Morgunblaðið - 18.12.2017, Síða 6

Morgunblaðið - 18.12.2017, Síða 6
Allt að 191 íbúð » Samkvæmt tillögu að breyttu deiliskipulagi er heim- ilt að byggja allt að 191 íbúð á Hlíðarenda 9-15, F-reit. » Þá var byggingarmagn á A- reit aukið í 17.500 fermetra, auk 4.600 fermetra af sameig- inlegu rými og 12.000 fer- metra bílakjallara, alls 34.100 fermetrar. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Borgarráð hefur samþykkt beiðni Valsmanna hf. um að fá að þinglýsa tryggingarbréfi að fjárhæð 4,4 millj- arðar króna á fyrsta veðrétt lóðarinn- ar Hlíðarenda 9-15. Þar er áformað að byggja allt að 191 íbúð. Málið varðar breytingu á veð- og tryggingarstöðu veðskuldar Vals- manna hf. gagnvart borginni. Fjár- hæðin vitnar um áætlað verðmæti fyrirhugaðrar uppbyggingar. Fram kemur í umsögn borgar- lögmanns að veðskuldabréf í eigu borgarinnar að fjárhæð 385 milljónir, útgefið 29. júní 2013, hvíli nú á 1. veð- rétti umræddrar lóðar. Óskuðu Vals- menn sem áður segir eftir að fá að þinglýsa 4,4 milljarða bréfi á þennan veðrétt. „Til að tryggingarstaða Reykja- víkurborgar verði ekki lakari bjóða Valsmenn hf. til tryggingar fyrsta veðrétt á lóðinni Hlíðarenda 2, svo- kallaðan A-reit sem veðandlag til tryggingar framangreindu veðskulda- bréfi að fjárhæð kr. 385.000.000,“ skrifar Ebba Schram borgar- lögmaður. Lóðin sé sambærileg Borgarlögmaður vísar svo til þess mats skrifstofu eigna og atvinnuþró- unar borgarinnar að þessir veðflutn- ingar rýri „á engan hátt tryggingu Reykjavíkurborgar fyrir skuldabréf- inu“. Lóðin Hlíðarendi 2 sé enda að „öllu leyti sambærileg að gæðum sem veðandlag og lóðin Hlíðarendi 9-15“. Fram kom í bréfi Brynjars Harð- arsonar, framkvæmdastjóra Vals- manna, til borgarlögmanns að Ís- landsbanki hefði sett það „ófrá- víkjanlega skilyrði að tryggingarbréf þeirra á bak við framkvæmdafjár- mögnun hvíli frá byrjun á 1. veðrétti“. „Í ljósi þess trausta, góða og ár- angursríka samstarfs sem ríkt hefur milli Valsmanna hf. og Reykjavíkur- borgar er það von mín að hægt sé að verða við þessari beiðni, enda er hér tryggt að veðstaða skuldarinnar verður síst lakari en nú er,“ skrifaði Brynjar í beiðni sinni til borgarinnar. Samkvæmt fasteignaskrá er Knattspyrnufélagið Valur skráður eigandi lóðarinnar Hlíðarendi 2. Fé- lagið Valsmenn hf. er hins vegar skráður eigandi Hlíðarenda 9-15. Þar verða tæplega 200 íbúðir. Nýjustu tillögur gera ráð fyrir 880- 930 íbúðum við Hlíðarenda. Þar af yrðu 100-150 þeirra ætlaðar stúdent- um. Þær yrðu á A-reit. Valsmenn fá 4,4 milljarða króna veð  Var „ófrávíkjanlegt skilyrði“ Íslandsbanka  F-reitur Vals hluti af tugmilljarða króna uppbyggingu Morgunblaðið/Hanna Hlíðarendi Fjölbýlishús í smíðum. 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2017 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Fólk úti á landi væntir jafnan margs af þingmönnum sínum sem það vill að gæti sinna hagsmuna í svo mörgu. Ég fór víða um Norð- vesturkjördæmi í haust og þótt áherslur séu mismunandi milli svæða er þráðurinn þó jafnan hinn sami; dreifbýlið sé jafnsett öðrum um til dæmis heilbrigðis- þjónustu og samgöngur og at- vinnulífið hafi skilyrði til sóknar,“ segir Halla Signý Kristjánsdóttir, nýr þingmaður Framsóknar- flokks. Mikill ávinningur Halla Signý er úr hópi tíu systkina sem ólust upp á Brekku á Ingjaldssandi. Þar á bæ var hlust- að á alla fréttatíma og spáð í póli- tík hvers dags. „Þegar fréttirnar voru í út- varpinu mátti ekki heyrast púst. Og svo kom sá tími að maður fór að hlusta með eftirtekt og mynda sér skoðanir og ég man enn þegar þingmaður okkar Vestfirðinga, Steingrímur Hermannsson, kom heim til að tala við fólkið í sveit- inni. Faðir minn, Kristján Guð- mundsson, sagði oft við mig að konur ættu að taka þátt í þjóðmál- unum til jafns við karla og þegar ég var sextán ára og Vigdís Finn- bogadóttir kjörin forseti Íslands var eins og allir vegir yrðu færir,“ segir Halla Signý, sem um tvítugt hóf búskap í Önunarfirði með manni sínum. Fór þá að láta til sín taka í félagsmálum bænda og svo fleiri verkefnum. „Á síðustu árum hafa Vest- firðingar verið í sókn, svo sem með fiskeldi á sunnanverðum Vestfjörðum. Ávinningurinn af því er mikill og íbúar á svæðinu því farnir að gera áætlanir til framtíðar. Núna hafa vísinda- menn sett ákveðna fyrirvara um að fiskeldið verði aukið með tilliti til umhverfisins og því ber okkur að taka mark á. Allt verður að vinna í sátt við umhverfið; ef ekki fáum við það í bakið síðar,“ segir þingkonan og heldur áfram: Öll verk marka vistspor „Oft vantar inn í mengið og umræðuna að maðurinn er hluti af umhverfinu og öll okkar verk marka vistspor. Hér verður að finna meðalveg, til dæmis í sam- göngumálum því það gengur ekki að úrbætur í vegagerð á sunnan- verðum Vestfjörðum séu í bið- stöðu áratugum saman vegna deilna um hvort leggja megi veg um Teigsskóg. Að þarna sé ekki bætt úr skapar mikinn vanda, til dæmis fyrir sjávarútveginn og fiskeldisfyrirtækin á svæðinu sem þurfa að koma afurðum sínum á markað. Oft eru flutningabílarnir fastir þvers og kruss á vegunum sem gerðir voru fyrir 50 til 60 ár- um og ekki gerðir fyrir umferð dagsins í dag.“ Hálsbólga og hæsi valda því að Halla Signý hefur enn ekki flutt jómfrúræðuna á Alþingi. Af því verður væntanlega í vikunni enda um margt að ræða þegar fjárlagafrumvarp fyrir komandi ár er til umfjöllunar og af- greiðslu. „Í meginatriðum er ég sátt við frumvarpið, enda eru framlög til heilbrigðiskerfisins aukin verulega, svo og til vega- mála og háskóla. Vissulega nást markmiðin ekki strax en það mun takast enda ætlar ný ríkisstjórn sér að sitja heilt kjörtímabil.“ Kallað eftir stöðugleika Fólk í kjördæminu er duglegt að hafa samband og kynna sín sjónarmið, sem er vel, segir þing- konan og bætir við að lokum: „Stjórnmálamenn eiga að vinna í þágu fólksins. Ný ríkis- stjórn hefur fengið góðar við- tökur, sem ég þakka því að þau Katrín, Bjarni og Sigurður Ingi, sem öll njóta víðtæks trausts, vönduðu til verka í stjórnarmynd- unarviðræðunum og fengu full- trúa ýmissa samtaka og stofnana að borðinu með sitt álit. Stjórnin hefur breiða skírskotun frá vinstri til hægri enda þótt þær skilgreiningar á þjóðmálunum séu á margan hátt að hverfa. Reyndar er það nú svo að ég hitti fólk sem kaus ekki stjórnarflokk- ana en er samt ánægt með stjórn- ina, sem segir mér að stöðugleiki í stjórnmálunum er öðru fremur það sem fólk kallar eftir.“ Nýr þingmaður Framsóknarflokks brennur fyrir hagsmunum dreifbýlis Morgunblaðið/Sigurður Bogi Stjórnmál Skilgreiningarnar vinstri og hægri eru að hverfa, segir Halla Signý Kristjánsdóttir. Maðurinn í menginu  Halla Signý Kristjánsdóttir fæddist árið 1964 og ólst upp á Ingjaldssandi. Er viðskipta- fræðingur frá Bifröst og stund- ar framhaldsnám í opinberri stjórnsýslu við HÍ.  Í tíu ár var Halla Signý bóndi á Kirkjubóli í Bjarnardal í Ön- undarfirði, var bankamaður og fjármálastjóri Bolungarvíkur- kaupstaðar frá 2005 fram á nýliðið haust. Hefur sinnt ýms- um félagsstörfum, svo sem í þágu bænda. Hver er hún? Veðurstofa Íslands vekur athygli á talsverðri hláku á landinu í dag og í kvöld, en sunnan- og suðaustantil var talsverð rigning í nótt og aftur er von á mikilli rigningu í kvöld. Úr- koman fellur að mestu á frostkalda jörð sem getur valdið því að vatn safnast fyrir á vegum og í dældum í landslagi, auk vatnavaxtar í ám og lækjum. Vestanlands verður hlákan staðbundnari, einkum á norðanverðu Snæfellsnesi og sunnanverðum Vest- fjörðum. Þrátt fyrir hlýindi á landinu í dag segir Þorsteinn V. Jónsson, veður- fræðingur á vakt, í samtali við Morgunblaðið að kólna fari aftur í vikunni. „Við getum alveg sagt að það séu þokkalegar líkur á að það verði hvítt víða um land um hátíð- arnar. Það fer allur snjór á morgun en svo bætist í éljaganginn í vikunni. Síðan kemur sunnanátt á með rign- ingu og hlýindum á föstudag, en það er spurning hvað tekur mikið upp. Svo um helgina virðist kólna aftur og vegna kuldans og éljalofts þá er lík- legt að það verði snjór á jörðu á jóla- dagsmorgun.“ thorgerdur@mbl.is Varað við hláku í kjölfar hlýnunar  Þónokkrar líkur á hvítum jólum Morgunblaðið/G.Rúnar Hláka Vatn getur safnast saman á vegum og í dældum í landslagi. Karlmaður var á föstudag dæmdur í þriggja ára langt óskilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa nauðgað stúlku á heimili hennar árið 2016. Auk þess var maðurinn dæmdur til að greiða brotaþola sínum 1,5 millj- ónir króna í miskabætur. Í dómi Héraðsdóms Reykjaness kemur fram að hinn dæmdi og brotaþoli hafi þekkst síðan úr grunnskóla, en hvorugt var orðið 18 ára þegar brotið átti sér stað. Áður hafi hinn dæmdi króað brota- þola af inni á salerni, þegar bæði voru í 10. bekk, þar sem hann nauðgaði henni. Maðurinn mun hafa þrábeðið konuna að fá að koma heim til hennar í þeim tilgangi að sýna henni teikningu og hún látið undan. Hann hafi ekki verið með teikningu meðferðis en byrjað strax að ganga á hana. Konan streittist á móti í tvær klukkustundir. Þegar hinn dæmdi fór hafi hann sagt: „Þú vild- ir þetta, þú veist það.“ Fékk 3 ára fangelsisdóm fyrir nauðgun

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.