Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.12.2017, Blaðsíða 15
hafði stuttu áður þurft að fara til
Stokkhólms vegna bakslags sem
hægt var að leysa þar með berkju-
speglun. Við ræddum það hvort við
ættum að halda málþingið án hans,
það hefði vel verið hægt en hann
vildi það ekki. Það sést á myndum,
og fleiri hafa bent á sem stóðu í
kringum þetta, að þótt hann hafi
fengið þetta bakslag hafi hann verið
orðinn mun hressari og þetta var að-
allega hans ákvörðun að kýla á mál-
þingið. Mér hefur fundist mjög sárt
að heyra þær getgátur í gegnum tíð-
ina að ég hafi verið að troða vini mín-
um upp á svið mér til framdráttar.“
Á þessum tíma, árið 2012, voru
siðferðislegir og lagalegir ann-
markar á aðgerðinni ekki komnir í
ljós. Hvort Tómas hafi í fyrirlestri
sínum þar talað um fylgikvilla að-
gerðarinnar og heilsufarsvanda sem
Andemariam glímdi við gat nefndin
ekki metið því upptökur voru ekki
til.
Fórstu yfir vandamálin sem höfðu
komið upp?
„Já, það gerði ég, enda vissi And-
emariam sjálfur af öllum þeim
vandamálum sem höfðu komið upp
og hefði verið fáránlegt ef ég hefði
haldið fyrirlestur á ensku fyrir fram-
an hann og fjölskyldu hans og ekki
sagt sannleikann. Eftir málþingið í
háskólanum bað Andemariam mig
um að koma upp á ÍSOR (innsk. blm:
vinnustaður Andemariams sem sér-
hæfir sig í orkurannsóknum) og
halda fyrirlestur þar um aðgerðina
fyrir samstarfsfólk hans. Það var
sama þar, það var ekkert verið að
segja að þetta hefði verið frábær að-
gerð og bara beina brautin. En það
má heldur ekki gleymast að And-
emariam náði góðum tíma um hríð
fyrst eftir aðgerðina , hann lauk
meistaranámi og hitti fjölskyldu
sína, sem auðvitað var honum afar
mikilvægt.“
Nefndin dregur ekki í efa að í
huga Tómasar hafi málþingið m.a.
verið í þeim tilgangi að hjálpa And-
emariam. Það orki þó tvímælis að
Tómas hafi verið milligöngumaður
um að koma spurningalistum til
Andemariams frá framleiðanda
plastbarkans, Harvard Bioscience,
sem var með fjölmiðlamann á mál-
þinginu. Tómas hafi sett ámæl-
isverða pressu á Andemariam við að
aðstoða fyrirtækið við að svara
spurningalistum.
„Eftir á að hyggja var það misráð-
ið, og tilgangurinn alls ekki að aug-
lýsa Harvard Bioscience, enda hafði
ég engin tengsl við fyrirtækið og
hafði engra hagsmuna að gæta. Ég
setti heldur ekki pressu á And-
emariam með spurningalista sem
þeir höfðu sent okkur báðum. Ég
spurði í tölvupósti hvort hann væri
búinn að svara. Það var hins vegar
misráðið að íslenskur fjölmiðla-
fulltrúi plastbarkaframleiðandans
væri á þessu málþingi. Þetta vís-
indamálþing snerist jú ekki síst um
stofnfrumur almennt og notkun
þeirra í skurðlækningum.“
Greinin afdrifaríka
Lýsing á heilsufari Andemariams
sem birtist í vísindagrein Macchiar-
inis í tímaritinu Lancet hafði ekki
verið rétt eða nægilega nákvæm að
mati skýrsluhöfunda. Meðhöfundar
að greininni voru 28, þeirra á meðal
Tómas Guðbjartsson og Óskar Ein-
arsson. Tekið er fram í skýrslunni að
Tómas hafi reynt að tóna niður há-
stemmdar lýsingar á bata And-
emariams og lagt til að tekinn yrði
meiri tími í að vinna vísindagreinina.
Honum varð ekki ágengt í því.
Þegar þér er ljóst að þú fengir
ekki hljómgrunn fyrir athugasemdir
þínar, af hverju varð niðurstaðan
ekki sú að segja þig þá strax frá
greininni?
„Í dag er ljóst að ég hefði betur
átt að draga nafn mitt af greininni
en við vorum í erfiðri og flókinni
stöðu – sem sennilega er erfitt fyrir
fólk að skilja. Það er rétt að ég var
ekki fyllilega ánægður með greinina
og er það staðfest með fjölda tölvu-
pósta í skýrslunni.
Ég mat það hins vegar svo að með
því að segja mig frá frekari greina-
skrifunum og draga nöfn okkar af
henni hefði velferð sjúklings okkar
getað borið skaða af. Páll Hreinsson,
formaður nefndarinnar, lýsti þessari
stöðu sem við vorum í ágætlega og
sagði „að svona stöðu mættu læknar
ekki lenda í.“ Að þurfa hreinlega að
óttast að það komi niður á sjúklingn-
um að halda faglegum ábendingum
til streitu. Í þessu sambandi er rétt
að taka fram að ég leit svo á að þátt-
ur minn í greininni, sem fólst í að
lýsa ástandi sjúklingsins fyrir að-
gerðina, væri ekki það viðamikill og
að Macchiarini væri höfuðábyrgur
fyrir greininni. Þetta voru jú 28 höf-
undar, margir mjög virtir fræði-
menn, og greinin því augljóslega
samvinnuverkefni margra vísinda-
manna. Ég tek fram að mér fannst
aldrei að ég hefði verið að falsa neitt
eða beinlínis segja ósatt. En ég var
ekki sáttur við sumt í greininni – en
þannig er það jú oft þegar margir
3.12. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
Hefðbundin heyrnartæki hækka talmál frá einum viðmælanda sem snýr að þér og loka
á önnur hljóð. Nýju Opn heyrnartækin skanna hljóðumhverfið 100 sinnum á sekúndu til
að aðgreina talmál frá hávaða og koma jafnvægi á hljóð í kringum þig. Þannig verður
hljóðmyndin eðlilegri og þú nýtur þess betur að hlusta og taka virkan þátt í samræðum.
Prófaðu nýju Opn heyrnartækin í 7 daga
Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Sími 568 6880
Hefðbundin heyrnartæki Nýju Opn heyrnartækin
Tímapantanir í síma 568 6880
www.heyrnartaekni.is