndi einnig samkomuhús sitt á Keflavíkurflugvelli (nú
Ásbrú) Andrews Theater til heiðurs Andrews hershöfðingja.
Í tilefni af því að 75 ár eru liðin frá þessum örlagaríka degi
verður afhjúpaður minnisvarði um flugslysið við Grindar-
víkurveg, fimmtudaginn 3. maí kl. 13:00. Minnismerkið er
tilkomumikið og skartar meðal annars gríðarlega stórri
eftirlíkingu af B-24 Liberator sprengjuflugvélinni úr ryð-
fríu stáli. Þá verður í kjölfarið minningarathöfn í Andrews
Theater á Ásbrú, kl. 14:30.
Minnisvarðinn er reistur að frumkvæði Bandaríkjamannsins
Jim Lux og ættingjum þeirra sem fórust, með aðstoð Þorsteins
og Ólafs Marteinssona. En allir eru þeir miklir áhugamenn
um flugvélar og flugsögu seinni heimstyrjaldarinnar. Gert er
ráð fyrir „heiðursflugi” B-52 Stratofortress flugvélar banda-
ríska flughersins yfir svæðið á meðan á afhjúpun stendur.
Nokkrir ættingjar þeirra sem létust í flugslysinu koma frá
Bandaríkjunum til að vera viðstaddir athöfnina. Meðal
annarra gesta verða Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis-
ráðherra og Jill Esposito, staðgengill sendiherra bandaríska
sendiráðsins á Íslandi, ásamt Lt. Gen. Richard Clark og Col.
John Teichert frá bandaríska lofthernum. Í lok athafnarinnar
verða fluttir nokkrir fyrirlestrar um slysið og Frank M. And-
rews hershöfðingja.
Áhugasamir eru boðnir velkomnir á þessa tvo viðburði og
heiðra minningu áhafnar B-24D Liberator.
Afhjúpun minnisvarðar um flugslys á Reykjanesi:
75 ÁR FRÁ ÞVÍ „HOT STUFF“
FÓRST Á FAGRADALSFJALLI
Nafnanefnd og undirbúningsstjórn
sameiningar sveitarfélaganna Sand-
gerðisbæjar og Sveitarfélagsins Garðs
hefur ákveðið um hvaða fimm nöfn
verða greidd atkvæði. Við val á til-
lögum var ákveðið að nöfn sem hafa
tilvísun í eldri heiti sveitarfélaganna
komi ekki til álita. Örnefnanefnd
mælir með nafninu Útnesjabyggð
en umsagnir nefndarinnar um þau
fimm nöfn sem kosið verður um fylgja
þessari frétt.
Atkvæðagreiðslan verður rafræn og fer
fram í byrjun maí. Atkvæðagreiðslan
fer fram í tveimur umferðum. Gert er
ráð fyrir að fyrri umferð hefjist í fyrstu
viku maí og ljúki 11. maí og þá liggi fyrir
hvaða tvö nöfn hafa fengið flest atkvæði.
Í síðari umferð verður kosið milli þeirra
tveggja, og gert ráð fyrir að þeirri at-
kvæðagreiðslu ljúki 18. maí.
Íbúar hins nýja sveitarfélags fá leið-
beiningar um hvernig rafræna atkvæða-
greiðslan fer fram, en til að taka þátt
þarf að nota rafræn skilríki eða Íslykil.
Íbúar eru því hvattir til að verða sér út
um þau hjá sínum viðskiptabanka eða
á Ísland.is.
Þau nöfn sem greidd verða atkvæði um
eru eftirfarandi. Við hverja tillögu má
sjá umsögn Örnefnanefndar, sem hefur
lögformlegt hlutverk við val á nöfnum
sveitarfélaga.
Heiðarbyggð
Umsögn Örnefnanefndar:
Meirihluti Örnefnanefndar leggst ekki
gegn nafninu.
Í rökstuðningi nefndar á vegum sveitar-
félagsins er vísað til þess að sveitar-
félögin sem sameinast liggi við Miðnes-
heiði. Bent er á að nafnið hafi tilvísun
til heiðarinnar, og saga, atvinna, sam-
göngur og menning beggja sveitarfélaga
sé nátengd heiðinni.
Meirihluti Örnefnanefndar telur að
nafnið Heiðarbyggð uppfylli markmið
laga um örnefni (nr.22/2015), þar sem
talað er um verndun örnefna og nafn-
giftahefða og kveðið á um að örnefni
séu í samræmi við íslenska málfræði og
íslenska málvenju, ásamt því að lögð er
áhersla á að ný örnefni séu í samræmi
við staðhætti og örnefnahefð. Nafnið
Heiðarbyggð raskar ekki rótgrónum
heitum á svæðinu og skapar því ekki
flækjustig varðandi öryggismál.
Nesjabyggð
Umsögn Örnefnanefndar:
Ekki er lagst gegn nafninu sem þykir þó
ekki sérkennandi fyrir þetta byggðarlag
fremur en mörg önnur.
Í rökstuðningi nefndar á vegum sveitar-
félagsins er vísað til staðsetningar
sveitarfélagsins á Suðurnesjum og
bent á nafnið Dalabyggð sem hliðstæðu.
Örnefnanefnd telur þetta þó ekki sam-
bærilegt að öllu leyti, þar sem „Dalir“ er
ævagamalt heiti á héraðinu fyrir botni
Breiðafjarðar. Fyrri liðurinn Nesja- er
að vísu að sumu leyti lýsandi fyrir stað-
hætti í sameinuðu sveitarfélagi, en hins
vegar verður að telja langsótt að hann
sé sérkennandi fyrir þetta sveitarfélag
fremur en önnur sveitarfélög í nágrenn-
inu eða annars staðar á landinu. Galli
við nafnið er að hætta er á að það skapi
rugling við Nesjasveit í Austur-Skafta-
fellssýslu sem nú tilheyrir Hornafjarð-
arbæ en var áður Nesjahreppur.
Suðurbyggð
Umsögn Örnefnanefndar:
Ekki er lagst gegn nafninu sem þykir
þó ekki sérkennandi.
Í rökstuðningi nefndar á vegum sveitar-
félagsins er bent á að sveitarfélagið sé á
Suðurnesjum og vísað til þess að venja
er að tala um að fara suður á nes þegar
farið er til Suðurnesja. Hins vegar er
ljóst að þessi atriði greina sveitarfélagið
ekki frá öðrum sveitarfélögum á Suður-
nesjum. Þá verður að telja langsótt að
fyrri liðurinn Suður- sé sérkennandi
fyrir þetta sveitarfélag fremur en önnur
á sunnanverðu landinu.
Útnesjabyggð
Umsögn Örnefnanefndar:
Mælt er með nafninu Útnesjabyggð.
Í tillögunni segir m.a. að nafnið vísi
til Útskála, Hvalsness og Miðness og
bent á að íbúar svæðisins hafi verið
kallaðir Útnesjamenn. Einnig segir að
samkvæmt málvenju fari menn út á nes
eða út í Garð og Sandgerði. Þá kemur
fram í tillögunni að nafnið lýsi vel stað-
setningu sveitarfélagsins úti á ysta nesi.
Nafnið Útnes (eða fyrri liðurinn Út-
nesja) samræmis staðháttum í sveitar-
félaginu, en innan marka þess er að
finna útnesin Rosmhvalanes/Miðnes,
Hvalsnes og Stafnes, og í sveitarfélag-
inu eru Útskálar, en við þá er kennd
Útskálasókn sem nær yfir stóran hluta
sveitarfélagsins. Nafnið er einnig ein-
kennandi fyrir staðsetningu miðað við
nágrannasveitarfélög. Reyndar ber við
að nafnið Útnes sé notað í sömu merk-
ingu og Suðurnes þegar þetta nafn er
notað í þrengri merkingu sem vísun
til byggða utarlega á norðanverðum
Reykjanesskaga, þ.e. til Reykjanesbæjar
auk Sandgerðisbæjar og sveitarfélags-
ins Garðs. Þetta virðist þó ekki svo
rótgróin venja að hægt sé að tala um
að sem nýtt stjórnsýsluheiti stangist
nafnið á við 2. Lið meginsjónarmiða
Örnefnanefndar um nöfn sveitarfélaga.
Ystabyggð
Umsögn Örnefnanefndar:
Ekki er lagst gegn nafninu
Í rökstuðningi nefndar á vegum sveitar-
félagsins fyrir tillögunni segir að nafnið
vísi til þess að sveitarfélagið er yst á
Suðurnesjum og Reykjanesskaga. Nafnið
er þannig lýsandi fyrir staðhætti á
svæðinu og staðsetningu gagnvart ná-
grannasveitarfélögum. Þessir kostir
eru sammerktir nafninu Ystabyggð og
nöfnum sem byggja á Útnes, en hins
vegar hafa Útnesjanöfn það framyfir
þetta nafn að hafa sögulega skírskotun
og byggja á málvenju.
Fimm „byggðir“ í boði fyrir Útnesjamenn
- Örnefnanefnd mælir með nafninu Útnesjabyggð