Feykir - 17.11.2011, Síða 4
4 Feykir 43/2011
Iþróttafréttir Feykis
> www.feykir.is/ithrottir
Tindastólsmenn báru sigurorð af Val
Fyrstu stigin í hús
ICELAND EXPRESS DEILDIN
TINDASTÓLL 89
VALUR 82
Það kom að því að Tindastóll
landaði sigri í Iceland Express-
deildinni en útlendingaher-
sveit Valsmanna gaf sig ekki
fyrr en á síðustu mínútu í
Síkinu sl. fimmtudagskvöld.
Bæði lið voru án sigurs
íyrir leikinn. Valsmenn
komust yfir í byrjun leiks en
fljótlega náðu heimamenn
forystu og höfðu þeir sex stiga
forystu að loknum fyrsta
leikhluta. Stólarnir voru 5
stigum yfir í hálfleik, 46-41 og
höfðu síðan frumkvæðið fram
á síðustu mínútur en Valsmenn
voru aldrei langt undan. Þegar
tvær mínútur voru eftir af
leiknum komust Valsmenn
yfir á ný en Stólarnir bitu í
skjaldarrendur og snéru
leiknum sér í hag og sigruðu
89-82.
Sigurinn var kannski ekki
fallegur en hann var kærkom-
inn. Miller átti í heildina
góðan leik, gerði 21 stig og lét
boltann ganga betur en oft
áður. Þá var Trey Hampton
ágætur og var með 69%
vítanýtingu sem er gott á þeim
bænum. Þá var Rikki seigur,
gerði nokkrar fínar gegnum-
brotskörfur og var öryggið
uppmálað á vítalínunni.
LENGJUBIKARINN
STJARNAN 102
TINDASTÓLL 80
Tindastóll spilaði við Stjörn-
una í Garðabæ sl.sunnudags-
kvöld í Lengjubikarnum.
Stólarnir voru að spila
ágætlega gegn sterkum and-
stæðingi, voru yfir 42-41 í
leikhléi en fjórði leikhluti var
eign heimamanna og urðu
lokatölur 102-80.
Munurinn var aðeins tvö
stig, 66-64, þegar fjórði
leikhluti hófst, en á 150
sekúndna kafla gerði Stjarnan
út um leikinn þegar þeir gerðu
18 stig í röð. Stigahæstir hjá
Stólunum voru þeir frændur
Svabbi (19) og Rikki (16)./Ó48
Skylmingar
Hilmar Örn
meistari
Skagfirðingurinn og
skylmingarkappinn Hilmar
Öm Jónsson átti góða
helgi á íslandsmeistara-
mótinu í skylmingum með
höggsverði.
Hilmar Öm varð íslands-
meistari í þremur flokkum en
hann sigraði í flokki Junior
(17-21 ára) Opnum flokki (21-
40 ára), Kadett (15-17 ára) og
einnig var hann í sigurliði
liðakeppninnar sem er Opinn
flokkur. Þettamunveraífyrsta
sinn ísöguskylmingaálslandi
sem einn og sami maður nái
að sigra í öllum þessum
flokkum en Hilmar verður 17
ára í næsta mánuði. /PF
( ÁSKORENDAPENNINN )
berglindth@feykir.is
Sigrún Dögg Pétursdóttir skrifar frá Hvammstanga
Frábært þegar
ungt fólk drífur sig út
Þegar ég var 17 ára
fengum ég og Brynja
Ósk vinkona mín þá
hugmynd að fara
eitthvert út að vinna.
Þetta byrjaði allt
í janúar 1998, við
vorum báðar hættar í
skóla, höfðum verið á
Króknum, og vissum
svo sem ekkert hvað
við ættum að fara að
gera.
Þá fer Regína, mamma
hennar Brynju, að benda
okkur á að fara eitthvert
út að vinna. Við slógum
til og fórum að sækja
um á netinu. Svo var
haft samband við okkur
frá hóteli í Noregi og við
gátum fengið vinnu þar.
Um það bil viku seinna
vorum við komnar tíl
Noregs. Hótelið sem við
unnum á er Scandic
Hotel í Asker og unnum
við þar við herþergisþrif,
þetta var ágætís vinna
og launin mjög góð,
fannst okkur. Fyrst um
sinn bjuggum við á
hótelinu en fengum svo
fljótíega leigt í kjallara
hjá gömlum hjónum
sem fannst mjög
merkilegt að við værum
frá Islandi. Það kom
okkur mikið á óvart hvað
fólki fannst merkilegt að
við værum frá íslandi.
Það var mjög gott að
vera í Noregi, auðvelt
að ferðast og ekki var
það verra að það var
stutt inn í Osló, þaðan
sem við bjuggum. Eitt
af því sem var svo gott
við að vera í Noregi var
auðvitað veðrið, það er
miklu mildara og ég man
bara ekki eftir að það hafi
einhvem tímann verið
vont veður þar miðað við
okkar mælikvarða, meðan
á dvöl okkar stóð. Það var
hægt að fara og synda í
sjónum og þegar sumarið
kom, var þara hægt að
vera úti á bolnum allan
daginn, nánastalla daga.
Við entumst nú ekkert
voða lengi í Noregi, vorum
komnarheim ílokjúlí
þetta sama ár.
Þó svo að þetta hafi
verið stuttur tími þá hafði
maður voðalega gott af
þessu og mér finnst alltaf
frábært þegar ungt fólk
ákveður að drífa sig út,
t.d. í skiptinám eða bara
að vinna.
Ég ætla að skora á
Sigurbjörgu Þórunni
Marteinsdóttur að koma
með næsta pistil.
Yngri flokkar Tindastóls í körfubolta
Allt í jafnvægi
Þrir yngri flokkar hjá
Tindastóli í körfu skruppu
suður yflr heiðar um síðustu
helgi og kepptu í 2. umférð
íslandsmótsins.
Þetta voru 8. flokkur
stúlkna, 8. flokkur drengja og
11. flokkur drengja. Stelpurnar
í 8. flokki kepptu í Njarðvík í
A-riðli. Þær eru ennþá án
Lindu Þórdísar Róbertsdótt-
ur sem verið hefur meidd í
allt haust. Þær stigu þó vel upp
að þessu sinni að sögn
Hrafnhildar Sonju Kristjáns-
dóttur þjálfara og allt annað
að sjá til þeirra en í fyrsta
mótinu.
Strákarnir í 8. flokki kepptu
í E-riðli í Heiðarskóla í Keflavík
á laugardag og í Ásgarði
Garðabæ á sunnudag. Leikin
var tvöföld umferð þriggja liða
og unnu strákarnir tvo og
töpuðu tveimur. Þeir töpuðu
báðum leikjunum fyrri daginn,
en kvittuðu fyrir töpin með
öruggum sigrum seinni
daginn.
Þá spilaði 11. flokkur í
B-riðli í Smáranum í Kópavogi
og voru þeir hársbreidd frá því
að komast upp í A-riðil. Þeir
unnu tvo og töpuðu tveimur
naumlega. Því miður hefur
stigaskor leikmanna ekki
borist en verður sett inn um
leið og það gerist.
Nánar um úrslit leikjanna
er að finna á Tindastóll.is. /PF
( LIÐIÐ MITT ) palli@feykir.is
Zidane og
Kristmar Geir
W 3»!!
ah 1
Nafn: Árni Einar Adolfsson.
Heimili: Maltakur lb Garðabær.
Starf: Hjá Fóðurblöndunni.
Hvert er uppáhaldsliðið þitt í
enska boltanum og af hverju?
Tottenham, spila skemmtilegasta
boltann og Kristján Baldursson
(Danni sæti) heldur með þeim.
Hefur þú einhvern tímann lent í
deilum vegna aðdáunar þinnar
á umræddu liði? Nei eiginlega
ekki, nema þegar Aðalsteinn
Arnarson er inní klefanum þá er
hann eitthvað að reyna að tjá sig,
heh:D.
Hver er uppáhaldsleikmaðurinn
fyrr og síðar? Zidane og Kristmar
Geir Björnsson.
Hefur þú farið á leik með liðinu
þínu? Nei, því miður.
Áttu einhvern hlut
sem tengist liðinu?
Já, ég á eina húfu.
Hvernig gengur
að ala aðra fjöl-
skyldumeðlimi
upp í stuðningi
/orrENv\^
^olspvjY-
við liðið? Jónas bróðir er orðinn
SPURSARI.
Hefur þú einhvern tímann skipt
um uppáhalds félag? Var United
maður þegar ég var ungur og
mikið í kringum Ingva Hrannar
og co.
Uppáhalds málsháttur? Margur
er knár þótt hann sé smár.
Einhver góð saga úr boltanum?
Síðasta sumar var held ég bara
nokkuð góð saga ; ) annað á
beturheima íklefanum.
Spurning frá Aðalsteini Arnar-
syni. - Heldurðu að Tottenham
nái Evrópusæti í ár eða eru
þeir búnir að toppa undir stjórn
Harry Redknapps? Svar... Já ég
hef bullandi trú á þeim.
Hvern viltu sjá svara
þessum spurning-
um? Hallgrím Inga
Jónsson.
Hvaða spurningu
viltu lauma að við-
komandi? Hvað ertu
stór? ;)