Morgunblaðið - 04.01.2018, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 04.01.2018, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2018 Frá og með janúar 2018 hækkar verð á áskrift að Morgunblaðinu. Full mánaðaráskrift, sem felur í sér sjö blöð í viku, aðgang að vefútgáfu Morgunblaðsins, aðgang að Hljóð- mogganum, auk snjalltækjaútgáfu, kostar nú 6.597 kr. Blað í lausasölu kostar 608 kr. á virkum dögum, en helgarblöðin kosta 1.050 kr. í lausasölu. Áskriftarverð Bláu húsin v/Faxafen Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun • Næg bílastæði t Bikiní - Tankini Sundbolir Söfnum í neyðarmatar- sjóð fyrir jólin til matarka hjá Fjölskylduhjálp Íslands fyrir þá fjölmörgu sem lægstu framfærsluna hafa. Þeim sem geta lagt okkur lið er bent á bankareikning 0546-26-6609, kt. 660903-2590. Fjölskylduhjálp slands, Iðufelli 14 Breiðholti og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ. Neyðarsöfnun í fyrir jólin Guð blessi ykkur öll Við erum á Facebook Laugavegi 82 | 101 Reykjavík Sími 551 4473 Hlýleg ullar- og silkinærföt ////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////// Ungur maður, sem réðst á tvo eldri borgara á níræðisaldri við Sléttuveg á nýársdag, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 31. janúar. Óskað var eftir gæslu- varðhaldi á grundvelli almanna- hagsmuna og féllst héraðsdómari á beiðni lögreglunnar. Maðurinn var í annarlegu ástandi er hann réðst inn í íbúð konunnar síðdegis á nýársdag og veitti henni áverka. Samkvæmt. upplýsingum frá lögreglunni kom nágranni konunnar henni til aðstoðar en ungi maðurinn veitti honum einn- ig áverka. Gestir sem staddir voru í húsinu náðu að halda of- beldismanninum þangað til lög- regla kom, handtók hann og færði í fangageymslur. Árásarmaðurinn úr- skurðaður í gæslu- varðhald út janúar „Við munum ekki sjá faraldra hér, nema eitthvað sérstakt gerist, en við megum alveg búast við að hér komi áfram upp stök tilfelli, á meðan svona mikið er um mislinga í Evrópu og heiminum öllum,“ segir Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir hjá emb- ætti Landlæknis. Mislingafaraldur geisar nú í Gautaborg í Svíþjóð. Tólf einstaklingar hafa smitast í far- aldrinum í Gautaborg en hann er mesti mislingafaraldur sem upp hefur komið í Svíþjóð í mörg ár. Hans varð fyrst vart í byrjun desembermánaðar eftir að óbólusettur einstaklingur leit- aði til heilbrigðisstofnunar. Hann reyndist smitaður af mislingum. At- huganir hafa sýnt að allmargir hafa smitast, þar á meðal starfsmaður á Sahlgrenska sjúkrahúsinu. Þar hefur verið beitt einangrun og gripið til ým- issa ráðstafana til að hindra útbreiðslu smitsins. Bólusetning besta vörnin „Þetta er angi af því sem hefur verið að gerast undanfarin ár í Evrópu. Það er svo mikið flæði af fólki að það koma upp mislingafaraldrar. Það kemur ekki á óvart. Við erum heppin að hafa sloppið svona vel,“ segir Þórólfur. Hér hafa komið upp stök mislinga- tilfelli síðustu ár eftir að ekki hafði orðið vart við misl- inga í mörg ár. Á síðasta ári komu upp þrjú tilfelli sem öll eiga upp- runa sinn erlendis. Þórólfur segir að vegna þess hversu vel þjóðin sé bólusett sé ekki hætta á mislingafaraldri hér. Bólu- setning sé langbesta vörnin og henni verði að halda áfram. Hún nái ekki að verja alveg alla og því geti einhverjir sýkst. Bólusetningin dragi hins vegar mjög úr hættunni á faraldri. Allir séu fullbólusettir Alltaf er alvarlegt þegar heilbrigðisstarfsfólk sem er í beinum samskiptum við sjúklinga smitast af mislingum, eins og gerðist í Gauta- borg. Hætta er á að sjúklingar og starfsmenn smitist. „Við höfum verið að leggja áherslu á að allir heilbrigð- isstarfsmenn sem eru í sambandi við sjúklinga hér séu fullbólusettir. Það skiptir öllu máli því það er svo mikið flæði inn á þessar stofnanir,“ segir Þórólfur. helgi@mbl.is Ekki talin hætta á faraldri hér Þórólfur Guðnason  Mislingafaraldur sem geisar í Gautaborg vekur ugg þar í landi Hámark greiðslna úr Fæðing- arorlofssjóði til foreldra í fæðing- arorlofi hefur verið hækkað um 20 þúsund krónur á mánuði og fer í 520 þúsund krónur. Það var gert með reglugerð sem Ásmundur Ein- ar Daðason, félags- og jafnrétt- ismálaráðherra, hefur gefið út. Tók hún gildi nú um áramótin. Í frétt á vef stjórnarráðsins segir ráðherra að þarna sé stigið fyrsta skrefið í áformum stjórnvalda um aukinn stuðning við barna- fjölskyldur í landinu með hækkun orlofs- greiðslna og lengingu fæðing- arorlofsins. Til standi að endur- skoða kerfið sem haldi utan um þessi mál. Breytingarnar fyrrnefndu ná til foreldra barna sem fædd eru, ætt- leidd eða tekin í varanlegt fóstur 1. janúar eða síðar. Þannig hækka lágmarksgreiðslur fyrir 25-49% starf úr 118.335 kr. í 123.897 kr. Lágmarksgreiðsla fyrir 50-100% starf hækkar úr 164.003 kr. í 171.711 kr. Fæðingarstyrkur for- eldra utan vinnumarkaðar eða í minna en 25% starfi hækkar úr 71.563 kr. í 74.926 kr. Fæðingarstyrkur til foreldra í fullu námi hækkar úr 164.003 kr. í 171.711 kr. Hámarksgreiðslur hækka  Fæðingarorlofsgreiðslur fara í 520 þúsund krónur Ásmundur Einar Daðason

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.