Morgunblaðið - 18.12.2017, Síða 12

Morgunblaðið - 18.12.2017, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2017 Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | gardsapotek.is | appotek.is Lágt lyfjaverð - góð þjónusta Einkarekið apótek Nú einnig netapótek: Appotek.is Melania Trump, forsetafrúBandaríkjanna, bregðurekki út af hefðinni og sérum og stjórnar jólahaldi Hvíta hússins. Hver forsetafrú setur sitt mark á skreytingar hvers árs þar sem ekkert er sparað til. Í ár hefur for- setafrúin auk sjálfboðaliða og starfsfólks hússins sett upp 53 jólatré, yfir 12 þús- und skreytingar, tæpan fimm og hálfan kílómetra af jólaseríum, 71 jólakrans og fjöldann allan af piparkökuhúsum. Sjálf- boðaliðar alls staðar að úr Bandaríkj- unum koma til að skreyta húsið. „Þetta er húsið okkar allra,“ sagði Melania þegar hún þakkaði sjálf- boðaliðum og starfsfólki við opnun húss- ins eftir skreytingu. Frá 1. desember hvert ár til 1. janúar eru haldnir jólaviðburðir í húsinu og það fallega skreytt. Þetta verða fyrstu jól Trump-fjölskyld- unnar í Hvíta húsinu en Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, hefur haldið utan um og skipulagt skreytingar hússins. Hver forsetafrú setur sinn svip á jólaskreytingarnar. Hvíta húsið Skreytingarnar þykja stílhreinar og fallegar. Á hverju ári er mikið lagt í að skreyta herbergi og ganga Hvíta hússins fyrir jólahátíðina líkt og myndirnar sýna. AFP Hvíta húsið komið í jólabúninginn Allt frá árinu 1923 hafa forsetar Bandaríkjanna tendrað ljósin á þjóð- arjólatrénu (e. national Christmas tree) í garði Hvíta hússins. Calvin Coolidge var fyrstur til að tendra ljós trésins en upphaflega var ætlunin að ýta undir sölu rafmagnslýsinga á jólatré. Fljótlega skapaðist þó sú hefð að forsetinn tendraði ljós trés- ins en það var ekki fyrr en í forsetatíð Franklin D. Roosevelt að forsetinn hélt stutta tölu í tilefni þess að ljósin á trénu væru kveikt. John F. Kennedy setti einnig mark sitt á viðburðinn en sá glæsileiki og kannski hátíðleiki sem fylgir tendrun jólaljósa trésins er rakinn til forseta- tíðar hans. Mögulega hefur Jacquel- ine Kennedy haft eitthvað um það að segja. Í dag eru mikil hátíðarhöld í kring- um tendrun jólatrésins og markar hún mánaðar langa jólahátíð Hvíta hússins en þangað sækja margir til að sjá og upplifa jólastemninguna í húsinu. Donald Trump, 45. forseti Banda- ríkjanna, tendraði ljós trésins ásamt eiginkonu sinni, Melania Trump, börnum og barnabörnum í byrjun mánaðarins en þetta eru fyrstu jól hans sem forseta í Hvíta húsinu. Forsetinn sér um að tendra jólaljósin Jólaskraut Hvíta húsið og þjóðartréð í forsetatíð Johns F. Kennedy. Þjóðarjólatré Bandaríkjanna Forsetafrú Melania Trump stjórnaði jóla- skreytingum í ár.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.