Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.12.2017, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.12. 2017
Inés Arrimadas er 36 ára
gömul, fædd 1981. Hún fædd-
ist í Jerez de la Frontera á
Suður-Spáni en hefur búið í
Katalóníu undanfarinn ára-
tug. „Ég hef aldrei falið rætur
mínar og er mjög stolt af
þeim. Það er mjög kata-
lónskt að eiga rætur annars
staðar, hvort sem það er á
Spáni eða í öðru landi. Mér
finnst ég vera Katalóni.“
Ekki líta allir þetta sömu
augum. Þegar Arrimadas
sagði á dögunum að fjögur ár
til viðbótar af sjálfstæðisbar-
áttu yrðu stórslys spurði
Núria de Gispert, fyrrverandi
forseti þings Katalóníu:
„Hvers vegna ferðu þá ekki
bara aftur til Cádiz?“
Í hennar huga hefur lítil sem enginstjórnsýsla, í eiginlegum skiln-ingi þess orðs, átt sér stað í
Katalóníu undanfarin sjö ár; allt púð-
ur hefur farið í sjálfstæðisbaráttuna.
Nái hún kjöri sem forseti héraðs-
stjórnarinnar seinna í mánuðinum
lofar Inés Arrimadas, forsetaefni
Borgaraflokksins (s. Ciutadans), að
vinda hratt ofan af þeirri þróun –
sem hafi ekki verið til heilla.
„Fyrstu hundrað dagana í emb-
ætti verður það forgangsverkefni að
tryggja samstöðu í samfélaginu,“
sagði Arrimadas við fjölmiðla í vik-
unni. „Við þurfum að virkja áætlun
til að hressa upp á viðskiptalífið, því
fyrr þeim mun betra eigi það ekki
hreinlega að lognast út af. Þið munið
hvað gerðist í Quebec. Við þurfum að
nota allt fé sem núna fer í sjálfstæð-
isáróður í heilbrigðiskerfið og aðrar
grunnstoðir samfélagsins. Við þurf-
um að forgangsraða upp á nýtt þegar
kemur að því að eyða fjármunum al-
mennings. Fram að þessu hefur höf-
uðáhersla verið á katalónsk sendi-
ráð, utanlandsferðir og almanna-
sjónvarp – allt í þágu áróðurs.“
Borgaraflokkurinn hefur verið á
góðri siglingu í skoðanakönnunum
að undanförnu vegna kosninganna,
sem boðað var til 21. desember eftir
að stjórnvöld á Spáni settu héraðs-
stjórn Carles Puigdemonts forseta
af fyrr í haust, og þykir muna þar
mest um vasklega framgöngu Arr-
imadas, sem aukinheldur er eina
konan sem haft hefur sig í frammi.
Munurinn á Borgaraflokknum og
hinum þjóðernissinnaða Esquerra
Republicana hefur verið innan
skekkjumarka í könnunum, hvor
flokkur um sig er að mælast með um
25% fylgi, en flokkur Puidgemonts,
Sameinuð fyrir Katalóníu, kemur
þar býsna langt á eftir. Fyrir vikið
er mikil spenna í loftinu.
Til hægri eða vinstri?
Stjórnmálaskýrendur hafa átt í
nokkru basli með að staðsetja Borg-
araflokkinn á hinu pólitíska rófi.
Sjálfur notar flokkurinn orðið „póst-
þjóðernissinnaður“ til að lýsa sér en
að gömlum sið hafa menn fundið sig
knúna til að festa hann á ásnum frá
hægri til vinstri.
Sumir segja að Borgaraflokk-
urinn sé hægri sinnaður miðjuflokk-
ur, aðrir vinstrisinnaður miðjuflokk-
ur og þeir sem er mest í nöp við
flokkinn kalla hann aðeins viðhengi
við hinn hægrisinnaða Flokk fólks-
ins (FF), flokk Marianos Rajoy for-
sætisráðherra, sem Borgaraflokk-
urinn hefur stutt á spænska þinginu.
„Á Spáni sitjum við uppi með þá
hugmynd að flokkur geti aðeins ver-
ið til hægri eða vinstri,“ segir Arr-
imadas. „Þannig að þegar frjáls-
lyndur, miðju- og framfaraflokkur
kemur fram á sjónarsviðið, að evr-
ópskri fyrirmynd, eins og hjá
Macron í Frakklandi, vita menn ekki
í hvaða hólf þeir eiga að setja okkur
enda eru þau aðeins tvö.“
Þess má geta að kannanir sýna að
flokkurinn sækir sitt fylgi bæði til
vinstri- og hægrimanna.
Flokkur fólksins sætir nú rann-
sókn vegna meintrar spillingar og
Arrimadas undirstrikar að Borgara-
flokkurinn hafi ekki veitt honum
stuðning sinn á landsvísu vegna þess
að hann væri spilltur, heldur vegna
þess að hann hefði lofað að skera
upp herör gegn spillingu.
Annað forgangsmál hjá Arrimad-
as komist hún til valda er að auka
ensku- og spænskukennslu í skólum
í Katalóníu. Eins og staðan er núna
fá börn í héraðinu aðeins tvær
kennslustundir í spænsku á viku og
þrjár til fjórar í ensku. Stuðst er við
katalónskuna þess utan.
Athygli vekur að aðskilnaðar-
flokkarnir hafa slakað nokkuð á mál-
flutningi sínum í kosningabaráttunni
en sem kunnugt er eru margir af
leiðtogum þeirra ýmist í fangelsi eða
útlegð. Arrimadas geldur varhug við
þessu.
„Aðskilnaðarflokkarnir hafa ekki
upp á neitt að bjóða; látið ekki mál-
flutning þeirra nú villa ykkur sýn.
Komist þeir til valda munu þeir
halda áfram þar sem frá var horfið.
Núna þegar þeir sjá að við gætum
mögulega unnið kosningarnar tóna
þeir sín skilaboð niður til að fæla
kjósendur ekki frá. Trúir því einhver
í raun og veru að þeir séu allt í einu
farnir að virða stjórnarskrána og
landslög? Eftir sex eða sjö ár er ekk-
ert til að gorta af – fyrirtæki eru far-
in, ferðaþjónusta á undanhaldi og
störfum fjölgar ekki lengur. Þetta
hefur verið hrein hörmung. Þeir sem
hafa komið okkur í þessa klípu eru
ekki mennirnir til að losa okkur úr
henni!“
Sjálfstæði ýtt
til hliðar
Ef marka má skoðanakannanir er málflutn-
ingur Inés Arrimadas, forsetaefnis hins
frjálslynda miðjuflokks Borgaraflokksins,
að ná eyrum alþýðu manna í Katalóníu en
kosningar standa þar fyrir dyrum. Arrim-
adas vill hverfa frá sjálfstæðisstefnunni og
hefja markvissa uppbyggingu í héraðinu.
AFP
Inés Arrimadas í ræðustól í
Katalóníu í vikunni. Hún þykir
ástríðufullur ræðumaður,
fylgin sér og vel máli farin.
Ekki fædd
Katalóni
’
Þegar frjálslyndur, miðju- og framfaraflokkur kemur fram
á sjónarsviðið, að evrópskri fyrirmynd, eins og hjá Macron
í Frakklandi, vita menn ekki í hvaða hólf þeir eiga að setja okkur
enda eru þau aðeins tvö.
Inés Arrimadas.
ERLENT
ORRI PÁLL ORMARSSON
orri@mbl.is
INDÓNESÍA
JAKARTA Forseti
landsins, Joko Widodo,
neyðist til að skila gjöf
sem Lars Løkke Rasmus-
sen, forsætisráðherra
Danmerkur, færði honum
í vikunni, þar sem það
stangast á við siðareglur
í landinu að þiggja slíka
velgjörð.Widodo, sem er
mikill málmhaus, ku vera
með böggum hildar enda
var um að ræða áritað
eintak af plötunni Master
of Puppets með Metallica.
BRETLAND
LUNDÚNIR
Jarlinn af Balfour,
sá fimmti í röðinni,
þykist hafa himin
höndum tekið
eftir að hann fann
glufu til þess að
börn hans geti erft tign hans að honum gengnum
en ekki bróðir hans. Ein af fjórum dætrum hans þarf
sumsé bara að skella sér í kynleiðréttingu. Ekki fylgir
sögunni hvernig dætrunum hugnast ráðabruggið.
KANADA
NEW BRUNSWICK Áhöfn fiskibáts nokkurs
rak upp stór augu þegar hún veiddi humar á
dögunum með pepsi-tattú á klónni, að því er virt-
ist. Ekki er vitað hvernig lógó gosdrykksins komst
þangað en þetta er enn ein áminningin um það að
höf þessa heims eru full af margvíslegu rusli.
TYRKLAND
ANKARA Tjáningarfrelsinu hefur
hvergi farið eins mikið aftur undanfarinn
áratug og í Tyrklandi, ef marka má nýja
skýrslu. Þetta hefur ekki síst komið nið-
ur á fjölmiðlum en í sömu skýrslu kem-
ur fram að frelsi þeirra hafi ekki verið
minna í heiminum í að minnsta kosti
áratug. Stafar þetta m.a. af afskiptum
stjórnvalda, skipulagðri glæpastarfsemi og þrýstingi frá viðskipta- og atvinnulífinu.