Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.05.2018, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 03.05.2018, Blaðsíða 6
6 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 3. maí 2018 // 18. tbl. // 39. árg. Forvarnir með næringu STAPAFELL Hafnargötu 50, Keflavík NÝTT Opið alla daga fram á kvöld Grindvíkingurinn Jovana Lilja Stefánsdóttir býr úti í Þýskalandi ásamt manninum sínum, Arnóri Þór Gunnarssyni, og dóttur þeirra, Díönu, þau hafa búið í Þýskalandi í átta ár núna í sumar. Arnór leikur handbolta með Berg- ischer HC en liðið kom sér upp um deild á dögunum og mun því leika í efstu deild eða Bundesliga á næsta tímabili eftir frábært tímabil í annari deildinni. Jovana segir að Þjóðverjinn elski að setja reglur og sé ekki mikið fyrir að taka skyndiákvarðanir. Kemur tvisvar á ári til Íslands Arnór Þór er atvinnumaður í hand- bolta og fluttust þau til Þýskalands þegar hann ákvað að fara í atvinnu- mennsku fyrir um átta árum. Jovana kennir Spinning þar sem þau búa og ætlar að byrja að kenna íslensku í haust. Jovana segir að það sé alltaf nóg að gera og að hún sé til dæmis búin að vera í foreldraráði á leikskóla dóttur þeirra í tvö ár og það sé ótrúlegt hvað það sé mikið að gera í skipulagningu og fundarmætingu. Jovana reynir að koma tvisvar sinnum á ári til Íslands en Arnór kemur um fjórum sinnum vegna landsliðsverkefna með handboltanum. Alltaf nóg að gera Þegar Jovana er spurð að því hvers hún sakni á Íslandi þá er fjölskyldan henni efst í huga. „Á Íslandi er líka mikið framboð af hollum veitinga- stöðum sem ég sakna.“ Dagarnir hjá fjölskyldunni eru misjafnir en hinn dæmigerði dagur hefst á því að þau vakna yfirleitt um hálfátta og þá fer Arnór á æfingu. „Síðan keyri ég Díönu á leikskólann og fer þá beint á æfingu. Þegar við Arnór erum búin á æfingum þá eldum við okkur hádegismat eða förum eitthvað út að borða. Ég næ síðan í Díönu á leikskólann og þá fer Arnór á æfingu.“ Jovana segir að þær mægður séu duglegar að skoða sig um í nágrenninu og þræði alla leikvelli eftir leikskóla eða hitti krakkana í götunni þeirra. „Síðan borðum við kvöldmat og þá er dagurinn að verða búinn. En ef Arnór er í fríi þá gerum við oft eitthvað saman við þrjú og erum einnig dugleg að gera eitthvað með vinum okkar sem eru hérna úti.“ Landsvæðið í Þýskalandi fallegt Þegar Jovana er spurð að því hvað sé skemmtilegast við Þýskaland þá segir hún að það sé án efa hvað það sé hægt að gera mikið sér til skemmt- unar. „Við búum á mjög góðum stað í Þýskalandi, það eru fimmtán mín- útna keyrsla til Düsseldorf og fjörtíu mínútur til Köln. Þessar tvær borgir eru mjög flottar, góðir veitingastaðir, flottar verslunargötur og margt fleira. Síðan er landsvæðið hérna fallegt, mikið af flottum göngu- og hjóla- leiðum. Ekki skemmir fyrir hvað Þýskaland er miðsvæðis í Evrópu, það er stutt til Hollands, Belgíu, Frakk- lands og til fleiri landa. Síðan verð ég að nefna hvað matur er á sann- gjörnu verði hérna sem mér finnst vera mikill kostur.“ Ekki algengt að fólk taki skyndiákvarðanir Þjóðverjar eru mikið reglufólk segir Jovana og hún hefur það á tilfinn- ingunni að þeir elski að setja reglur. Hún segir einnig að þeir séu ekki mikið að taka skyndiákvarðanir og plani hlutina langt fram í tímann. Þegar hún er spurð að því hvernig hafi gengið að læra þýskuna segir Jovana að það hafi ekki verið erfitt en hún ákvað að tala enga ensku þegar þau fluttu, var alls ekki feimin að tala tungumálið og segir að það hafi skilað sér að lokum og í dag talar hún reiprennandi þýsku. Mælir þú með því að fólk flytji erlendis og breyti um? Já klárlega ef maður fær tækifæri til þess, þá bara að kýla á það þó svo að það sé ekki nema í eitt ár, það alltaf skemmtilegt og lífsreynsla að prófa eitthvað nýtt. Rannveig Jónína Guðmundsdóttir rannveig@vf.is VIÐTAL Jovana Lilja hefur búið í tæp átta ár í Þýskalandi „Ég held að þjóðverjar elski að setja reglur“ Fyrsti handboltaleikur Díönu. Jovana og Arnór á góðri stund heima á Íslandi.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.