Morgunblaðið - 08.12.2017, Side 24

Morgunblaðið - 08.12.2017, Side 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 2017 ✝ Trausti Ein-arsson fæddist á Hellissandi 1. september 1935. Hann lést á Heil- brigðisstofnun Suðurnesja 28. nóvember 2017. Foreldrar hans voru Sigríður Sess- elja Hafliðadóttir, f. 17. júní 1908, d. 1. ágúst 1984, og Ein- ar Ögmundsson, f. 26. febrúar 1899, d. 3. mars 1974. Einar og Sigríður eignuðust átta börn: Þórveig Hrefna, f. 1931, d. 2004, Hafsteinn, f. 1932, d. 1987, Jóhanna Margrét, f. 1934, d. 2016, Tryggvi (tvíbura- bróðir Trausta), f. 1935, d. 1936, Sólmundur Tryggvi, f. 1941, Erna Sigríður, f. 1944, og Sæ- mundur, f. 1945. 19. október 1955 kvæntist Trausti Kristínu Erlu Jóns- dóttur, f. 29. febrúar 1936, d. 2. apríl 2016. Foreldrar hennar voru Vigdís Helgadóttir, f. 1898, d. 1975, og Jón Þorvarðsson, f. 1891, d. 1982. Börn Trausta og Kristínar Erlu eru: 1) Einar Tryggvi, f. 1955, kvæntur Sigríði Margréti Þor- kelsdóttur, og eiga þau þrjár dætur: Sóley, f. 1999, Sunna, f. börn: Tinna Rut, f. 1981, í sam- búð með Stefáni Short og eiga þau þrjú börn: Írena Rut, Lúkas Aron og Baltasar Smári, Trausti Geir, f. 1985, í sambúð með Láru Ólafsdóttur en dætur þeirra eru Elma Rún og Erla Fríða, Tryggvi Freyr, f. 1988, í sambúð með Árnýju S. Guðjónsdóttur. 4) Trausti Már Traustason, f. 1968, í sambúð með Elísabetu Gallagher og börn þeirra eru Magnús Már, f. 1996, Helena Rut, f. 2000, og Bryndís Björk, f. 2002. Trausti lærði múraraiðn á ár- unum 1955-1959. Hann stundaði nám við Byggingartækniskól- ann í Kaupmannahöfn 1963- 1964 og lauk meistaraprófi frá Iðnskólanum í Reykjavík 1967. Hann var formaður Múrara- félags Suðurnesja frá 1965- 1970. Var um tíma í Rótarý- klúbbi Keflavíkur og sat í stjórn 1987. Trausti stundaði sjálf- stæðan atvinnurekstur í byggingariðnaði allt til dauða- dags. Eftir hann standa mörg mannvirki, s.s. fjölbýlishús, iðn- aðarhús, einbýlishús, skólar, kirkjur og sumarhús. Rak hann byggingarfyrirtæki sitt til margra ára. Trausti og Kristín Erla bjuggu allan sinn búskap í Ytri- Njarðvík. Útför Trausta verður gerð frá Ytri-Njarðvíkurkirkju í dag, 8. desember 2017, og hefst at- höfnin klukkan 13. 2001, og Líf, f. 2006. Með fyrri konu sinni, Sigríði Snorradóttur, á Einar tvær dætur: Soffía Erla, f. 1980, gift Steinari Kaldal og eiga þau tvo syni: Kári og Krist- inn, Vigdís Eygló, f. 1988, í sambúð með Mark Nelmida Ax. Fyrir á Einar son- inn Helga Þór, f. 1976, barns- móðir Sveinhildur Helgadóttir. Helgi Þór er í sambúð með Mar- gréti Blöndal og börn þeirra eru Agnes Eir og Vilhjálmur Logi. Fyrir á Helgi Þór soninn Bene- dikt Jökul, barnsmóðir Kristín Kristjánsdóttir. 2) Ástríður Vigdís Trausta- dóttir, f. 1956, gift Guttormi B. Þórarinssyni, og eiga þau þrjár dætur: Vigdís Erla, f. 1992, unn- usti Kristinn Kerr Wilson, Járn- gerður Kristín, f. 1993, og Mar- grét Katrín, f. 1995. Áður átti Guttormur tvö börn: Hjörtur, f. 1987, kvæntur Kaitlyn-Hua, þeirra dóttir er Thea, og Guð- björg, f. 1989, í sambúð með Stefáni Ó. Stefánssyni og þeirra sonur er Stefán Ólafur. 3) Torfi Smári Traustason, f. 1958, kvæntur Sigfríði Sigur- geirsdóttur og eiga þau þrjú Mig langar að skrifa nokkur orð um hann pabba minn, hann var góður maður í alla staði, vildi allt fyrir alla gera og hjálpaði fólki með ýmis góð ráð og hugs- aði alltaf í lausnum. Það var alltaf lausn á öllu, hann var víðlesinn og voru ævisögur vinsælastar, bjartsýni einkenndi hann og horfði hann alltaf fram á veginn. Vinnuþjarkur var hann með ein- dæmum svo stundum þótti manni nóg um, byggði stein- steypt hús á áttræðisaldri og einnig fjölda smáhýsa sem hann hafði yndi af, þar sem hann gat unað sér einn fram á síðasta dag. Var reyndar enn að tala um byggingar á dánarbeðinum, þær áttu hug hans allan, er ábyggi- lega búinn að fá lóðir þarna uppi. Yfir vetrarmánuðina áttu Kanar- íeyjar stóran sess í hans lífi og á sumrin var það bústaðurinn á Arnarhóli sem hann og mamma byggðu. Pabbi var ekki mikið að elda á meðan mamma var á lífi, en þeg- ar hún dó, tók hann til sinna ráða og voru þær ófáar hringingarnar yfir til mín, þar sem hann bauð mér í mat og var hann ýmist með kjötsúpu, baunasúpu, sigin fisk, svið – já bara rammíslenskan mat, sem hefur ábyggilega lengt líf hans svo um munar – eldaði hann bleikju þann 18. nóvember og það var það síðasta sem hann gerði í eldhúsinu og hún var svo góð, alúð og hlýja lögð í elda- mennskuna. Allt sem hann gerði gerði hann vel, hversu lítið sem það var. Sagði hann alltaf „það á að gera hlutina vel“. Faðir minn var engum líkur, greindist með krabbamein fyrir 17 árum, en það sló hann ekki út af laginu. Hann barðist mikið við þennan vágest og tók það mikið á hann, en hann ætlaði sér að lifa sem hann gerði vel og lengi. Hann hefur marga fjöruna sopið í þessu lífi og eitt það sárasta var þegar viðskiptabanki hans sneri baki við honum á örlagastundu. Hann jafnaði sig eiginlega aldrei á því. Óréttlæti var eitthvað sem pabbi þoldi illa, orðspor pabba er demantur sálar hans. „Orð skulu standa“ var mikið notað. Hann var ættjarðarvinur mikill og sagði alltaf að Ísland væri besta land í heimi þrátt fyrir misvitra bankamenn, en ekki verður á allt kosið. Takk fyrir allt, kæri faðir, meistari, lærifaðir, vinur, afi barna minna, takk fyrir að vera ávallt til staðar. Takk fyrir allt. Þinn elskandi sonur, Trausti Már Traustason. Trausti Einarsson tengdafaðir minn er fallinn frá. Mér er það ljúft að þakka fyrir vegferðina með Trausta. Það fór vel á með okkur frá fyrstu tíð. Trausti kunni að meta það að ég hafði við honum á göngu. Það var því mik- ilvægt fyrir mig að koma vel bú- inn „suður með sjó“ því ævinlega fórum við karlarnir í langar göngur um Njarðvíkur og Kefla- vík, jafnvel upp á heiði í flugstöð- ina eða í Helguvík. Verðandi kon- an mín þakkaði mér ævinlega fyrir þær næðisstundir sem hún naut með móður sinni á meðan. Trausti hafði frá mörgu að segja. Hann þekkti landið og húsin og síðan þekktu flestir Trausta. Þessar göngur með Trausta voru mikil heilsubót og einstök fræðsla um menn og málefni í bænum. Þeir sem við hittum á gönguferðum okkar voru þakk- látir Trausta fyrir íbúðirnar sem þeir höfðu keypt af honum, og reynst þeim vel. Trausti var íþróttamannlega vaxinn og hraustur. Hann var mikið karl- menni, kurteis og þolinmóður. Réttsýnn og ærlegur og vildi standa við skuldbindingar sínar. Trausti var flinkur með múr- skeiðina og fljótur. Hann var með afbrigðum vinnusamur og féll sjaldan verk úr hendi, skipu- lagður og framsýnn. Þá var sam- vera okkar á Kanarí okkur báð- um mikil heilsubót þegar við tókumst á hendur að endurbæta íbúð þar. Við flísalögðum öll gólf og innréttuðum eldhús. Þá sann- aði sig enn og aftur hvað Trausti var úrræðagóður. Við þurftum sand í múrblöndu og þá voru hæg heimatökin að fara í fjörusand- inn, en betra að gera það á kvöld- in þegar sólbaðsgestir voru farn- ir og sandburður okkar minna áberandi. Meira og minna allt hans ríkidæmi fast og laust fé, fjölmörg hús og að lokum hans eigið heimili féll í hendur Spari- sjóðsins á árunum í kringum 1990. Þetta var skiljanlega mikið högg, en engum vörnum var við komið. En það er eitt að missa frá sér nokkur hús, og annað að missa heilsuna. Það var blóð- krabbameinið sem setti strik í reikninginn. Eitt sinn dreymir Trausta sem hann standi við leg- stein sinn. Þegar hann sagði okk- ur þennan draum var hann afar ánægður því ártalið endaði á 7 þannig að enn voru nokkur ár til stefnu. Síðan liðu árin og árið 2007 og Trausti tekinn til við að byggja hús bæði stór og smá. Í nokkur skipti tókst mér að leggja Trausta lið í byggingarvinnunni og það var okkur báðum skemmtun og lærdómur. Allt var eins og maður var vanur frá fyrri tíð, kaffiskúr, ketill, neskaffi og kex og svo að spjalla saman, „það er um að gera að halda áfram að gera það sem er skemmtilegt og lifa lífinu“. Í haust þvarr fjör Trausta og meðferð við blóð- krabbameini lauk. Það var viðbú- ið hvert stefndi og tengdafaðir minn tók þá stefnu markvisst. Hann gaf upp andann sáttur og saddur lífdaga. Nú eru tengdaforeldrar mínir báðir fallnir frá. Eftir situr góð minning um hlýjar og myndar- legar móttökur þeirra hjóna í minn garð frá fyrstu kynnum. Blessuð sé minning þeirra. Guttormur Björn Þórarinsson. Elskulegur tengdapabbi minn Trausti Einarsson hefur kvatt þessa jarðvist. Í 40 ár hef ég þekkt þennan sómamann. Það var aldrei lognmolla í kringum Trausta, hann var skoðanamikill maður, góður húmoristi með stórt hjarta. Heiðarlegri mann er vart hægt að hugsa sér. Hann taldi það skyldu hvers og eins að standa við gefin loforð og bera ábyrgð á því sem maður tæki að sér. Hann var kraftmikill at- hafnamaður sem gafst aldrei upp. Eflaust hefur hann fengið þennan aukakraft sem marga vantar frá elskulega tvíbura- bróður sínum sem lést aðeins eins árs að aldri, en þeir voru ein- eggja tvíburar. Trausti var heimspekingur og mannvinur sem gaman var að spjalla við um lífsins gagn og nauðsynjar. Hann var víðlesinn og fróður og hafði góða frásagn- arhæfileika.Hann hreif fólk með sér og setti svip á umræðuna. Hann var fastur fyrir og ekkert fékk honum haggað. En þrátt fyrir það var gaman að eiga við hann skoðanaskipti og stjórn- málaumræður voru sjaldan langt undan. Aldrei heyrði ég hann segja styggðaryrði um nokkurn mann. Trausti elskaði lífið og var með framkvæmdaglampa í augum al- veg fram á síðasta dag. Hann sat aldrei auðum höndum og var skapandi og skemmtilegur. Þá talaði Trausti alltaf um að fólk ætti að eiga sér drauma og fram- kvæma þá. Það gerði hann svo sannarlega. Hann gladdist yfir velgengni afkomenda sinna og fylgdist vel með hverjum og einum. Lífsgildi Trausta voru heiðar- leiki, traust og vinnusemi. Þau gildi kenndi hann afkomendum sínum og lagði ríka áherslu á að allir nýttu tímann sinn vel og létu gott af sér leiða. Ófáar voru ferðirnar hjá Erlu og Trausta til Kanarí og nutu þau lífsins þar. Þá skipulagði hann sælureit ættarinnar og kom því í kring að systkini hans byggðu sér sumarhús í landi Syðri- Reykja í Biskupstungum. Þarna sýndi Trausti og sannaði hversu mikill frumkvöðull og stórhugi hann var. Trausti barðist við illvígan sjúkdóm í 17 ár, sem hann tókst á við af æðruleysi og bjartsýni. Aldrei heyrði maður hann kvarta og uppgjöf var ekki til í hans orðabók. Erla tengdamamma mín var honum mikil stoð og stytta í þessum veikindum. Missir hans var því mikill þegar hún féll frá á síðasta ári. Trausti var frumkvöðull með mikinn sköpunarkraft og hann fór ekki troðnar slóðir. Hann var félagslyndur og góður ræðumað- ur. Það var gaman að hlusta á hann segja frá og er mér í fersku minni síðasti afmælisdagurinn hans 1. september síðastliðinn. En þá bauð hann afkomendum sínum, eftirlifandi systkinum og afkomendum þeirra til ferða- veislu á Snæfellsnesið á æsku- slóðirnar. Þessi dagur var í alla staði yndislegur og einstakur al- veg eins og tengdapabbi minn var sjálfur. Það var mannbæt- andi að þekkja Trausta og for- réttindi að hafa verið tengda- dóttir hans. Fyrir það verð ég ævinlega þakklát. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið, og þín er liðin æviönn á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram, mörg ljúf og falleg saga. (Höf. ók.) Hvíl í friði elsku Trausti minn og Guð geymi þig. Þín tengdadóttir Sigfríður. Það er skrítið að kveðja Trausta afa. Jafnvel þó svo að við vitum hvernig lífið gengur fyrir sig og að allir deyja að lokum var afi einhvern veginn ódauðlegur fyrir okkur systrum. Sama hversu veikur hann varð var hann alltaf með jákvætt hugarfar og leið best þegar hann hafði eitt- hvað fyrir stafni. Það leið ekki sá dagur sem afi var ekki með spennandi verkefni í gangi, enda handlaginn. Hann var mikill fjölskyldu- maður og var stoltur af sinni stórri fjölskyldu og sýndi hann það með bestu knúsum í heimi. Við munum helst eftir afa á yngri árum í vinnufötunum, með steypu á höndunum og bros á vör, já, hann var alltaf brosandi. Það er líka fast í minningunni þegar hann og amma komu heim frá Kanaríeyjum þar sem þau dvöldu oft heilu veturna í senn, það var alltaf svo gott að fá þau heim og þau bæði svo ótrúlega hamingjusöm. Það er sárt að sjá afa fara en við vitum að Erla amma tekur vel á móti honum. Guðbjörg, Vigdís Erla, Járngerður Kristín og Margrét Katrín. Mikið er sárt að kveðja þig, elsku afi minn. Enn sárara er að hugsa til þess að elsku Erla amma og Trausti afi eru farin og koma aldrei aftur. Það er tómlegt að koma að Steinási í Njarðvík þessa dagana. Einungis eru 19 mánuðir síðan Erla amma kvaddi okkur í hinsta sinn. Loks ertu kominn aftur til hennar og þið sameinuð á ný. Þú varst alltaf svo stoltur af öllum afkomendum þínum, stórum sem smáum. Það var alltaf gaman að koma í heim- sókn til þín, þú varst svo gestris- inn, smurðir brauð handa okkur og leyfðir hugmyndafluginu að ráða varðandi samsetningu á áleggi. Sem við brostum oft yfir. Þá fórstu iðulega út í bakarí og keyptir gúmmelaði með kaffinu, fórst með krakkana í bíltúr til að kaupa ís eða nammi og labbaðir með þau út að tjörninni. Þú varst dugnaðarforkur alla tíð, enda múrarameistari með meiru, þú byggðir fullt af húsum í Njarð- vík, Hveragerði og víðar. Það er ekki langt síðan við kíktum í kaffi til þín og þú sýndir okkur möppu með öllum þeim húsum sem þú hafðir byggt. Þú sast aldrei auð- um höndum, varst alltaf með ein- hver verkefni í gangi, alveg fram á þinn síðasta dag. Þú talaðir allt- af um að þig langaði til þess að flytja í íbúðina á efri hæðinni hjá þér því þar væri betra útsýni, en því miður varð ekki úr því. Von- andi ertu nú á betri stað með fal- legt útsýni. Við fjölskyldan erum þakklát fyrir það að hafa öll heimsótt þig á sjúkrahúsið í Keflavík tveimur dögum áður en þú kvaddir okkur. Þú varst uppi í rúmi fárveikur en ætlaðir að fara fram úr rúminu til að taka á móti okkur, en við sögðum þér að liggja fyrir, þetta varst þú elsku afi, svo gestrisinn, alltaf. Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý og hógvær göfgi svipnum í. Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt og hugardjúpið bjart og stillt. (Jóhannes úr Kötlum) Takk fyrir allt, elsku afi minn. Sofðu rótt. Þín, Tinna Rut. Í dag er bróðir minn Trausti til moldar borinn eftir margra ára baráttu við erfiðan sjúkdóm. Trausti var strax á unga aldri ákveðinn og framtakssamur drengur og alla tíð síðan. Hann var vel gefinn, stjórnsamur, stundum þrjóskur, fróður um ýmis málefni, vel lesinn, með ákveðnar skoðanir, hlustaði á aðra, ræddi gjarnan um starfið, samfélagið og lífið almennt. Sinnti vel þeim verkefnum sem hann tók að sér, vandvirkur og stóð við sitt. Trausti nam við Iðn- skóla Keflavíkur, gerðist múrari og vann sem byggingarmeistari. Flest verkefni Trausta vann hann á Suðurnesjum og einnig víðar. Bræðurnir Trausti og Haf- steinn unnu saman um stund og fyrsta fjölskylduhús þeirra byggðu þeir saman. Trausti reyndist bróður sínum vel og að- stoðaði þegar þess var þörf. Trausti komst yfir jarðhitatengt svæði í Biskupstungum er Arn- arhóll heitir og lét skipuleggja þar vinsæla sumarhúsabyggð. Erla og Trausti áttu litla íbúð á Kanarí sem reyndist þeim vel í alla staði. Við systkinin vorum alls átta og þrjú þau yngstu lifa. Við áttum frábæra foreldra og höfum sannarlega notið þess, höfum eignast góðar fjölskyldur sem stækka óðum. Samband okkar Trausta var ætíð mjög ná- ið og hann reyndist mér vel hér heima og þegar ég var í námi er- lendis. Við hittumst oft einir eða með fjölskyldum okkar og gátum rætt um hin ótrúlegustu málefni og nutum þess. Lífið og aðstæður breytast á langri ævi en oftast tókst Trausta að rétta við hag sinn og sagði að erfitt væri að varast erfiðleika lífsins og því mikilvægt að leita skynsamlegra lausna hverju sinni. Trausti hlaut aðdáun og virðingu þeirra sem til þekktu. Fyrir 17 árum veiktist Trausti alvarlega en með aðstoð góðra lækna og frábærrar fjöl- skyldu sinnar tókst að halda við- ráðanlegri heilsu þinni öll þessi ár. Trausti hefur sýnt ótrúlegan styrk og innri kraft gegn þessum sjúkdómi og erfiðleikum í þessu lífi, algjör hetja. 1. september ákvað Trausti að fara til Snæ- fellsness með nánum ættingjum og vandmönnum. Ekið var um suðurhluta Snæfellsness á ættar- svæði móður okkar til Ingjalds- hólskirkju. Þar er Tryggvi tví- burabróðir Trausta grafinn ásamt mörgum af ættingjum okkar og hélt Trausti hjartnæmt erindi yfir gröf hans. Þá var gengið til kirkju og sögð saga staðarins og síðan haldið til Hellissands að Hraunprýði, fyrsta heimili foreldra okkar, en þar fæddist Hrefna systir. Sæ- mundur og Haraldur frændur okkar leiðbeindu okkur. Klepps- búð var nefnd þar sem Haf- steinn, Jóhanna og tvíburarnir Trausti og Tryggvi fæddust. Grímshús var nefnt er faðir okk- ar og Karvel bróðir hans áttu og veitti foreldrum þeirra og systk- inum skjól og sögur sagðar sem tengdust ættinni. Að lokum var haldið að Hellu í Beruvík þar sem föðurforeldrar okkur bjuggu, svæðið skoðað úr fjarlægð og haldið heim í frábæru veðri. Ég held að Trausti hafi fundið á sér að líf hans væri senn á enda og því viljað fara þessa ferð. Kæru börn Trausta, systkini- ,fjölskyldur þeirra, ættingjar og vinir. Sendi ykkur hjartnæmar samúðarkveðjur vegna fráfalls míns kæra bróður. Lengi lifi minning hans. Sólmundur Tryggvi og Astrid. Láttu hug þinn aldrei eldast eða hjartað. Vinur aftansólar sértu, sonur morgunroðans vertu. (Stephan G. Stephansson) Þetta fallega ljóð minnir mig á föðurbróður minn, sem var sí- ungur og nýtti tímann vel. Trausti hafði allt sem prýðir góðan og heiðarlegan mann og bar nafn með rentu. Þeir sem þekktu hann virtu og elskuðu sökum mannkosta hans. Hann var vandaður og hreinskilinn í hegðun sinni, ljúfur og góður fjölskyldumaður. Hann var víð- lesinn og fróður. Trausti vissi að skokk og sund væri mikil heilsu- bót og hélt sér í formi löngu áður en almenningur fór að stunda slíka heilsurækt. Maður kom ekki að tómum kofanum hjá frænda mínum. Það var hægt að ræða við hann um allt milli himins og jarðar. Þrátt fyrir að vera önnum kafinn fylgd- ist hann með því sem unga fólkið í fjölskyldunni var að stússast, hvort sem það var á íþróttasviði eða öðru. Trausti átti tvíburabróður, Tryggva, sem lést þegar þeir voru níu mánaða. Trausti hóaði fjölskyldunni saman til að fara vestur á Snæfellsnes að leiði Tryggva á 82. fæðingardegi þeirra 1. september síðastliðinn Það var vel heppnuð ferð í alla staði og táknræn kveðjustund gamla mannsins. Trausti hafði mikil áhrif á líf okkar fjölskyldunnar. Þegar for- eldrar mínir voru að byrja bú- skap fyrir tæpum 50 árum hvatti hann þau til að kaupa lóð, því að í Njarðvíkunum voru allir að byggja og ekki menn með mönn- um nema að eiga lóð. Úr varð að lóðin var keypt og hafist handa við húsbyggingu sem er síðan æskuheimilið okkar. Pabbi, sem er tíu árum yngri en Trausti, keypti sumarbústaðalóð þrátt fyrir að vera að byggja einbýlis- hús á sama tíma. Trausti hafði tröllatrú á pabba og úr varð að lóðin var keypt og tvær aðrar lóðir fóru einnig innan fjölskyld- unnar ásamt lóð Trausta. Hvatn- ing frá stóra bróður var mikil og sumarbústaðareign var málið. Stórfjölskyldan úr Njarðvík naut þess næstu áratugina að svamla í heitum pottum, veiða í lækjum og að vera til. Ævintýrin í Arnarhól í Biskupstungunum veittu okkur Trausti Einarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.