Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.06.2018, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 04.06.2018, Qupperneq 18
best. Ég gaf líka mikið af plássinu til NYIÞ, sem er ritúalhópur sem var með athöfn við opnun sýningarinn- ar,“ segir Hafsteinn. „Á sýningunni getur fólk séð mikið blóð, reyk og myrkur. Það er svona aðalþemað. Myndirnar eru alls konar, stundum eru þetta uppstilltar myndir, sumar eru af tónleikum og aðrar eru af þeim að hanga í æfingahúsnæðum eða baksviðs. Mér finnst eiginlega augnablikin sem eru á milli takna áhugaverðust, þannig að það er líka mikið af þeim. Allar hljómsveitirnar hafa sinn innri heim og heimspeki, sem eru oftast með grunn í alls kyns dul- speki. Ég skoða textana og hlusta á tónlistina og reyni að spegla það,“ segir Hafsteinn. „Þeir hafa kannski verið að pæla í textunum og útlitinu í einhver ár og ég vil bara þjóna þeirra innri heimi.“ Hafsteinn vildi halda sýninguna til að vekja meiri athygli á þessari senu á Íslandi. „Fólk virðist almennt ekki vita hvað hún er stór erlendis og hvað það er lögð mikil vinna og metnaður í þetta,“ segir hann. „Nýlega var til dæmis Vánagandr hópurinn, sem er útgáfu- og dreifingaraðili fyrir íslenskan svartmálm, pantaður til Hollands og spilaði fyrir 4.000 manns, sem er næstum hálf Laugardalshöll, en hérna heima vissi eiginlega enginn af því. Mér finnst mikilvægt að fólk viti hvað er að gerast og vonandi hefur þetta áhrif á einhverja sem þekkja ekki til þessarar stefnu.“ Nóg fyrir stafni Hafsteinn hefur í nógu að snúast, fyrir utan myndatökur. „Ég er líka með plötufyrirtæki, sem heitir Mystískaos, sem er eigin- lega hálfgerð tónlistarkommúna. Við vinnum í tónlist hvers annars og erum staddir í fjórum ólíkum löndum. Þetta er spennandi verk- efni og alltaf eitthvað í gangi,“ segir Hafsteinn. „Ég er líka örugglega með svona fimm breiðskífur á biðlínunni og hef verið að vinna í næstu plötu hljómsveitarinnar minnar, Wormlust, í svona fimm ár.“ Wormlust gaf út eina breið- skífu árið 2013 sem fékk afar góðar viðtökur. „Ég ætla bara að spila hlutina eftir eyranu og dembi mér örugglega í tónlistina næst,“ segir Hafsteinn. „En ég held að það sé alveg pláss fyrir bæði tónlistina og ljósmynd- unina. Núna er ég bara að reyna að átta mig á því hvert er næsta skref í ljósmyndun, því það er ekki hægt að gera það sama endalaust og ég hef eiginlega sagt allt sem ég vildi segja á þessu sviði,“ segir Hafsteinn. „Það á eftir að ýta mér svolítið út fyrir þægindarammann, því ég hef svo lengi verið í þessari svartmálms- senu.“ Hafsteinn efast um að hann haldi áfram að mynda hljómsveitir. „Ég held að það verði frekar að fara til Suður-Ameríku í Ayahuasca eða til Ameríku til einhvers snákasér- trúarsafnaðar eða hvað sem er. Mig langar til að sjá heiminn,“ segir Hafsteinn.  MÚR- OG STEYPUVIÐGERÐIR Hafðu samband info@husavidgerdir.is Sími 565-7070 Finndu okkur á ALHLIÐA MÚRVERK ÞAKVIÐGERÐIR GLUGGASKIPTI Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368 | Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@ frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338 Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 | Hafsteinn Viðar Ársælsson ákvað að byrja að skrásetja íslenskan svartmálm með myndatökum árið 2014. Nýlega gaf hann afrakstur þeirrar vinnu út í bók sem heitir „Svartmálmur“ og í tengslum við útgáfuna stendur hann fyrir ljósmyndasýningu undir sama nafni í Skoti Ljósmynda- safns Reykjavíkur sem var opnuð fyrir helgi. Þar má sjá ljósmyndir af mörgum þeim íslensku svartmálms- sveitum sem hafa verið áberandi í þessari senu, sem er mjög metn- aðarfull, en nokkrar íslenskar sveitir hafa náð langt á þessu sviði erlendis. „Ég byrjaði að stunda ljósmyndun til að mynda hljómsveitirnar. Það var enginn að gera það,“ segir Haf- steinn. „Hugmyndin þróaðist út frá því að ég sá bók frá 1968-69 eftir Sigurgeir Sigurjónsson sem skrásetti íslensku psychedelic-senuna og var eins og tímahylki frá þeirri senu. Þetta fékk mig til að hugsa um svart- málmssenuna hérna, sem er svolítið vanmetin. Það var enginn að skrá- setja þetta, þannig að ég ákvað bara að taka að mér það verkefni.“ Hafsteinn hefur verið viðriðinn senuna síðan hann var 15 ára, þegar hann byrjaði að spila með svartmálmssveitinni Myrk. „Það var eiginlega fyrsta hljómsveitin mín. Síðan eru liðin 17 ár, þannig að ég hef verið í þessu í meira en helminginn af lífi mínu og held að ég verði í þessu alla ævi.“ Fór í nám fyrir verkefnið „Fyrir þetta kunni ég ekkert á myndavél, þannig að ég skráði mig í Ljósmyndaskólann með þetta í huga og bókin „Svartmálmur“ sýnir í rauninni afraksturinn,“ segir Haf- steinn. „Bókin byrjaði í desember 2014 á Andkristnihátíð og gerð hennar lauk svo í febrúar á þessu ári. Ég lærði á meðan ég var að gera hana. Ég vildi búa til hálfgert tímahylki fyrir þennan tíma í þessari senu,“ segir Hafsteinn. „Mér finnst mikil- vægt að skrásetja þetta, því þetta er mikilvægt menningarlegt tímabil. Senan er líka mjög áhugaverð fagurfræðilega. Fagurfræðin bindur þetta saman án míns innleggs og hljómsveitirnar eru allar hrifnar af myndrænu táknmáli,“ segir Haf- steinn. Hafsteinn hefur unnið verkefnið undir nafninu Verði ljós. „Nafnið kemur úr Biblíunni og er vísun í tenginguna við dulspeki,“ segir hann. „Þú færð líka ekki neitt á myndina nema það sé ljós. Það er líka smá kaldhæðni á bak við að gefa þessu nafn úr kristni.“ Vill vekja athygli á senunni Á ljósmyndasýningunni „Svart- málmur“, sem var opnuð síðast- liðinn fimmtudag í Skoti Ljós- myndasafns Reykjavíkur og verður opin til 15. ágúst, er hægt að sjá brot af myndunum í bók Hafsteins, en aðgangur að sýningunni er ókeypis. „Þetta eru myndirnar sem mér fannst henta sýningunni og rýminu Hafsteinn ákvað að fyrst enginn væri að skrá­ setja íslensku svartmálmssen­ una myndi hann gera það. MYND/ SIGTRYGGURARI Á sýningunni má sjá alls kyns forvitnilegar myndir sem eru teknar við ólík tækifæri. MYND/HAFSTEINN Svartmálms­ senan hefur alltaf lagt mikla áherslu á fagur­ fræði. MYND/HAFSTEINN Dulspeki af ýmsu tagi hefur áhrif á myndir Hafsteins. MYND/HAFSTEINN Íslenska svart­ málmssenan hefur fengið mikla athygli erlendis. MYND/ HAFSTEINN Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@frettabladid.is 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . J Ú N Í 2 0 1 8 M Á N U DAG U R 0 4 -0 6 -2 0 1 8 0 4 :3 2 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F F C -4 7 9 4 1 F F C -4 6 5 8 1 F F C -4 5 1 C 1 F F C -4 3 E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s _ 3 _ 6 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.