Morgunblaðið - 18.12.2017, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 18.12.2017, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2017 www.gjofsemgefur.is PIPA R\TBW A • SÍA • 133567 Þorgerður Anna Gunnarsdóttir thorgerdur@mbl.is Bandaríska varnarmálaráðuneytið eyddi um 22 milljónum Bandaríkja- dala, sem samsvarar um 2,3 milljörð- um króna, í verkefni sem sneri að rannsóknum á fljúgandi furðuhlutum. Verkefnið, sem nefndist The Advan- ced Aviation Threat Identification Program, stóð yfir í fimm ár, eða frá 2007 til ársins 2012, þegar fjárveit- ingum var hætt vegna annarra mikil- vægari verkefna. Takmarkaður fjöldi embættis- manna vissi af verkefninu, en það var hugarfóstur demókratans og þáver- andi öldungadeildarþingmannsins Harrys Reids, sem á þeim tíma fór fyrir meirihluta þingsins. Bandaríska dagblaðið New York Times afhjúpaði verkefnið, en í samtali við blaðið sagð- ist Reid ekki skammast sín fyrir að hafa sett verkefnið af stað. Þvert á móti hefur hann lýst því yfir að hann sé stoltur af því og að hann hafi gert nokkuð sem enginn hafi gert áður. Þrátt fyrir að fjárveitingum til verkefnisins hafi verið hætt árið 2012 segir Luiz Elizondo, sem stjórnaði verkefninu, að starfsmenn varnar- málaráðuneytisins hafi haldið rann- sóknum sínum á furðuhlutunum áfram samhliða öðrum störfum und- anfarin fimm ár. Elizondo sagði upp starfi sínu í október síðastliðnum og gagnrýndi leyndina og andstöðuna sem verkefnið hefur fengið. Í upp- sagnarbréfi sínu spurði hann hvers vegna ekki væri lagður meiri tími og vinna í málið. Hann staðfesti að annar fulltrúi hefði tekið við verkefninu en vildi ekki greina frá því hver það hefði verið. Handviss um tilvist geimvera Mestur hluti fjármagnsins sem verkefnið hlaut fór til loftrýmisrann- sóknarfyrirtækis sem rekið er af milljarðamæringnum og góðvini Reids, Robert Bigelow. Bigelow, sem nú er í samstarfi við NASA, sagði í viðtali fyrr á árinu að hann væri hand- viss um tilvist geimvera og að fljúg- andi furðuhlutir hefðu heimsótt jörð- ina. Í samstarfinu við fyrirtæki Bige- lows var framleiddur fjöldi skýrslna sem lýsa fljúgandi fyrirbærum sem ferðuðust á miklum hraða með engum sjáanlegum drifkrafti. Í höfuðstöðv- um Bigelows í Las Vegas voru einnig rannsakaðir ýmsir hlutir sem talið er að hafi komið úr fljúgandi furðuhlut- um, auk þess sem myndbönd af atvik- um þar sem bandarískar herflugvélar rákust á óskilgreinda hluti á ferðum sínum voru skoðuð. Efasemdir sérfræðinga Stjarneðlisfræðingurinn Sara Seager segir að þrátt fyrir að uppruni hluta sé ókunnur þýði það ekki endi- lega að þeir komi frá annarri plánetu eða öðru sólkerfi. Þrátt fyrir það segir hún mikilvægt að rannsaka óútskýrð fyrirbæri vandlega, en að raunin sé sú að oft séu slíkar ráðgátur óleysanleg- ar. James E. Oberg, fyrrverandi geim- skipaverkfræðingur hjá NASA, sagði að slíkir „fljúgandi furðuhlutir“ ættu sér oft eðlilegar og „mannlegar“ skýr- ingar. Sumir vildu fara óséðir um loft- in. Aðrar getgátur eru uppi um það sem gæti hafa legið að baki rannsókn- unum. Fyrrverandi starfsmaður bandaríska þingsins, sem ekki vildi koma fram undir nafni, segir í samtali við Politico að þær hafi snúið að því að kanna hvort erlend öfl, einkum rúss- nesk eða kínversk, hefðu þróað nýja kynslóð tækni sem ógnað gæti Bandaríkjunum. Furðuhlutir rannsakaðir  22 milljónum Bandaríkjadala varið í rannsóknir á fimm ára tímabili  Standa enn yfir þótt fjárveitingar hafi verið stöðvaðar  Mikil leynd hvíldi yfir verkefninu AFP Pentagon Luiz Elizondo stjórnaði fljúgandi furðuhlutaverkefninu úr höfuðstöðvum varnarmálaráðuneytisins í Ar- lington County í Virginíu. Rannsóknirnar standa enn yfir en fjárveitingar til þeirra hafa verið stöðvaðar. Að minnsta kosti átta létu lífið og fjöldi fólks særðist í sjálfsmorðs- sprengju- og skotárás í kirkju í Pak- istan í gær. Samtökin Ríki íslams hafa lýst árásinni á hendur sér. Hún var gerð í borginni Quetta, um 65 km frá afgönsku landamærunum. Tveir árásar- mannanna voru klæddir sprengjuvestum og annar þeirra sprengdi sig í loft upp en hinum tókst það ekki. PAKISTAN Sjálfsmorðsárás í miðri messu Kirkjan í Quetta. Hið minnsta 26 hafa látist í aur- skriðum á eyj- unni Biliran sem tilheyrir Filipps- eyjum í kjölfar fellibylsins Kai- Tak. Tuttugu og þriggja er enn saknað, auk þess sem sjö til við- bótar hafa látið lífið á öðrum eyjum landsins. Um 87.000 manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna Kai-Tak, en vindhviður fóru upp í allt að 80 km/klst. Fellibylurinn stefnir nú frá Filippseyjum og töluvert hefur dregið úr styrk hans. FILIPPSEYJAR 26 manns létu lífið í aurskriðum Margir eiga erfitt vegna veðursins. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hringdi í Donald Trump Bandaríkja- forseta í gær, sunnudag, til þess að þakka honum fyrir inngrip leyni- þjónustunnar CIA sem kom í veg fyrir hryðjuverkaárásir í Sankti Pét- ursborg í Rússlandi. Á föstudag gaf rússneska öryggis- þjónustan FSB út yfirlýsingu þess efnis að sjö meðlimir hóps á vegum hryðjuverkasamtakanna sem kenna sig við Ríki íslams hefðu verið hand- teknir og hald lagt á töluvert magn sprengiefna, vopna og áróðursritum öfgahópa. Mennirnir höfðu skipulagt árásir á dómkirkju borgarinnar, sem og önnur almenningssvæði. Árásin hefði átt að eiga sér stað á laugar- dag, en þökk sé gögnum sem CIA lét FSB í té var mögulegt að koma í veg fyrir hryðjuverkin. Pútín lofaði Trump að ef Rússar byggju yfir slíkum upplýsingum sem gætu gagnast Bandaríkjunum myndu þeir afhenda þær að sama skapi. Auk þess bað hann Trump að skila þökkum sínum til forstjóra CIA og öðrum sem að málinu komu. AFP Forsetar Vladimír Pútín og Donald Trump stinga saman nefjum. Pútín þakkaði Donald Trump fyrir  CIA kom í veg fyrir hryðjuverk Ástralski ríkisborgarinn Chan Han Choi hefur verið handtekinn vegna gruns um viðskiptatengsl við Norður-Kóreu. Maðurinn, sem er 59 ára gamall, er fæddur í Suður-Kóreu en hefur verið búsettur í Sydney í Ástralíu í um 30 ár. Grunur leikur á því að maðurinn hafi haft milligöngu um sölu á ýmsum ólöglegum varningi tengdum vopna- gerð og aflað yfirvöldum í Pjongjang tuga milljóna Bandaríkjadala. Meðal þess sem hann á að hafa stundað við- skipti með eru tæki sem notuð eru við gerð eldflauga. Vísbendingar eru um að maðurinn hafi átt í samskiptum við hátt setta embættismenn í N-Kóreu. Á blaðamannafundi sem haldinn var vegna málsins í gær sagði lög- reglan að þrátt fyrir alvarleika máls- ins þá ógnuðu aðgerðir mannsins ekki íbúum landsins. Maðurinn gæti átt yfir höfði sér allt að 10 ára fangelsis- vist. Handtekinn vegna tengsla við N-Kóreu  Ástrali grunaður um viðskiptatengsl

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.