Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.12.2017, Síða 33
og að fara í tímavél, þar sem mjúk
birta gasluktanna hjúpar okkur feldi
fortíðar.
Markaðstorgið Mannlífið nær suðu-
marki á markaðstorginu sem á rætur
að rekja til 13. aldar. Blómamarkaðir,
sölubásar, barir, kaffihús og óteljandi
geggjaðir veitingastaðir. Á aðvent-
unni er jólamarkaðurinn einn sá
stærsti í heiminum og sá vinsælasti í
Póllandi og víðar. Maturinn í Wroc-
law er framúrskarandi, hvort sem um
er að ræða pólskan hefðbundinn mat
eða ítalskan, kínverskan, sushi, ind-
verskan … hann er á heims-
mælikvarða.
Við torgið eru líka litlar verslanir
með alls kyns sælkeravöru. Farið á
Pijalnia Czekolady, yndislega súkku-
laðibúð og kaffihús. Heitt súkkulaði,
súkkulaðikökur, blautar og sacher og
allar gerðir, súkkulaðitrufflur, kon-
fekt … þú ert í himnaríki. Það er
aldrei dauð stund á torginu, alltaf
einhver á ferli, allan sólarhringinn.
Menning og minjar Fyrir utan allar
hinar gullfallegu kirkjur og bygg-
ingar í gamla bænum mæli ég með að
kíkja í konungshöll fyrrverandi
Prússakeisara, sem í dag er borg-
arsögusafn, með fornminjum frá
elstu tímum og sýningarsal sem sýnir
vistarverur Prússakeisara. Aldarhöll
er einstök bygging í evrópskum arki-
tektúr. Höllin var byggð á árunum
1911-1913 eftir teikningum arkitekts-
ins Max Bergs, þegar borgin var enn
hluti af þýska heimsveldinu. Tilgang-
urinn var að hafa stað til að halda á
stórar vörusýningar, tónleika, leik-
hús- og íþróttaviðburði. Á þessum
tíma var þetta stórvirki í arkitektúr.
Ekki er úr vegi að fara á tónleika í
höllinni en útisvæðið í kring er líka
einstakt, á sumrin eru þar frægir
gosbrunnar sem í desember er breytt
í skautasvell fyrir borgarbúa. Þaðan
er stutt að skella sér á nútíma-
listasafn borgarinnar í annarri sögu-
frægri byggingu, Skáli fjögurra
hvelfinga, sem er á heimsminjaskrá
UNESCO en það er Aldarhöll líka.
Þar má finna verk eftir alla merkustu
listamenn Póllands. Það er líka gam-
an að kíkja í gyðingahverfi borg-
arinnar, sem er lítið, þar sem um
1.000 gyðingar eru virkir í samfélag-
inu. Fyrir seinni heimsstyrjöld voru
fjölmargar sýnagógur í borginni og
gyðingasamfélagið margfalt stærra.
Á kristallsnótt voru sýnagógur
Wroclaw brenndar, að einni undan-
skilinni, en hún stóð svo nærri öðrum
byggingum að hætt var við að eldur
bærist í þær líka. Hægt er að heim-
sækja hana og finna æðislega veit-
ingastaði í grenndinni, nokkra hebr-
eska. Að lokum er ákaflega
áhugaverð sýning um lífið í Póllandi
eftir heimsstyrjöldina, undir oki
kommúnismans. Hún er mjög gagn-
virk og vel uppsett, átakanleg en
virkilega áhugaverð, í Sögumiðstöð-
inni.
Verðlag Íslendingar hafa skiljanlega
áhuga á því hvernig verðlagið er þar
sem þeir ferðast. Wroclaw er þar
gleðiefni. Að fara út að borða á dýr-
ustu stöðunum, leyfa sér að kaupa
léttvínsflöskur og gista á dýrustu
hótelunum er virkilega ódýrt á okkar
mælikvarða. Nóttin á því hóteli sem
notendur Tripadvisors kjósa sem
besta hótelið, Hilton, er á um 10.000
krónur. Léttvínsglas á flottum veit-
ingastað er undir 300 krónum og sex
stórir bjórar úti í sjoppunni á horninu
hjá okkur við hótelið sem við dvöld-
um á voru á 600 krónur samtals. Þá
eru flottir réttir á matsölustöðum
sjaldnast dýrari en 1.500 krónur.
Það er góð tilfinning að geta farið á
nær hvaða veitingastað sem er og
pantað sér það sem hvern lystir án
þess að fara á hausinn. Þá er hægt að
leyfa sér að fara í nudd en klukku-
stundar gott nudd kostar yfirleitt
ekki meira en 3.000 krónur.
Verðlag á fatnaði og snyrtivörum
er hlutfallslega ekki jafnlágt en þó
betra en víðast hvar annars staðar.
Út fyrir borgina Bílaleigubílar eru
afar ódýrir í Póllandi og því er ekki
úr vegi að lengja dæmigerða borg-
arferð og fara út fyrir bæinn, sem er
sannarlega þess virði. Gullfallegt
landslag er allt um kring og und-
irrituð er harðákveðin í að gera næst
eins og Pólverjar gera og eyða
nokkrum dögum í Wroclaw og svo
nokkrum dögum á heilsulind í sveit-
inni. Pólverjar eru með heilsulindir,
svokölluð spa, úti um allt og eiga þær
nokkurra alda gamla sögu þar sem
Evrópubúar hafa heimsótt þessar
heilsulindir.
Heilsulindirnar eru oft á yndis-
legum stöðum og er þar að finna full-
komna slökun, með nuddmeðferðum,
böðum í náttúrulegum lindum og
góðum mat. Þannig má sérstaklega
mæla með svæðinu í kringum litla
bæinn Polanica-Zdrój, þar eru góð
spa-svæði í kring, svo sem í Duszniki-
Zdrój, Kudowa-Zdrój og Ldek-
Zdrój.
Sé fólk á annað borð komið út í
sveit er endalaust framboð af fal-
legum gömlum köstulum, sá allra fal-
legasti líklega Ksiaz, sem er stærsti
kastali Slésíu, í Waldenburg-
fjöllunum.
Samgöngur Eins og stendur er það
aðeins flugfélagið Wizzair sem flýgur
beint til Wroclaw og er fargjaldið ekki
hátt. Pakki fólk létt er eins og stendur
hægt að bóka flugferð þangað fram og
til baka fyrir rúmar 12.000 krónur.
Bætist ferðataska við er farið um
20.000. Flugferðin er 4-5 tímar og gott
að hafa nóg að lesa og maula með sér
þar sem ekki er sjónvarp um borð.
Flugvöllurinn er afar þægilegur, ekki
of stór og fljótlegt að komast í gegnum
hann en hann er glænýr.
Auðvelt er að nota leigubíla í Wroc-
law, þeir eru eins ódýrir og maturinn
en flóknara að nota lestir þar sem leið-
beiningar eru allar á pólsku. Margir
tala ágæta ensku en oft er hægt að
bjarga sér á þýsku.
Sjarminn við borgina er að al-
þjóðahyggjan hefur ekki náð fótfestu
þar. Þótt það sé hægt að versla í
H&M, kaupa McDonalds og KFC eru
öll skilti úti við á pólsku og þarf að
biðja sérstaklega um enska matseðla.
Þetta er ekki úr ævintýri. Þetta er í
alvörunni miðbærinn í Wroclaw.
Thinkstock/GettyImages
Aldarhöllin er bygging með mikla sögu, á heimsminjaskrá. Og gosbrunnarnir í
kring eru ekki síður frægir. Á desember er þeim breytt í skautasvell.
Thinkstock/Gettyimages
Veitingar eru í hæsta gæðaflokki.Í borginni eru um 400 dvergar.
3.12. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
„Nú vakna ég útsofinn og hvíldur“
Skúli Sigurðsson
Brizo™ er fæðubótarefni
sérhannað fyrir karlmenn sem
þjást af einkennum góðkynja
stækkunar á blöðruhálskirtli.
Rannsóknir hafa sýnt að með
þriggja mánaða inntöku á
Brizo™ hefur blöðruhálskirtill
minnkað töluvert.
Minnkar óþægindi við þvaglát
Fæst í apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaðanna.
Gildir á alla viðburði í húsinu
Nánar á harpa.is/gjafakort
Gjafakort
Hörpu hljómar
vel um jólin