Morgunblaðið - 18.12.2017, Page 14

Morgunblaðið - 18.12.2017, Page 14
14 FRÉTTIRViðskipti | atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2017 DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 6006 - SVÆÐISMEÐFERÐ Í örfáum einföldum skrefum geturðu sett upp rúmið þitt til að mæta þörfum þínum. BAKSVIÐ Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Stór og ljótur bolti byrjaði að rúlla í byrjun október, þegar New York Tim- es og New Yorker sviptu hulunni af brotum bandaríska kvikmyndamó- gúlsins Harvey Weinstein. Fljótlega virtist eins og flóðgáttir hefðu opnast og konur um allan heim – þar á meðal á Íslandi – stigu fram til að segja frá alls kyns kyn- ferðislegri áreitni og ofbeldi sem þær höfðu orðið fyrir á vinnustað. Eflaust er það mörgum stjórn- endum núna ofar- lega í huga að tryggja að þannig hlutir gerist ekki á þeirra vinnustað en eins og Jakob Gunnlaugsson bendir á er um flókið vandamál að ræða og ekki hægt að benda á neinar töfralausnir til að finna og uppræta áreitni og ofbeldi á milli starfsmanna. „Það er ekki til nein al- tæk lýsing á þeim sem gerast uppvísir að svona hegðun, eða þeim fyrirtækj- um þar sem áreitni og ofbeldi viðgang- ast.“ Vitni láti í sér heyra Jakob er sálfræðingur hjá Vinnu- vernd og segir hann vænlegast til ár- angurs að skapa vinnumenningu þar sem samskipti eru opin og traust, og bæði stjórnendur og starfsmenn finna fyrir sameiginlegri ábyrgð við að finna lausnir á verkefnum dagsins. Hann bendir á að það sé í höndum allra starfsmanna að skapa gott og upp- byggjandi vinnuumhverfi: „Það hvílir líka á þeim sem verða vitni að einelti, áreitni eða ofbeldi að láta vita og láta í sér heyra, því með því að gera ekki neitt er í raun verið að samþykkja þessa hegðun.“ Áríðandi er, að sögn Jakobs, að stjórnendur viti líka hvernig á að bregðast við ef starfsmaður kvartar yfir óviðeigandi hegðun vinnufélaga eða viðskiptavinar. „Sú skylda hvílir á stjórnendum að innleiða viðbragðs- áætlun, þannig að hægt sé að fást við þessi mál á skjótan og faglegan hátt þegar og ef þau koma upp. Viðbragð- sáætlunin ætti m.a. að tiltaka hvaða ferli fara í gang, og innan hvaða tíma- ramma á að komast að niðurstöðu í málinu og grípa til aðgerða.“ Oft er stjórnendum vandi á hönd- um, enda um viðkvæm mál að ræða. Þeir þurfa að fara gætilega enda verð- ur að bregðast við á sanngjarnan hátt, grípa til skjótra aðgerða en líka lág- marka neikvæð áhrif á daglegan rekstur. Jakob bendir á að þolendur geti jafnvel stundum ákveðið að bíta á jaxlinn og láta slæma hegðun yfir sig ganga til að setja ekki starf deildarinn- ar eða jafnvel fyrirtækisins alls í upp- nám. „Þegar kvörtun berst þarf að taka hana alvarlega, og kanna vand- lega hvað liggur að baki. Ræða þarf vandlega við þolandann og fara yfir hans hlið á málinu, þá ræða við ger- andann og möguleg vitni.“ Stundum óviljaverk Stundum má leysa málin hratt og vel, með afsökun og áminningu og seg- ir Jakob að vissulega geti óæskileg hegðun eins starfsmanns í garð annars verið óviljaverk eða misskilningur. Er gerandinn þá oftar en ekki fús að biðj- ast afsökunar og leiðrétta hegðun sína. „Í öðrum tilvikum þarf strax að grípa til ráðstafana á borð við að gefa ger- anda eða þolanda kost á að vinna ann- ars staðar í fyrirtækinu, eða vinna að heiman á meðan rannsókn stendur yf- ir, og jafnvel setja gerandann strax í frí frá störfum. Mismunandi er hvaða áhrif svona mál hafa á þolandann; sumir geta haldið áfram að sinna störf- um sínum eins og áður en aðrir þurfa að fara út úr því umhverfi þar sem brotið átti sér stað.“ Starfsmenn sem telja á sér brotið geta fengið aðstoð víða, og segir Jakob að það geti verið gott fyrsta skref að ræða við kollega eða næsta yfirmann. „Ef yfirmaðurinn er gerandinn má leita til mannauðsstjóra eða annarra stjórnenda, ella til vinnuverndarfull- trúa eða trúnaðarmanns stéttar- félags.“ Ekki meiri skrifstofurómantík? Sumum þykir það hluti af góðu and- rúmslofti á vinnustað ef vinnufélagar geta strítt hver öðrum, deilt klúrum bröndurum inni á kaffistofunni eða jafnvel stundað saklaust daður sín á milli. Þá getur það alltaf gerst að neisti kvikni á milli starfsmanna, og hafa ófá farsæl sambönd byrjað á laumulegum augnagotum yfir á næsta skrifborð. Getur verið að skrifstofurómantíkin eða góðlátlegur groddaskapur þurfi núna að heyra sögunni til? Jakob segir að vinnustaðir þurfi ekki að vera með öllu litlausir en það sé gott ef allir hafi það hugfast að koma fram við bæði vinnufélaga og viðskiptavini af virðingu og nærgætni. „Með tímanum lærum við á annað fólk og sjáum hvar það dregur mörkin. Það sem einum getur þótt grín eða skemmtilegt daður getur verið óvel- komin áreitni í huga annars. Ef við för- um óvarlega getum við meitt aðra án þess endilega að ætla okkur það.“ Áreitnin tekin föstum tökum  Fyrirtæki þurfa að hafa viðbragðsáætlun svo tryggt sé að rétt sé brugðist við ásökunum um áreitni eða ofbeldi AFP Reiði Kynferðislegri áreitni mót- mælt í Hollywood í nóvember. Jakob Gunnlaugsson David Cameron, fyrrverandi for- sætisráðherra Bretlands, hefur verið ráðinn til að stýra risasjóði kínverskra stjórnvalda sem miðar að því að bæta flutningsleiðir á milli Kína og helstu viðskipta- landa í Asíu, Evrópu og Afr- íku. Belt and Road-verkefninu (B&R) var hleypt af stokk- unum árið 2013 og en þá hét Xi Jinping Kínaforseti því að verja jafnvirði 124 milljarða dala í að bæta samgöngur Kína við um- heiminn. Sjóðurinn sem Cameron mun taka þátt í að stjórna hefur nú þegar úr um það bil milljarði dala að spila, að því er BBC greinir frá. Standa vonir til að með B&R takist að koma á betri lestar- og vegasamgöngum svo að auðveld- ara verði að flytja vörur frá Kína eftir sex „gáttum“ sem liggja munu inn í austur- og vesturhluta Rússlands, vestur til Tyrklands og suður til Singapúr, Indlands og Pakistans. Jafnframt á að efla siglingaleiðir frá Kína til Miðjarð- arhafs. Cameron sagði af sér á síðasta ári þegar niðurstöður Brexit- þjóðaratkvæðagreiðslunnar lágu fyrir. Hann hefur ekki látið mikið fyrir sér fara síðan þá og hefur einkum beitt sér fyrir eflingu rannsókna á heilabilun. Í forsætisráðherratíð sinni lagði Cameron ríka áherslu á bætt sam- skipti Bretlands og Kína. Tilkynnt var um ráðningu hans til B&R eft- ir tveggja daga ferð fjár- málaráðherrans Philips Hammond til Kína um helgina. ai@mbl.is AFP Útrás Lestarmódel skoðað í Peking. B&R er risastórt samgönguátak. David Cameron í stjórn- endahóp Belt and Road  Stórt og dýrt verkefni sem á að bæta tengingar Kína við umheiminn David Cameron Fyrrverandi starfsmaður skutlþjón- ustunnar Uber sakar fyrirtækið um að hafa starfrækt leynilega deild sem hafði það verkefni að stela leyndarmálum keppinauta og stunda umfangsmiklar iðnaðar- njósnir. Með þessu á fyrirtækið að hafa sankað að sér miklu magni gagna um tækni, ökumenn og stjórnendur annarra fyrirtækja. Þetta kemur fram í bréfi sem lagt var fyrir dómstól í Kaliforníu sem sönnunargagn í máli Waymo gegn Uber. Waymo þróar tækni fyrir sjálfakandi bíla sem fyrirtækið sak- ar Uber um að hafa stolið. Starfsmaðurinn sendi Uber um- rætt bréf í maí á þessu ári en hann hætti störfum hjá fyrirtækinu í febr- úar eftir að hafa verið lækkaður í tign. Starfsmaðurinn samdi síðar við Uber um að fyrirtækið greiddi hon- um 4,5 milljónir dala í bætur. Síðan þá hefur hann sagt að sumt af því sem kemur fram í bréfinu sé ekki satt, þar á meðal ásakanir um stuld á viðskiptaleyndarmálum Waymo. Bréfið lýsir því m.a. hvernig Uber lét starfsmenn sína þykjast vera mótmælendur til að fá aðgang að lokuðum nethópum andstæðinga fyrirtækisins. Uber á einnig að hafa sent útsendara sína á ráðstefnu sem keppinautur hélt á ótilgreindu hót- eli, til að hlera samtöl fólks, að því er tækniritið Gizmodo greinir frá. Þá er Uber gefið að sök að hafa fengið starfsmenn keppinauta til að njósna fyrir sig og leka til sín upplýsingum um reksturinn. Að sögn BBC á Uber að hafa sett af stað rannsókn á ásökununum þeg- ar þeim barst bréfið fyrr á árinu. Í kjölfar þess að bréfið var gert op- inbert á föstudag sendu stjórnendur Uber frá sér yfirlýsingu þar sem segir að ekki hafi tekist að sann- reyna allar þær ásakanir sem fram koma í bréfinu, og að nýjum stjórn- endum fyrirtækisins sé mjög í mun að stunda heiðarlega og sanngjarna samkeppni. Til stóð að hefja málflutning í máli Waymo gegn Uber snemma í desem- ber en réttarhaldinu hefur verið frestað fram í febrúar vegna þeirra ásakana sem fram koma í bréfinu. ai@mbl.is AFP Áfall Bréf fyrrum starfsmanns Uber lýsir umfangsmiklum iðnaðarnjósnum. Uber sakað um njósn- ir og mútugreiðslur  Réttarhaldi hefur verið frestað fram í febrúar í máli Waymo gegn Uber

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.