Morgunblaðið - 04.01.2018, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 04.01.2018, Blaðsíða 25
strax tekið opnum örmum. Smám saman varð Hrísey partur af mínu lífi og með okkur tengda- pabba tókst góð vinátta. Hann kenndi mér margt og æði oft fékk maður að snúast með honum í kringum útgerðina á Darra og veiðitúrar í fisk eða fugl urðu margir. Eftir að synir okkar Gunnhild- ar fæddust áttu þeir mikilvægt at- hvarf hjá afa og ömmu í Hrísey og fengu þar góða leiðsögn og hald- gott veganesti út í lífið. Ottó var barngóður og alltaf tilbúinn að leiðsegja þeim og margar stundir brösuðu þeir með honum í skúrn- um við smíðar og önnur verkefni, hossuðust með honum á Gamla rauð, út í kaupfélag eða austur á eyju. Það er eftirminnilegt hvað Ottó var mikill fuglavinur. Hann laðaði að sér þrestina og gaf þeim rús- ínur úr lófa sínum. Þeir vöppuðu óhræddir inn í bílskúrinn til að vita hvort hann ætti ekki eitthvað gott í gogginn ef skammturinn úti á stéttinni var uppurinn. Rjúpan fékk líka að borða hjá honum þar sem hún leitaði skjóls undan fálk- anum við runnana í garðinum og fuglafóðrið var keypt inn í stórum sekkjum. Það var alltaf passað vel upp á fuglarnir fengju sitt. Ottó hermdi líka listavel eftir bæði hrafni og rjúpu og fékk ávallt svör um hæl. Þó Ottó væri dýravinur og mik- ið náttúrubarn var hann samt veiðimaður í eðli sínu. Hann veiddi bæði á stöng og skaut sér til matar og eftirminnilegir eru margir svartfuglstúrar sem við fórum á Darra milli jóla og nýárs. Hann kenndi mér ekki bara rétta meðferð skotvopna heldur einnig að bera virðingu fyrir bráðinni og hvernig ætti að hantera hana og ganga frá að lokinni veiði. Bíl- skúrnum var umsvifalaust breytt í litla vinnslustöð þar sem gert var að aflanum, hvort sem um var að ræða fisk eða fugl. Fyrsta byssan sem ég fékk afnotaleyfi af var Remington-haglabyssan hans Ottós sem núna þjónar mér ein- um. Ottó lifði þá tíma þegar lax- veiði á Íslandi var á ráði almenn- ings að stunda. Ýmsar veiðisögur sagði hann mér úr slíkum túrum sem gáfu góðan afla, eins og til dæmis mokveiðiferð sem hann fór með félögum sínum í Laxá á Ás- um. Ekki síður eru eftirminnileg- ar tjaldútilegur á sumrin þar sem veiðistöngin var með í för. Litlar, tærar sprænur hér og hvar gáfu fallegan fisk í soðið og fyrir kom að sérstaklega skilvirkar veiðiað- ferðir væru notaðar ef á þurfti að halda. Bílskúrinn á Sólvallagötunni var ekki bara geymsla, vinnslu- stöð og verkstæði, hann var líka vettvangur langra umræðna um lífið og tilveruna, stjórnmál og allt hitt sem var í deiglunni hverju sinni. Ótal kvöld og langt fram eftir nóttu höfum við tengdasyn- irnir setið í skúrnum með Ottó og tekið stöðuna í heimsmálunum. Það voru góðar stundir. Ég kveð þig, kæri vinur, með góðar minningar í farteskinu. Elías. Afi vekur mig klukkan fimm. Það er sumar og orðið bjart. Veðrið er stillt og gott í sjóinn. Ég skófla í mig súrmjólkinni yfir morgunskeytunum. Afi hallar sér fram á eldhúsbekkinn á Sólvalla- götunni og hlýðir á af athygli. Vel snyrt skeggið er orðið grátt fyrir mörgum misserum og það rennur saman við burstaklippt hárið á rjóðu og útiteknu andlitinu. Við leggjum í hann niður á bryggju, enda útlitið gott fyrir daginn. Töltum yfir túnið hjá Selaklöpp með samlokur í poka. Amma smurði mínar með sinnepi. „Noh, er nafni bara á sérfæði?“ hafði afi spurt ömmu sposkur, ekki vanur slíkur trakteringum þegar hann var einn á ferð. Við prílum ofan í Darra, fjögurra tonna trillu með færeysku lagi, bláa á kinnunginn. Vélin er mjúk í gang, við ýtum úr vör og stímum út úr Hríseyjar- höfn. Hann grípur í talstöðina og sinnir tilkynningaskyldunni: „6329, 6329, það er út frá Hrísey.“ Ég fæ að leyfi skipstjóra til að skríða fram á bekkinn og dorma á leiðinni út Eyjafjörðinn. Afi stendur við stýrið og stýrir á mið- in. „Nafni, við erum mættir.“ Betra að hafa sig á lappir og í stíg- vélin. Krókarnir renna í sjóinn og færarúllurnar keipa þar til eitt- hvað bítur á. Dagurinn líður og þorskurinn lætur ekki á sér standa. Afi reytir upp. Ég læri að flokka frá undirmálið og gef því líf, blóðga og slægi. „Nafni, taktu hendurnar útúr rassgatinu á þér.“ Betra að hafa hraðar hendur til að halda í við afa. Múkkagerið garg- ar á lifrina allt í kringum bátinn. Kerin fyllast og síðdegis höldum við aftur heim. Þá stend ég við stýrið meðan afi leggur sig. Dýr- mætur lærdómur það, fyrir 13 ára gutta. Afi kenndi mér margt gagn- legt. Hvernig á að valda hamri og nota hann til að reka nagla í fjöl við bátasmíði eða til að berja harðfisk og létta þannig verkið fyrir tennurnar. Hvernig á að keipa stönginni örugglega en ekki of geyst til að eitthvað bíti á agnið. Hvernig er gott að höggva snjó- inn í köggla við snjómokstur en honum gat sannarlega kyngt nið- ur upp fyrir húsþök í Hrísey. Hvernig á að gagga eins og há- vella eða ropa einsog rjúpa. Svo sýndi hann mér hvernig skógar- þrestirnir átu rúsínur úr lófa hans, af því að þeir treystu honum eins og hluta af náttúrunni. Hvernig maður ók 50 ára gömlum og rauðmáluðum Massey Fergu- son um götur Hríseyjar, kannski suðrí Brekku eftir lottómiða á laugardagseftirmiðdegi eða í búð- ina eftir hálfpotti af rjóma. Hann þeystist líka glaður með okkur nýgift hjónakornin um alla eyju á brúðkaupsdaginn okkar Kristínar fyrir rúmum fimm árum, nokkuð sem mér þykir ævinlega vænt um. Hann kenndi mér líka nokkuð síður áþreifanlegt, eins og þolin- mæði og þrautseigju. „Þolinmæði þrautir vinnur allar,“ sagði hann oft og iðulega þegar viðfangsefnin vildu illa þýðast mig. Allt vill sitt lagið hafa og það hafðist ætíð fyrir rest. Það er ómetanlegt vega- nesti. Hann var alltaf tilbúinn að leiðbeina. Ævinlega þolinmóður. Ávallt hlýr. Takk fyrir það, elsku nafni. Ottó Elíasson. Þolinmæði þrautir vinnur allar. Óþreyjufull lítil stúlka á ferðalagi með Dísu ömmu og Ottó afa í aftursætinu á rauðu Mözdunni, sí- spyrjandi: „Hvað er langt eftir?“ Að endingu sagðist afi myndu skilja stúlkuna eftir út í vegkanti ef hún héldi áfram að spyrja. Það var ekki að spyrja að því, stúlkan þagði það sem eftir var af þeirri bílferð. Líklega var þetta í eina skiptið sem hún sá reyna á þol- inmæði afa síns. Lítil stúlka í heimsókn hjá ömmu og afa í Sól- vallagötu í Hríseynni fögru. Hún baukaði þar ýmislegt með afa sín- um. Eitt sinn batt hann spottenda utan um lausa tönn, hinn endann við hurðarhún og skellti svo aftur hurðinni. Það endaði allt saman farsællega. Hún barði harðfisk í bílskúrnum, brýndi hnífa í eldhús- inu, klippti grasið upp við hús- vegginn og stéttina eftir slátt, rembdist við að flaka fisk eftir bátsferð, tók í stýrið á Gamla Rauð og beið eftir því að skóg- arþrestirnir kæmu og fengju sér rúsínur úr lófanum hennar. Þol- inmæði þrautir vinnur allar. Allt- af fann afi tilefni til að koma þess- um fjórum orðum að og inn í hausinn á litlu stúlkunni. Fyrstu árin skildi hún lítið hvað í þeim fólst, eiginlega ekki neitt. En með vaxandi viti fór merking þeirra smám saman að skýrast og skipt- in sem afi fann sig knúinn til að þylja þau upp urðu færri og færri. Þess í stað fór hann að tala um stráka og ástarmálin og vildi gjarnan fá að vita hvort einhver væri farinn að gera hosur sínar grænar fyrir stúlkunni. Söknuðurinn er sár en á sama tíma svo óskaplega ljúfur og fal- legur. Minningin um lífsglaðan og glettinn mann lifir. Mann sem aldrei kvartaði og var í raun hold- gervingur seiglunnar. Mann sem faldi sig á bak við hurðir, spratt svo fram til að láta fólki sem gekk hjá bregða og hló dátt á eftir. Mann sem dansaði alltaf eins og enginn væri að horfa. Mann sem minnti okkur á það með reglulegu millibili hvað lífið er dásamlegt og hvað það er gaman að vera til. Elsku afi minn. Takk fyrir samfylgdina og ómetanlegt vega- nesti. Skál fyrir þér og lífinu. Þín Olga. Sit hér og hugsa um látinn mann, þau eru mörg farin sem við á mínum aldri ólumst upp með í Hrísey. Ottó var einn af þeim, hafði ekki kjark til að sjá hann eftir að hann lagðist inn á Lög- mannshlíð út af sínum veikindum, ætlaði þó að gera það annan des- ember síðastliðinn en fór ekki út af öðru sem um var að vera í Hrís- ey. Og nú er hann farinn og ég þarf ekki að óttast lengur, hann hefur fengið fyrri reisn, fullur af lífi og fjöri eins og við munum hann, sprettharður sundmeistari. Já hann var alltaf tilbúinn að taka sprettinn á eftir okkur strákun- um þegar við héldum að við vær- um að gera at í búðinni. Sé hann fyrir mér setja undir sig hausinn og segja „ég skal sko ná ykkur, ormarnir ykkar“, en Ottó var deildarstjóri í búðinni eftir að eig- inlegum sjómanns- og útgerðar- ferli lauk – aðrir munu segja frá því betur en ég. Búðin var og er enn á neðri hæðinni þar sem við bræður ól- umst upp og Ottó og pabbi voru miklir vinir, veiddu og drukku saman. Það eru margar sögur sem rifjast upp, ein af mörgum er þessi: Þeir félagarnir voru að koma úr veiði í Mýrarkvísl, að ég held, og mamma átti að sækja þá um leið og hún næði í okkur bræður í Bjarnarstaði eftir sum- ardvöl þar. Þegar hún var að sigra Bárðardalinn á norðurleið vildi ekki betur til en svo að bíll- inn festist í bremsu, hringsnerist og endaði á hliðinni – við ekki í beltum eins og í dag en ómeidd vorum við. Þetta tafði för okkar og á meðan höfðu félagarnir meiri tíma til að fagna að ég held engri veiði en í dag skil ég vinskap þeirra og gleði. Þeir komust svo um borð í Taunusinn en í honum var bekkur þannig að þeir höfðu aftursætið fyrir sig og þar söng Ottó, sem söng ekki oft: „Ása keyrir eins og engill, Ása keyrir eins og ég.“ Mér þótti þetta hálf- gerð öfugmæli þar sem við höfð- um einu sinni tekið snúning með honum á Land Rover og endað út af án meiðsla, hann var alltaf að stýra eins og úti á sjó. En hvort það var þreyta mömmu eða söng- urinn þá fórum við út af á Sval- barðsströnd og þá var gott að þeir voru slakir í aftursætinu, bara hægt að opna réttum megin og þeir rúlluðu út, bíllinn léttari og ekkert mál að draga hann upp á veg – man ekki hvað tók langan tíma að ferma aftur en við náðum heim í Hrísey fyrir rest eins og alltaf. Ottó var sjóari og hann átti bátinn Dísu sína líka þar og feng- um við Teiti að fara með honum að vitja um net o.fl. Honum fannst ekkert að því þótt það gæfi á bátinn; Teita þótti gaman en ég var sjóveikur. Já það var alltaf fjör í kringum Ottó. Svo fórum við að fara á böll í Sæborg og bíddu við; hver var þar á fullu hring eftir hring með Dísu sína og allar þær sem kjark höfðu annar en Ottó! Lífið er yndislegt. Blessaður sért þú, okkar kæri Ottó. Ég og Hanna sendum Dísu og öllum hennar innilegar samúðar- kveðjur. Narfi Björgvinsson. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2018 Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri, sem hér segir Laufás II, Svfél. Skagaströnd, fnr. 213-9164 , þingl. eig. Gréta Þorbjörg Jónsdóttir, gerðarbeiðandi Lánasjóður íslenskra námsmanna, mið- vikudaginn 10. janúar nk. kl. 14:00. Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra 3. janúar 2018 Félagsstarf eldri borgara Boðinn Nýársgleði Boðans kl. 14, allir hjartanlega velkomnir. Garðabær Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 9.30-16. Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara í síma 617- 1503. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 14-15.45. Símar í Jónshúsi / félags- og íþróttastarf: skrifstofa 512-1501/512-1502. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Handvinnuhorn í Jónshúsi kl. 13. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 10.50 jóga, kl. 13 hreyfi- og jafnvægis- æfingar, kl. 14 hreyfi- og jafnvægisæfingar, kl. 19 brids. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, opin vinnustofa frá kl. 9, morgunleikfimi kl. 9.45, spilað botsía kl. 10. Nýársæfing Sinfóní- unnar kl. 11.30, lagt af stað frá Hvassaleiti kl. 10.30. Matur kl. 11.30, spiluð félagsvist kl. 13.15, kaffisala í hléi. Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50, við hringborðið kl. 8.50, listasmiðjan er opin, síðdegiskaffi kl. 14.30, enskunámskeið byrj- ar þriðjudaginn 16. janúar, nánari upplýsingar í Hæðargarði eða í síma 411-2790, allir velkomnir með óháð aldri. Selið, Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-16 og upp úr kl. 10 er boðið upp á kaffi þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin. Hádegisverður er kl. 11.30-12.30 og kaffi og meðlæti er selt á vægu verði kl. 14.30-15.30. Allir eru hjartanlega velkomnir í Selið. Nánari upplýsingar hjá Maríu Helenu í síma 568-2586. Seltjarnarnes Óskum öllum gæfu og gleði á nýju ári með þökk fyrir hið liðna. Vatnsleikfimi kl. 7.15, Billjard Selinu kl. 10, kaffispjall í krókn- um kl. 10.30, jóga salnum Skólabraut kl. 11, áramóta-félagsvist í saln- um á Skólabraut kl. 13.30, karlakaffi í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 14. Ath. ný dagskrá vegna félagsstarfsins janúar-júní 2018 verður borin í hús í næstu viku til allra 65 ára og eldri. Smáauglýsingar Bækur Hjólabækurnar - Allir út að hjóla! Vestfirðir, Vesturland, Suðvesturland, Árnessýsla, Rangárvallasýsla. Hver bók 2000 kr. Allur pakkinn 7,500 kr. Frítt með póstinum. Frábær afmælisgjöf. Vestfirska forlagið jons@snerpa.is 456 8181 Hornstrandabækurnar Allar 5 í pakka 7500 Hornstrandir og Hornstrendingar. Ekkert annað á dagskrá í þessum bókum. Frítt með póstinum. Enginn aukakostnaður. Vestfirska forlagið jons@snerpa.is 4456 8181. Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Til sölu KRISTALSLJÓSAKRÓNUR Útsala er að byrja Glæsilegar kristalsljósakrónur fyrir falleg heimili. Handskornar kristals- ljósakrónur, veggljós, matarstell, kristalsglös til sölu. BOHEMIA KRISTALL, Grensásvegi 8. Sími 7730273 Askalind 4, Kóp. Sími 564 1864 www.vetrarsol.is B&S mótor með rafstar, 249cc Dreing 1 – 10 metrar 69cm vinnslubreidd Með ljósum og á grófum dekkjum Frábær í mikinn og erðan snjó Snow Blizzard snjóblásari Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Veiði S. 892 8655 • heimavik.is Þekking - Reynsla - Gæði Grásleppuveiðimenn 12mm flottóg lækkað verð 10mm blýtóg á gamla verðinu grásleppunet, felligarn o.fl. Bátar      Flatahrauni 25 - Hafnarfirði Sími 564 0400 www.bilaraf.is Mikið úrval í bæði 12V og 24V. Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 696 0042, Húsviðhald Tek að mér ýmiskonar húsaviðhald. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.