Morgunblaðið - 04.01.2018, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 04.01.2018, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2018 SJÓNMÆLINGAR Tímapantanir: Optical Studio í Leifsstöð, 4250500 Optical Studio í Smáralind, 5288500 Optical Studio í Keflavík, 4213811 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Talsmaður Mahmouds Abbas, for- seta heimastjórnar Palestínu- manna, sagði í gær að Jerúsalem væri „ekki til sölu“ eftir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hót- aði að stöðva árlega fjárhagsaðstoð landsins við Palestínumenn. „Við greiðum Palestínumönnum HUNDRUÐ MILLJÓNA DOLL- ARA á ári og fáum engar þakkir og enga virðingu,“ hafði Trump tíst á Twitter. „Við höfum tekið Jerú- salem, erfiðasta hluta viðræðnanna, af samningaborðinu, en fyrir það hefði Ísrael þurft að greiða meira. En hvers vegna ættum við að láta Palestínumenn hafa þessar miklu framtíðargreiðslur úr því að þeir vilja ekki lengur taka þátt í friðar- viðræðum?“ Trump skírskotaði til viðbragða Abbas við þeirri ákvörðun hans í desember að viðurkenna Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels. Abbas sagði ákvörðunina sýna að Palestínu- menn gætu ekki litið á Bandaríkja- stjórn sem hlutlausan sáttasemjara og myndu ekki fallast á neinar friðartillögur frá henni. „Jerúsalem er eilífðarhöfuðborg Palestínuríkis og er ekki til sölu, hvorki fyrir gull né milljarða,“ sagði talsmaður Abbas í gær eftir hótun Trumps. „Við erum ekki á móti því að hefja samningaviðræð- ur að nýju, en þær þurfa að byggj- ast á þjóðarétti og ályktunum öryggisráðsins sem hefur viður- kennt sjálfstætt Palestínuríki með austurhluta Jerúsalem sem höfuð- borg þess.“ Verði leyst í friðarviðræðum Ísraelar hernámu austurhlutann í sex daga stríðinu 1967 og síðan hefur öll borgin verið undir stjórn Ísraels. Austurhlutinn var innlim- aður í landið árið 1980 með lögum þar sem Jerúsalem var lýst sem „eilífri og óskiptri höfuðborg Ísr- aels“. Öryggisráð Sameinuðu þjóð- anna fordæmdi innlimunina, sagði hana vera brot á þjóðarétti, og samtökin hafa aldrei viðurkennt hana. Palestínumenn vilja að Austur- Jerúsalem verði höfuðborg ríkis þeirra þegar fram líða stundir. Bandarísk stjórnvöld hafa hingað til fylgt þeirri stefnu að leysa eigi deiluna um Jerúsalem í friðarvið- ræðum, eins og kveðið er á um í samningi Ísraela og Palestínu- manna frá árinu 1993. Ummæli Trumps um að hann hefði tekið Jerúsalem af samningaborðinu með ákvörðun sinni í desember benda til þess að hann hafi lagt þessa stefnu fyrir róða, þótt hann og bandarískir stjórnarerindrekar hafi áður neitað því. Mikilvæg aðstoð Bandaríkin hafa lengi veitt heimastjórn Palestínumanna fjár- hagstoð og hún nam 319 milljónum dollara á nýliðnu ári, að sögn fréttaveitunnar AFP. Þar að auki hafa Bandaríkin lagt fram 304 milljónir dollara til hjálparstarfs Sameinuðu þjóðanna í flóttamanna- búðum á Gaza-svæðinu og Vestur- bakkanum. Sendiherra Bandaríkj- anna hjá Sameinuðu þjóðunum hefur sagt að Trump vilji stöðva greiðslur til hjálparstarfsins þar til leiðtogar Palestínumanna samþykki að taka þátt í friðarviðræðum fyrir milligöngu Bandaríkjanna. Margir fréttaskýrendur, þeirra á meðal Ísraelar, telja hjálparstarfið mikilvægan þátt í því að stuðla að friði á svæðum Palestínumanna. Ákvörðun Trumps um að viður- kenna Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels torveldar friðarviðræður og mikill meirihluti aðildarríkja SÞ hefur fordæmt hana. Stöðvi hann fjárhagstoð við heimastjórn Palest- ínumanna og framlög til hjálpar- starfsins gæti það orðið vatn á myllu íslamskra öfgamanna í Hamas-samtökunum, leitt til nýrr- ar hrinu hryðjuverka og kveikt nýtt ófriðarbál í Mið-Austurlöndum. Segja Jerúsalem ekki til sölu  Trump hótar að stöðva fjárhagsaðstoð Bandaríkjanna við Palestínumenn  Kveðst hafa tekið Jerú- salem af samningaborðinu  Stefna hans gæti orðið vatn á myllu öfgamanna og kveikt nýtt ófriðarbál Fyrirhuguð aðstoð við lönd og svæði Palestínumanna í ár Ísrael Gaza Úkraína Vesturbakkinn Sýrland Afganistan Pakistan Bangladess Kenía Nígería Fílabeinsströndin Malaví A-Kongó Kólumbía Rúanda Suður-Súdan Tansanía Úganda S-Afríka Mósambík Simbabve Sambía Jórdanía Írak Eþíópía Sómalía Egyptaland 3.100 milljónir dollara 1.381,3 639,4 419,1 200,8 251,4 140,3 161,3 110 105 1.000 191,5 535,3 436,4 428,9 782,8 344,6 138,5 347,9 235,4 146,7 177,4 251 203,8 251 Erlend fjárhagsaðstoð Bandaríkjanna Heimild: https://www.foreignassistance.gov/explore 310,5 274,7

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.