Morgunblaðið - 08.12.2017, Qupperneq 18
BAKSVIÐ
Karl Blöndal
kbl@mbl.is
Martin Schulz, leiðtogiþýskra sósíaldemókrata(SPD), fékk í gær græntljós hjá flokki sínum til
að ganga til stjórnarmyndunar-
viðræðna við kristilega demókrata
undir forustu Angelu Merkel. Schulz,
sem var kanslaraefni flokksins í kosn-
ingunum 24. september, biðlaði til fé-
laga í SPD á flokksþingi í Berlín í há-
deginu í gær og niðurstaðan lá fyrir í
gærkvöldi.
SPD tapaði fylgi í kosningunum
24. september og sagði Schulz, sem
var kanslaraefni flokksins, eftir að úr-
slitin voru ljós að ekki kæmi til greina
að ganga til samstarfs að nýju við
kristilegu flokkana (CDU/CSU).
Eftir að viðræður Merkel við
Græningja og frjálsa demókrata
(FDP) runnu út í sandinn hefur hins
vegar þrýstingur á Schulz um að end-
urskoða þá ákvörðun farið vaxandi og
þegar hann ávarpaði flokk sinn í gær
var markmiðið að færa rök fyrir slík-
um viðsnúningi.
„Við þurfum ekki að vera í stjórn
hvað sem það kostar,“ sagði Schulz í
ræðu sinni á þinginu. „En ekki heldur
megum við ekki vilja vera í stjórn
hvað sem það kostar.“
Kristilegu flokkarnir og sósíal-
demókratar hafa tvívegis myndað
stjórn undir forsæti Merkel. Fyrri
stjórnin sat frá 2005 til 2009. Aftur
gengu stóru flokkarnir í þýskri póli-
tík til samstarfs með Merkel sem
kanslara eftir kosningarnar 2013.
Minnsta fylgi eftir stríð
Stjórnarflokkarnir töpuðu fylgi í
kosningunum í september. Þeir héldu
reyndar meirihluta á þingi, en fengu
minnsta fylgi, sem þeir hafa haft frá
1949. Flokkurinn Annar kostur fyrir
Þýskaland (AfD) bætti hins vegar
mestu við sig og er orðinn þriðji
stærsti flokkur landsins.
Niðurstaðan var áfall fyrir sósí-
aldemókrata og ætlunin var að vinna
úr því á landsþinginu í Berlín. Þegar
við blasti að ganga yrði til kosninga á
ný yrði ekki látið á það reyna hvort
flokkarnir gætu haldið stjórnarsam-
starfinu áfram breyttist staðan.
Fyrir það fyrsta vaknaði ótti um
að yrði sú niðurstaðan myndi van-
traust kjósenda í garð stóru flokk-
anna enn vaxa. Það væri ekki aðeins
líklegt til að marka endalok ferils
Merkel í pólitík, heldur gæti fylgið
haldið áfram að flysjast af sósíal-
demókrötum. Aðrar kosningar yrðu
hins vegar vatn á myllu AfD, sem eft-
ir kosningarnar í september er þriðji
stærsti flokkur landsins og myndi lík-
lega bæta enn við sig.
Margir sósíaldemókratar eru
ekki síður hræddir um að áframhald-
andi samstarf með kristilegu flokkn-
um muni reynast flokknum þungt í
skauti. Þær raddir eru hins vegar há-
værari í grasrótinni en í flokksforust-
unni.
Lofar nýju upphafi
Schulz lofaði í ræðu sinni í gær
nýju upphafi. „Við þurfum að fara í
gegnum undanfarin 20 ár án þess að
sýna miskunn,“ sagði hann. „Ekki til
þess að við … töpum okkur í deilum
sem snúa að fortíðinni, heldur til þess
að læra af mistökum okkar.“
Formaðurinn bætti við að flokk-
urinn hefði ekki aðeins misst fylgi
þegar kosið var í september,
heldur í undanförnum fern-
um kosningum. „Við töp-
uðum ekki bara 1,7
milljónum atkvæða
í þessum kosn-
ingum, heldur höfum
við tapað tíu millj-
ónum síðan 1998 –
helmingi kjósenda
okkar,“ sagði hann.
Schulz fær grænt ljós
á að ræða við Merkel
AFP
Ákall Ræða Martin Schulz á flokksþingi þýskra sósíaldemókrata í gær
var ákall um grænt ljós á að ganga til stjórnarmyndunarviðræðna.
18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 2017
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Hún er ekkialveg lausvið að
vera undarleg
þessi árátta tals-
manna smáríkja
hér og hvar í Evr-
ópu að fárast yfir
ákvörðunum Bandaríkja-
stjórnar og fordæma þær.
Þegar Donald Trump stóð við
fyrirheit sín um að leggja
bann við því að menn frá til-
teknum ríkjum fengju að
sækja Bandaríkin heim varð
uppi fótur og fit. Reyndar var
það Obama forseti sem hafði
undirbúið um hvað lönd væri
að ræða.
Ástæðurnar voru sagðar
þær að þar sem stjórnkerfið í
þessum löndum væri í molum
væri ekki hægt að fá af neinu
öryggi upplýsingar um það
hverjir væru þar á ferð.
Stjórnmálaspírur á Norður-
löndum og í ýmsum ríkjum
Evrópu settu þegar í stað ofan
í við Bandaríkin og stundum
af miklum þunga. Þá var m.a.
gjarnan vitnað til þess, að
dómarar í svæðisbundnum
dómstólum vestra hefðu talið
aðgerðina ólögmæta. Var mik-
ið um það fjallað í fjölmiðlum.
En þegar Hæstiréttur Banda-
ríkjanna staðfesti næsta
ágreiningslítið að ákvarðanir
forsetans væru fullkomlega
lögmætar heyrðist ekkert í
handhöfum réttlætisins í
þessum sömu smáríkjum.
Nú ræða þau aftur saman
vegna ákvörðunar Trumps
forseta um að Bandaríkin
skuli viðurkenna í verki að
Jerúsalem sé höfuðborg Ísr-
aels. Ákvörðunin snýr ein-
göngu að Bandaríkjunum.
Þetta var reyndar líka eitt af
kosningaloforðum Trumps.
Hann virðist vera ein af þess-
um fágætu furðuverum
stjórnmálanna sem telja að
það fari ekki endilega illa á því
að efna eitthvað af kosninga-
loforðum sínum. En þannig
vill að auki til að þrír fyr-
irrennarar Trumps í embætti,
þeir Bill Clinton, George W.
Bush og Barack Obama höfðu
allir, hvað eftir annað, gefið
opinbert loforð um þetta
sama. Öldungadeild Banda-
ríkjanna hafði samþykkt þetta
sama sem stefnu með 93 at-
kvæðum af 100 og gert að lög-
um. Bill Clinton undirritaði
ekki lögin en beitti ekki held-
ur neitunarvaldi sínu svo lögin
tóku gildi. Aðeins þarf 61 at-
kvæði af 100 til að hafa neit-
unarvald forsetans að engu
svo að Clinton var ljóst að
gagnslaust var að beita því og
kannski dálítið óþægilegt líka
þar sem hann hafði lofað
þessu sjálfur.
Það má vissu-
lega hafa mismun-
andi skoðun á
þessari ákvörðun
sem öðrum og öll
álitaefni sem
snerta þennan sér-
lega viðkvæma
blett á landakortinu verða
sjálfkrafa hitamál.
En hitt, að segja að með
ákvörðuninni „sé sjálfu frið-
arferlinu stefnt í hættu“, þá
eru menn komnir í nokkrar
ógöngur. Það er ekkert frið-
arferli í gangi. Það gerðist
ekkert í þeim efnum í tíð
Obama sem forseta. Það er
margoft búið að veita frið-
arverðlaun fyrir áfanga á ferl-
inum, en menn eru samt ekki
mjög langt komnir. Obama
fékk að vísu Friðarverðlaun
Nóbels afhent sem fyrirfram
greidd verðlaun, sem er næsta
einstætt!
Ekki er langt síðan að menn
gátu horft agndofa á það þeg-
ar alríkislögreglumenn frá
Madrid á Spáni gengu ber-
serksgang gegn friðsömu fólki
á leið á kjörstað. Fólk var lam-
ið með kylfum og konur voru
dregnar á hárinu niður tröpp-
ur kjörstaða.
Erlendir fréttamiðlar náðu
myndum af þessu opinbera
ódæði. Fyrstu viðbrögð
stjórnarinnar í Madrid voru
að segja myndirnar ljúga því
að þarna væri um að ræða
sviðsetningu sjálfstæðissinna
í Katalóníu.
Eftir nokkurt þóf bárust
fyrirmæli frá Brussel til
stjórnarinnar í Madrid um að
hún skyldi biðjast afsökunar á
ódæðinu. Það gerði hún þá
strax. Í framhaldinu ákvað
forsætisráðherra Spánar að
efna til nýrra kosninga til hér-
aðsþings Katalóníu. Þegar sú
ákvörðun lá fyrir kallaði
Hæstiréttur Spánar leiðtoga
sjálfstæðissinna frá Barcelona
til höfuðborgarinnar og fang-
elsaði þá og virtust stjórnvöld
stefna að því ótrauð að hafa þá
alla á bak við lás og slá þegar
kosið yrði!
Nú getur vart annað verið
en að utanríkisráðherrar
Norðurlanda hafi þegar í stað
blásið til neyðarfunda um mál-
ið. Þarna er um einstæða at-
lögu að kosningarétti að ræða,
og hún er gerð í okkar eigin
heimaálfu og öll Norðurlöndin
eru í sérstöku sambandi við
Spán með þátttöku í Evrópu-
sambandinu eða samningi um
Evrópska efnahagssvæðið. Á
slíkum fundi hljóta að hafa
komið fram mjög harðorðar
ályktanir um þessi augljósu og
ömurlegu mannréttindabrot.
Fróðlegt væri að fá fréttir
af þeim.
Hvenær tugtuðu
þessi smáríki
Obama til?
Eða var hann
kannski fullkominn?}
Undarleg árátta
S
amkvæmt samantektarskýrslu
UNICEF á Íslandi frá því í janúar
2016, þá er talið að um 9,1% ís-
lenskra barna alist upp við mismik-
inn skort. Þetta eru samtals 6107
börn og þar af eru 1586 þeirra sem líða veru-
legan skort.
Þetta eru börnin sem geta verið svöng þar
sem þau hafa ekki nesti með sér í skólann, fá
ekki að borða með hinum börnunum í hádeg-
inu af því að foreldri/foreldrar hafa ekki ráð á
að greiða fyrir skólamáltíðir.
Þetta eru börnin okkar sem fá ekki tækifæri
til að stunda íþróttir, læra á hljóðfæri, eignast
ný föt, né heldur fylgja eftir því sem talið er
falla undir eðlilega framfærslu barna almennt.
Þetta eru og börnin okkar sem oftast lifa við hvað erf-
iðastar aðstæður heima fyrir. Að ríkjandi valdhafar skuli
ekki sjá ástæðu til að skera upp herör gegn þessum sorg-
legu aðstæðum þessara barna, er mér með öllu óskilj-
anlegt.
Er eitthvað dýrmætara en börnin okkar?
Ég á auðvelt með að svara spurningunni því gagnvart
mér er svarið einfalt. NEI, það er ekkert dýrmætara en
börnin.
Litla fólkið okkar sem líður hér skort fær aldrei að
njóta æskunnar, lifir oft við sult og seyru og virðist
gleymast í umræðunni. Þetta eru einstaklingarnir sem
eiga hvað mest á hættu að verða utan gátta í samfélaginu
og lenda upp á kant við lög og reglur. Við
megum aldrei gleyma því að þetta er ekki
þeim að kenna, þau völdu ekki þetta erfiða
hlutskipti sitt og eiga ekki að þurfa að ganga í
gegnum æskuna sem eitt stórt refsing-
artímabil vanlíðunar og óhamingju.
Tökum saman höndum
Flokkur Fólksins vill taka utan um börnin
okkar og tryggja það, að ekkert barn á Íslandi
sé nokkurn tímann svangt vegna fátæktar. Ég
vil kalla stjórnvöld til ábyrgðar og hef beðið
ítrekað um það, að við tökum saman höndum
hvar í flokki sem við stöndum. Við eigum frá-
bæra þingmenn, þ.e samansafn einstaklinga
með mikla reynslu af þingstörfum. Ég kalla
allt þetta frábæra fólk til liðs við börnin okkar nú. Hugsið
ykkur, það eru að koma jól, líka hjá þeim. Enn ein jólin
sem valda vonbrigðum og sorg í stað gleði og kátínu. Hag-
sældin og góðærið hefur aldrei verið meira en einmitt nú
og því aldrei verið auðveldara að takast á við fátæktina og
útrýma henni með öllu.
Ég hrópa því aftur og aftur eins hátt og ég get: „Tökum
saman höndum hvar í flokki sem við stöndum og útrým-
um þjóðarskömminni fátækt í eitt skipti fyrir öll!Við eig-
um og getum öll fengið að lifa í fallega landinu okkar með
reisn, allt sem til þess þarf er samstaða og vilji valdhaf-
anna.“
Inga Sæland
Pistill
Staðreyndin um fátæku börnin
Höfundur er alþingismaður og formaður Flokks fólksins.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
Martin Schulz, leiðtogi þýskra
jafnaðarmanna, hvatti til þess í
ræðu á flokksþingi SPD í gær
að „Bandaríki Evrópu“ yrðu
stofnuð fyrir 2025.
„Ég vil að gerður verði
stjórnarskrársáttmáli Evrópu,
sem búi til evrópskt sam-
bandsríki“.
Schulz, sem áður var forseti
Evrópuþingsins, sagði að slíkur
sáttmáli yrði lagður fyrir öll að-
ildarríki ESB til staðfest-
ingar og þau sem höfn-
uðu honum yfirgæfu
sambandið sjálfkrafa.
Aðeins með aukinni
sameiningu mætti
glíma við loftslags-
breytingar og flótta-
mannavandann, fá
Google og Facebook til
að virða þegnréttindi
og koma í veg fyrir að
hinir ríku svikju undan
skatti: „Evrópa er líf-
trygging okkar.“
Bandaríki
Evrópu
VILL AUKINN SAMRUNA