Fréttablaðið - 04.06.2018, Page 8

Fréttablaðið - 04.06.2018, Page 8
Skráning stendur yfir í síma 564 4030 og á tennishollin.is BYRJENDANÁMSKEIÐ Í TENNIS FYRIR FULLORÐNA eru að hefjast Upplýsingar & skráning í síma 564 4030 og á tfk.is TENNISÆFINGAR FYRIR 13-18 ÁRA byrjendur í sumar virka daga kl. 16.30-18 Tennisfélag Kópavogs Bíldshöfði 12 · 110 Rvk · 5771515 · skorri.is Er vagninn rafmagnslaus Frístunda rafgeymar í miklu úrvali ? ATVINNULÍF „Norðurlöndin eiga að verða samþættasti byggingamark­ aður í heimi“, segir í yfirlýsingu norrænna ráðherra sem fara með málefni byggingariðnaðarins. Lagt er til að byggingarreglugerðir og staðlar landanna verði samræmd enn frekar frá því sem nú er. Með því að fjarlægja viðskipta­ hindranir verði fyrirtækjum gert auðveldara að starfa á milli landa og markmiðið að Norðurlöndin verði í raun einn byggingamarkaður. Með þessu verði hægt að lækka bygging­ arkostnað. Þá verður lögð áhersla á samnorrænar rannsóknir á sviði byggingariðnaðarins. Björn Karlsson, forstjóri Mann­ virkjastofnunar, segir lög og reglur í byggingariðnaði geta verið mjög mismunandi milli landa. Þótt grundvallarreglurnar séu tiltölu­ lega líkar sé samt heilmikill munur á regluverkinu, jafnvel milli Norður­ landanna þar sem regluverkið hafi þróast sértækt í hverju landi fyrir sig. „Ég fagna auknu og þéttara nor­ rænu samstarfi á þessu sviði. Við hittum norræna kollega okkar reglulega þar sem við skiptumst á upplýsingum og skoðum hvar við getum samræmt reglur. Þannig erum við að sigla hægt og rólega í átt að meiri samræmingu tækni­ legra reglna.“ Björn bendir líka á að við gerð byggingarreglugerðarinnar frá 2012 hafi verið horft mikið til Norðurlanda sem fyrirmyndar. Sigurður Hannesson, fram­ kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segist fagna öllum umbótum sem auki samkeppnishæfni Íslands. „Samtök iðnaðarins líta því yfir­ lýsingu ráðherranna jákvæðum augum. Við höfum talað fyrir því að einfalda þurfi regluverk og gera alla framkvæmd skilvirkari en nú er og leggjum mikla áherslu á að atvinnu­ lífið komi líka að þessari vinnu.“ Sigurður segir fyrirmyndir hægt að sækja til Norðurlandanna og nefnir Noreg sem dæmi. Þar séu gerðar mismunandi kröfur út frá flokkun mannvirkja og umfang eftirlits sé háð eðli byggingarinnar. „Aukið svigrúm í byggingarreglu­ gerð gæti hvatt til frekari nýsköp­ unar og dregið úr kostnaði. Í reglu­ gerðum sumra Norðurlandanna er almennt meiri sveigjanleiki en í okkar regluverki sem getur stuðlað að lægri byggingarkostnaði.“ Í yfirlýsingu ráðherranna kemur fram að fyrsta verkefnið verði að skoða aðgengismál sérstaklega. Bergur Þorri Benjamínsson, for­ maður Sjálfsbjargar og stjórnar­ maður í Öryrkjabandalagi Íslands, segir stöðuna hér sambærilega við hin Norðurlöndin og jafnvel betri en til dæmis í Noregi. „Það var mjög stórt skref stigið með byggingarreglugerðinni 2012 sem hafði lengi verið beðið eftir. Við þurfum bara að fá það á hreint frá umhverfisráðherra hver útgangs­ punkturinn í þessari vinnu eigi að vera.“ Hann segir mikilvægt að markmiðum um lækkun byggingar­ kostnaðar verði ekki náð með því að draga úr kröfum um aðgengi að byggingum. sighvatur@frettabladid.is Reglurnar verði líkari reglum á Norðulöndum Framkvæmdastjóri SI lítur yfirlýsingu norrænna ráðherra um að Norðurlöndin eigi að verða samþættasti byggingamarkaður í heimi jákvæðum augum. For- maður Sjálfsbjargar vill fá á hreint hver útgangspunktur vinnunnar eigi að vera. Stefnt er að því að gera Norðurlöndin að samþættasta byggingamarkaði heims. Markmiðið er að lækka byggingar- kostnað og auðvelda fyrirtækjum að starfa á milli Norðurlandanna. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Við höfum talað fyrir því að einfalda þurfi regluverk og gera alla framkvæmd skilvirkari en nú er. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins NORÐUR-KÓREA Forseti Sýrlands, Bashar al Assad, áformar að hitta Kim Jong­un, leiðtoga Norður­ Kóreu, að því er ríkisfréttamiðill í Norður­Kóreu greinir frá. „Ég ætla að heimsækja Norður­Kóreu og hitta Kim Jong­un,“ er haft eftir Assad. Hann er sagður hafa greint frá þessu á miðvikudaginn þegar hann tók við trúnaðarbréfi frá Mun Jong Nam, sendiherra Norður Kóreu. Breska Sky fréttastofan segir að ekkert bendi til þess að slík ferð hafi verið í undirbúningi né heldur að stjórnvöld í Sýrlandi hafi stað­ fest fréttirnar. Samkvæmt fréttum norðurkóreska fréttamiðilsins á Assad að hafa sagt að Kim Jong­un hefði sýnt mikla leiðtogahæfileika og myndi takast að sameina Kóreu. S k y f r é t t a ­ stofan segir að ef af fund­ i n u m y r ð i þá væri það fyrsti fundur Kim Jong­ un með leið­ toga annars r í k i s s e m fram færi í Norður­Kóreu. Góð samskipti hafa verið á milli stjórnvalda ríkjanna tveggja. Banda­ rísk stjórnvöld hafa jafnvel sakað Norður­Kóreumenn um að vinna saman að þróun efnavopna, en þeim ásökunum hefur verið hafnað. Bæði ríkin hafa verið einangruð frá öðrum ríkjum heims. Norður­Kórea hefur verið einangruð vegna efna­ vopnatilrauna og Sýrland vegna borgarastríðsins þar. Allt frá því í ársbyrjun hefur Kim Jong­un sóst eftir samskiptum við leiðtoga annarra ríkja, svo sem Kína, Suður­Kóreu og á fund með Donald Trump þann 12. júní. – jhh Segja Assad forseta ætla að fara til Norður Kóreu Sýrlensk stjórnvöld hafa ekki stað- fest fréttir um að Assad ætli að heimsækja Norður-Kóreu. ÞÝSKALAND Lögregluþjónn skaut Austurríkismann sem gekk ber­ serksgang, vopnaður hnífi, í Dóm­ kirkjunni í Berlín eftir hádegið í gær. Karlmaðurinn, sem er 53 ára gam­ all, var skotinn í fótinn, samkvæmt upplýsingum sem fréttastofa breska ríkisútvarpsins hafði eftir þýskum fjölmiðlum. Um 100 manns voru í byggingunni þegar atvikið varð. Þýskir fjölmiðlar segja jafnframt að maðurinn hafi lent í útistöðum við annan einstakling í kirkjunni. Fréttamiðillinn Tagesspiegel segir að tveir hafi slasast; maðurinn sem lögreglan skaut og maðurinn sem hann átti í útistöðum við. Lögreglan sagði jafnframt að maðurinn hefði ekki verið grun­ aður um að vera að skipuleggja nein hryðjuverk. Þýskir fjölmiðlar hafa eftir vitnum að maðurinn hafi verið í annarlegu ástandi. Myndskeið frá sjónvarvottum sýna hvernig vopn­ aðir lögreglumenn stilla sér upp fyrir utan kapelluna og svæðinu var lokað af með lögregluborða. Vitnum var boðin sálfræðileg aðstoð. Dómkirkjan í Berlín er á safnaeyj­ unni í miðhluta Berlínar og er einn af helstu viðkomustöðum ferða­ manna í borginni. – jhh Þýska lögreglan skaut mann í Berlín Þýska lögreglan lokaði af svæðinu við Dómkirkjuna í Berlín vegna mannsins sem lét ófriðlega í kirkjunni. Hann var skotinn í fótinn FRÉTTABLAÐIÐ/EPA 12. júní er áformað að fundur Kims Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu og Donalds Trump, forseta Bandaríkj- anna, fari fram. 4 . J Ú N Í 2 0 1 8 M Á N U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 4 -0 6 -2 0 1 8 0 4 :3 2 F B 0 5 6 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F F C -6 5 3 4 1 F F C -6 3 F 8 1 F F C -6 2 B C 1 F F C -6 1 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 5 6 s _ 3 _ 6 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.