Morgunblaðið - 18.12.2017, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2017
Efnahagur Íslands og Íslendingahefur almennt þróast með já-
kvæðum hætti á nýliðnum árum.
Ekki er náttúrulögmál að svo verði
áfram og rangar ákvarðanir geta
hæglega valdið niðursveiflu.
ÍMorgunblaðinu á laugardag ersagt frá því að atvinnuþátttaka
mælist nú minnkandi og að það
bendi til að atvinnuleysi hafi náð
lágmarki og fari vaxandi. Mikill
straumur útlendinga hefur verið til
landsins vegna skorts á vinnuafli, en
nú fjölgar mjög atvinnulausum út-
lendingum. Það er afar óheppileg
þróun og getur orðið skattgreið-
endum kostnaðarsöm.
Sérfræðingur Vinnumálastofn-unar les út úr nýjum tölum að
hægt hafi á vexti ferðaþjónustunnar
úti á landi, sem er áhyggjuefni ef sú
þróun heldur áfram.
Á sama tíma gerist það að flug-virkjar hjá stærsta fyrirtæki í
ferðaþjónustu á Íslandi ákveða að
leggja niður störf til að knýja fram
kjarabætur. Land sem á orðið mikið
undir ferðaþjónustunni getur ekki
leyft sér að bjóða upp á ítrekuð
verkföll eða verkfallshótanir lyk-
ilstétta í ferðaþjónustu.
Og öllum má ljóst vera að at-vinnulífið er komið að þol-
mörkum – og vel það – þegar launa-
hækkanir eru annars vegar.
Þetta verður að hafa í huga í þeimkjarasamningum sem standa
yfir og eru fram undan. Enginn yrði
bættari með kröfugerð sem ylli koll-
steypum. Og verkföll eru síst til þess
fallin að bæta ástandið.
Kollsteypurnar
bæta ekki kjörin
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 17.12., kl. 18.00
Reykjavík 2 alskýjað
Bolungarvík 3 alskýjað
Akureyri 2 skýjað
Nuuk -5 léttskýjað
Þórshöfn 5 heiðskírt
Ósló -7 skýjað
Kaupmannahöfn -1 þoka
Stokkhólmur -4 heiðskírt
Helsinki -2 snjókoma
Lúxemborg 0 skýjað
Brussel 3 léttskýjað
Dublin 10 skýjað
Glasgow 6 skýjað
London 7 skúrir
París 3 þoka
Amsterdam 5 léttskýjað
Hamborg 0 léttskýjað
Berlín 1 skýjað
Vín 2 skýjað
Moskva 1 alskýjað
Algarve 15 heiðskírt
Madríd 9 léttskýjað
Barcelona 11 léttskýjað
Mallorca 12 léttskýjað
Róm 7 heiðskírt
Aþena 15 léttskýjað
Winnipeg -8 léttskýjað
Montreal -16 snjókoma
New York 1 alskýjað
Chicago 1 þoka
Orlando 21 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
18. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:20 15:30
ÍSAFJÖRÐUR 12:07 14:53
SIGLUFJÖRÐUR 11:52 14:34
DJÚPIVOGUR 10:59 14:50
Mikið var um ölvun og akstur undir
áhrifum á höfuðborgarsvæðinu um
helgina. Í tilkynningu frá lögreglu er
greint frá mörgum slíkum málum
sem upp komu, auk annarra verk-
efna sem lögreglan þurfti að sinna. Í
einu tilvikinu var óskað eftir aðstoð
lögreglu á veitingastað í austurborg-
inni, en þar neitaði viðskiptavinur að
greiða fyrir þær veitingar sem hann
hafði pantað. Á sömu slóðum var
maður handtekinn í heimahúsi um
miðja nótt, en sá hafði brotist inn á
heimili og þegar húsráðandi kom
fram í eldhús sat maðurinn þar og
gæddi sér á afgöngum kvöldsins. Þá
voru tveir ökumenn sem töluðu í
símann án þess að nota handfrjálsan
búnað við akstur stöðvaðir og ofan í
kaupið voru þeir báðir með fíkniefni í
pokahorninu.
Mörg fleiri verkefni komu til kasta
lögreglu á höfuðborgarsvæðinu á
laugardagskvöld og aðfaranótt
sunnudags eins og greint var frá á
Twitter-síðu hennar í svokölluðu
tístmaraþoni. Þar má nefna að lög-
reglumenn fóru á heimili sem ólétt
stúlka hafði flúið undan drukkinni
móður. Þá var farið á veitingastað
þar sem dyraverðir höfðu tak á
manni sem þar hafði verið að áreita
konur. Ekki er greint frekar frá
málavöxtum en þó tiltekið að mað-
urinn hafi aðeins verið í skó á öðrum
fæti. sbs@mbl.is
Áreitti konur í skó á öðrum fæti
Mikið um ölvun og læti í borginni Braust inn og borðaði afganga í ókunnu húsi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Forgangur Lögreglan á leið í útkall.
Alls 300 milljónir króna vantar á
næsta ári til rekstrar Heilbrigðis-
stofnunar Suðurlands (HSu) og ósk-
um um aukna fjármuni til rekstr-
arins er ekki svarað í fjárlaga-
frumvarpi. Þetta kemur fram í pistli
sem Herdís Gunnarsdóttir forstjóri
skrifar á vef stofnunarinnar.
Skv. frumvarpinu fær Heilbrigðis-
stofnun Suðurlands tæplega 4,1
milljarð kr. frá ríkissjóði á næsta ári.
Hún er þó eigi að síður undir-
fjármögnuð eins og aðrar sambæri-
legar stofnanir úti á landi, segir for-
stjórinn. Fyrir liggur nú að HSu fær
60 milljón kr. aukningu frá frum-
varpinu sem lagt var fram í sept-
ember af síðustu ríkisstjórn. Þeir
peningar duga þó hvergi nærri til
þess að halda í horfinu né til þess að
gera raunhæfar rekstraráætlanir og
því fylgja mikil vonbrigði. sbs@mbl.is
Óskum er
ekki mætt
Vill meira til HSu
Velferð Sjúkrahúsið á Selfossi.